Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020 21 Flugvélaframleiðandinn Airbus hefur kynnt hönnun þriggja vetnisknúinna flugvéla sem allar eiga það sameiginlegt að skilja ekki eftir sig neina loftmengun. Áætlað er að slíkar vélar verði að veruleika eftir 15 ár. Airbus hefur gert áætlun sem miðar að því að vetnisknúnar flugvél- ar fyrirtækisins verði teknar í notkun árið 2035. Þær skilji ekki eftir sig neina loftmengun og virðast talsmenn Airbus sannfærðir um að þetta muni verða að veruleika, að því er fram kemur á vefsíðu Business Insider. Flugrekstur, eins og hann var fyrir útbreiðslu COVID-19, var sagður standa fyrir 2–3% af losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum. Samkvæmt spá um stóraukið flug og tvöföldun flugfarþega í 8,2 milljarða manna á ári árið 2037, má búast við töluverðri aukningu á losun gróð- urhúsalofttegunda frá fluginu. Að vísu eru nýrri gerðir flugvéla spar- neytnari og eyða minna eldsneyti, en þær brenna eigi að síður jarð- efnaeldsneyti. Vetnisvélar ekki einu sinni í umræðunni fyrir fimm árum Glenn Llewellyn, sem hefur um- sjón með þessu mengunarlausa hönnunarverkefni Airbus, segir að fyrir fimm árum hafi vetnisknúnar flugvélar alls ekki verið í um- ræðunni. Sannfærandi niðurstöður með notkun vetnis í öðrum geirum flutninga hafi gjörbreytt stöðunni og sannfært menn um að þetta væri fýsilegur möguleiki í fluginu líka. Flugvélarnar þrjár sem nú er verið að leggja drög að hjá Airbus verða ætlaðar til mismunandi verk- efna. Félagið miðar við að vera búið að tileinka sér alla þætti vetnistækn- innar fyrir árið 2025 til að geta farið á fullt í hönnun, þróun og tilraunir með vetnisflugvélar. Ráðgert er að hönnunarferli og prófanir fyrir til- skilin leyfi taki um 10 ár. Gert er ráð fyrir að frumgerð vetnisflugvéla ætti að vera tilbúin á síðari hluta komandi áratugar. Horft er á tvær meginleiðir í hönnun hreyfla fyrir vetnið. Annars vegar er gert ráð fyrir smíði sprengi- hreyfla, svipað og eru í notkun í dag, nema að þeir noti vetni í stað jarð- efnaeldsneytis. Bílaframleiðendur hafa þegar gert tilraunir með slíkar vélar, en skiptar skoðanir eru um ágæti þeirra. Hin leiðin er að nota efnarafala til að umbreyta vetni í raforku líkt og þekkist í vetnisknún- um bílum í dag. Slíkir hreyflar geta hentað vel fyrir flugvélar með hefð- bundna hreyfla. Þær gætu mögulega borið allt að 100 farþega og verið með drægni upp á um 1.000 sjómíl- ur. Vetnið yrði þá geymt í fljótandi formi í tönkum fyrir aftan farþega- rýmið. Það er svipað fyrirkomu- lag og var í gasknúnu Tuplev-155 farþegaþotunni sem tilraunir voru gerðar með á tímum Sovétríkjanna. Þotuhreyflar (turbofan) er síðan annað mál. Airbus hefur gert áætlun sem miðar að því að vetnisknúnar flugvélar fyrirtækisins verði teknar í notkun árið 2035. Þær skilji ekki eftir sig neina loftmengun og eru talsmenn Airbus sannfærðir um að þetta muni verða að veruleika og væntanlega líta út svipað og hefð- bundnar farþegaþotur í dag, nema að vængirnir yrðu með annarri lögun. Slíkar flugvélar gætu tekið um 120 til 2000 farþega og yrðu með flug- drægni upp á um 2.000 sjómílur. Gert er ráð fyrir að slíkar vélar yrðu svipaðar og Airbus 320 vélarnar fyrir utan að ganga fyrir vetni. Fljúgandi vængur Þriðja og mest spennandi gerð flugvéla sem Airbus hefur kynnt til sögunnar er einsckonar fljúgandi vængur. Þar er flugstjórnarklefi og farþegarými hluti af vængnum sem gefur aukna lyftigetu. Þessa gerð kalla Airbus „The ZEROe blended- wing aircraft“. Þessi gerð flugvéla er sögð gefa hönnuðum mun meiri möguleika til að leika sér með. Hún gæti borið allt að 200 farþega og hefði svipaða drægni og hefðbundnar skrúfuþotur sem mikið eru notaðar á styttri leið- um eins og á Íslandi í dag. Á mynd sem Airbus hefur sent frá sér virðist vél af þessari gerð vera búin tveim hreyflaeiningum sem hvor um sig er með fjórum skrúfuhreyflum aftast á vængnum og verða væntanlega rafknúnir. Ekkert stél er á þessari hönnun og líklega er stefnu einfaldlega breytt með mismunandi hraða á hreyflun- um sjálfum. /HKr. Ertu með áætlun til að bregðast við óvissu? Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á fullkomið öryggi í rekstri með öflugum varaafllausnum frá EATON. Tryggðu þér hnökralausa orku og hugarró í vetur. Skoðaðu vöruúrvalið á okbeint.is eða hafðu samband í síma 570 1000. Airbus áætlar að vetnisknúnar flugvélar geti verði komnar í loftið árið 2035 Airbus hefur gert áætlun sem miðar að því að vetnisknúnar flugvélar fyrirtækisins verði teknar í notkun árið 2035. Þær skilji ekki eftir sig neina loftmengun og eru talsmenn Airbus sannfærðir um að þetta muni verða að veruleika. Myndir / Airbus Þriðja og mest spennandi gerð flugvéla sem Airbus hefur kynnt til sögunn- ar er eins konar fljúgandi vængur. Þessa gerð kalla Airbus „The ZEROe blended-wing aircraft“ og tæki hún 200 farþega. Vetnisknúin allt að 100 farþega skrúfuþota yrði í útliti svipuð að gerð og þær flugvélar sem mikið eru notaðar á styttri leiðum í dag, m.a. í innan- landsflugi á Íslandi. Vetnisknúin þota af svipaðri gerð og Airbus 320 vélarnar, nema hvað lögun vængjanna yrði með talsvert breyttu sniði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.