Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 40

Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202040 Skortur á slökkvivatni til sveita og löng bið eftir slökkviliði Nær þriðjungur bænda, eða rúm- lega 30 prósent, telja að ekki sé nægur og greiður aðgangur að slökkvivatni í nálægð við útihús, samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Eldvarnabandalagið. Í niðurstöðum könnunarinnar kemur einnig fram að stór hluti bænda býr í talsverðri fjarlægð frá næstu slökkvistöð og getur því liðið talsverður tími frá því slökkviliði berst útkall uns slökkvistarf getur hafist. Að meðaltali segist ríflega fimmtungur bænda búa í meira en 30 kílómetra fjarlægð frá næstu slökkvistöð. Hlutfallið er hærra í einstökum landshlutum en Austurland sker sig algerlega úr að þessu leyti. Þar segjast 43 prósent bænda búa í meira en 30 kílómetra fjarlægð frá slökkvistöð og önnur 14 prósent í 21-30 kílómetra fjarlægð. Það er því ljóst að viðbragðsgeta bænda sjálfra getur ráðið miklu um afleiðingarnar ef eldur kemur upp. Til samanburðar búa aðeins 11 prósent bænda á Suðurlandi í meira en 30 kílómetra fjarlægð frá slökkvistöð. Slæmt ástand eldvarna Gallup gerði könnunina í apríl síð- astliðnum. Úrtakið var 1.522 manns af meðlimaskrá Bændasamtakanna. Þátttökuhlutfall var mjög gott eða 45,7 prósent og bárust 696 svör. Eins og fram kom í síðasta tölublaði Bændablaðsins eru tals- verðar brotalamir á eldvörnum í úti- og gripahúsum bænda hér á landi samkvæmt könnun Gallup fyrir Eldvarnabandalagið. Ljóst er að ástand viðvörunarbúnaðar, brunahólfunar og slökkvibúnað- ar er slæmt hjá mörgum. Þannig segja 62 prósent bænda að ástand viðvörunarbúnaðar sé frekar slæmt eða mjög slæmt og þar af segja 42,6 prósent að ástandið sé mjög slæmt. Næstum því helmingur svarenda segir ástand slökkvibúnaðar frekar eða mjög slæmt. Þá kemur í ljós að aðeins 27,3 prósent hafa gert rým- ingaráætlun fyrir gripahús. Löng bið eftir slökkviliði Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu og formaður Félags slökkviliðsstjóra, segir að um það bil 20 mínútur geti liðið frá því slökkvilið fær boð um útkall uns slökkvistarf á vettvangi geti hafist ef aka þarf 20 kílómetra leið á vett- vang og nærri 30 mínútur ef fara þarf 30 kílómetra. Er hér miðað við bestu akstursaðstæður. Því sé afar mikilvægt að bændur hafi búnað og aðgang að slökkvivatni til að tryggja fyrstu viðbrögð á vettvangi áður en aðstoð berst. „Bændur geta heft útbreiðslu elds á byrjunarstigi og bjargað verð- mætum ef þeir hafa tiltækan búnað, slökkvitæki og brunaslöngur. Það er einnig að sjálfsögðu mikilvægt að við höfum nægan og greiðan aðgang að vatni þegar við komum á vettvang,“ segir Pétur. Áhyggjur af frauðplastinu Pétur segir slökkvilið hafa sér- stakar áhyggjur af slökkvistarfi í útihúsum þar sem eldfim efni eins og frauðplast eru notuð til einangr- unar. Samkvæmt könnun Gallup reynist það vera tilfellið í um 40 prósent tilvika. Nái eldur að læsa sig í frauðplast breiðist hann út með ógnarhraða og eru dæmi um að slökkvistarf hafi í slíkum tilvikum verið afar erfitt og jafnvel vonlaust. Baldur Pálsson, fyrrverandi slökkviliðsstjóri, og Haraldur Geir Eðvaldsson, núverandi slökkviliðs- stjóri Brunavarna á Austurlandi, rituðu grein um slíkan eldsvoða í Bændablaðið fyrr á árinu. Þar segir: „Slökkviliðin innan vébanda Brunavarna á Austurlandi eru fimm og fengu það hlutverk fyrir nokkrum árum að brenna íbúðarhús ásamt stóru fjósi á Fljótsdalshéraði, en fjósið var einangrað með frauð- plasti í þaki. Eftir að æfingunni í íbúðarhúsinu lauk létum við eldinn ná fjósinu og skipti engum togum að um leið og eldurinn náði plast- inu í þakinu hófst hraður bruni og hitamyndun svo hröð að við trúðum vart okkar eigin augum.“ Alelda á örfáum mínútum Þá segir í grein Baldurs og Haraldar: „Um leið hófst eldrign- ing frá plastinu sem eins og mynd- aði eldvegg þvert yfir húsið og fór eldveggurinn hratt eftir endilöngu húsinu og kveikti í öllu sem niðri var. Það liðu aðeins 12 mínútur þar til allir gluggar voru sprungnir út og eldsúlan sem þá myndaðist upp um strompinn náði alveg tveimur til þremur metrum á hæð. Eftir 20 mínútur var allt brunnið sem brunnið gat í húsinu. Reykur frá frauðplasti er baneitraður og mjög hættulegur mönnum og skepnum langt út fyrir brunastað. Því þarf alltaf að nota reykköfunartæki við slökkvi- starf jafnt innan- sem utanhúss. Samkvæmt framanrituðu er alveg ljóst að slökkvilið koma alltaf of seint þar sem plastbruni í þökum á sér stað og engu verður bjargað.“ Notkun frauðplasts til ein- angrunar í útihúsum er einmitt langalgengust á Austurlandi, eða sem nemur 52 af hundraði. Sambærilegt hlutfall á Suðurlandi er 30 prósent. Fátíðar heimsóknir eftirlitsaðila Athygli vekur hve hátt hlutfall bænda segist aldrei hafa fengið heimsókn frá slökkviliði eða áhættuskoðun tryggingafélags. Samkvæmt könnun Gallup seg- ist rúmlega helmingur bænda aldrei hafa fengið slíka heim- sókn. Tíu prósent bænda segjast hafa fengið heimsókn slökkviliðs eða tryggingafélags á þessu ári og fyrir ári síðan en aðrir segja lengra um liðið eða alls ekki. Rúmlega fimmtungur segir að meira en fimm ár séu liðin frá síðustu heimsókn slökkviliðs eða tryggingafélags og sem fyrr segir hefur rúmlega helmingur aldrei fengið þessa aðila í heimsókn. Loks var spurt hversu vel eða illa bændur hefðu kynnt sér rit Bændasamtakanna, Öryggi og vinnuvernd í landbúnaði. Ritið var gefið út 2016 í tengslum við verkefnið Búum vel – öryggi – heilsa- umhverfi og var dreift til allra lögbýla í landinu. Í ljós kom að fjórðungur bænda hafði kynnt sér ritið vel, 38,6 prósent svöruðu hvorki né og 36,4 prósent kváð- ust hafa kynnt sér það illa eða alls ekki. Eldvarnabandalagið er sam­ starfs vettvangur um auknar eldvarnir. Aðild að því eiga: Eignarhaldsfélagið Bruna- bótafélag Íslands, Félag slökkviliðsstjóra, Húsnæð- is- og mannvirkjastofnun, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Slysavarnafélagið Lands- björg, Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins, TM hf., VÍS hf. og Vörður tryggingar hf. www. eldvarnabandalagid.is Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu og formaður Félags slökkviliðsstjóra. Mjög gott; 3,4% Frekar gott; 19,4% Hvorki né; 29,5% Frekar slæmt; 24,7% Mjög slæmt; 22,9% Ástand slökkvibúnaðar í útihúsum Heimild: Gallup Graf / Bændablaðið HKr. Að meðaltali segist ríflega fimmtungur bænda búa í meira en 30 kílómetra fjarlægð frá næstu slökkvistöð. Hlutfallið er hærra í einstökum landshlutum en Austurland sker sig algerlega úr að þessu leyti. Þar segjast 43 prósent bænda búa í meira en 30 kílómetra fjarlægð frá slökkvistöð og önnur 14 prósent í 21-30 kílómetra fjarlægð. Þessi mynd er frá Norðurfirði á Ströndum, en þaðan eru 104 km til Hólmavíkur. Mynd / Hörður Kristjánsson Austurvegi 69 // 800 Selfoss 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is LANDBÚNAÐARDEILD AFLVÉLA eigum nokkrar Valtra eftirársVélar Valtra T234 D, Valtra N134 A, Valtra N114 EH5, Valtra N154 EA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.