Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202020
Hátækni í landbúnaði, sem ýmist
er kölluð „Agtech“ eða „Agritech“
er tiltölulega ný skilgreining. Hún
snýst um að auka skilvirkni og
sjálfbærni í landbúnaði með inn-
leiðingu á nýjustu tækni, ekki síst
í líftækni og jafnvel gervigreind.
Þessi geiri hefur vaxið gríðarlega á
síðustu fimm árum. Undir þessari
skilgreiningu hefur sprottið upp
fjöldi sprotafyrirtækja um allan
heim og er vöxtur þeirra mjög
hraður þrátt fyrir COVID-19.
Samkvæmt fjármálariti Forbes
jókst veltan í greininni um 40%
á árinu 2018, eða í 17 milljarða
dollara. Í júní síðastliðnum var
búið að fjárfesta fyrir 8,8 milljarða
dollara í greininni í 798 samning-
um í Bandaríkjunum á fyrstu sex
mánuðum ársins. Enda er talið að
hátæknilandbúnaður geti skipt sköp-
um við að brauðfæða ört vaxandi
mannfjölda á jörðinni.
Um 130 milljarðar dollara í
hátæknilandbúnað á heimsvísu
Agtech-skilgreiningin nær yfir nán-
ast alla þætti tækniinnleiðinga, allt
frá hugbúnaði til jarðvegsrannsókna,
plöntuþróunar, gróðureftirlits, vaxt-
arstýringa og nýtingu gervihnatta í
þágu landbúnaðar og gervigreind.
Forbes hefur eftir stjórnanda hjá
Better Food Ventures að í ágúst
síðastliðnum hafi verið áætlað að
um 130 milljarðar dollara væru í
stýringu fjárfestingasjóða í Agtech-
iðnaði á heimsvísu. Undir þessa
skilgreiningu fellur líka innleiðing
sjálfvirkni í ýmsum greinum land-
búnaðar.
Hátækni innleidd í hamrækt
Á Íslandi hefur mikið farið fyrir
ræktun á iðnaðarhampi á undan-
förnum misserum. Þessi grein er
ekki undanskilin í umræðum um
innleiðingu á hátækni til að auka
enn meira á skilvirkni í ræktun á
þessari hraðvaxta jurt. Það er þó
ekki bara á Íslandi sem áhuginn
á ræktun iðnaðarhamps er mikil.
Sem dæmi þá varð 600% aukning
í ræktun á iðnaðarhampi í Evrópu
frá 1993 til 2018, einkum vegna
áhuga á CBD-olíu og að nýta hamp
í matvælaframleiðslu og margvís-
legar iðnaðarvörur. Ræktun iðnað-
arhams hefur verið viðurkennd
lengi í bandarískum lögum og nú
einnig víða á ræktun kannabis sem
inniheldur virka efnið THC. Sömu
sögu er ekki að segja frá Evrópu þó
líkt og á Íslandi hafi verið slakað á
löggjöf um ræktun á iðnaðarhampi
í mörgum Evrópuríkjum.
Gríðarlegur vöxtur
Vegna gríðarlegs vaxtar í greininni
hafa fjárfestar verið að sýna hamp-
ræktinni einstaklega mikinn áhuga.
Kannski ekki skrítið ef litið er til
þess að markaður fyrir CBD-vörur
hefur vaxið úr 0,3 milljörðum dollara
árið 2017 í 5,7 milljarða dollara árið
2019. Á þessu ári er talið að veltan
verði 11,2 milljarðar dollara og vaxi
í 22,9 milljarða dollara á árinu 2022.
Meðal fyrirtækja sem fengið hafa
stór viðskiptalán vegna hátækniinn-
leiðingar í hampræktinni er AgTech
Scientific sem fékk 30 milljónir
dollara í lok síðasta árs. Fyrirtækið
var stofnað 2015 en rekur nú 2 millj-
óna ferfeta hátæknigróðurhús í París
í Kentucky í Bandaríkjunum, eða um
um 667 þúsund fermetra. Fyrirtækið
er sagt leiðandi í rannsóknum og
tilraunum í hamprækt.
Líftæknigeirinn á kafi í
hátæknilandbúnaði
Meðal fyrirtækja sem hafa verið
að fjárfesta í hátæknilandbúnað-
arlausnum er Sound Agricultural
sem er líftæknidrifið efna- og
plöntuþróunarfyrirtæki sem setti
22 milljónir dollara í slíka tækni
í maí. Fyrsta vara fyrirtækisins er
kölluð SOURCE og virkjar örverur
í jarðvegi til að framleiða meira af
köfnunarefni og fosfór. Þannig er
ætlunin að draga úr notkun á til-
búnum áburði. Fyrirtækið Pivot Bio
hafði áður kynnt um 100 milljóna
dollara fjárfestingu í apríl, en fyr-
irtækið sérhæfir sig, líkt og Sopund
Agricultural, í tækni til að draga úr
notkun tilbúins áburðar. Hafa rann-
sóknir Pivot Bio í um 50 ára skeið
þróað hvata til að auka köfnunarefni
í jarðvegi. Er þessi tækni sögð eiga
að auka uppskeru og tekjur bænda.
Fleiri fyrirtæki, eins og Geltor
í Bandaríkjunum, safnaði um 91
milljón dollara fjármögnun í gegnum
CPT Capital inn í þennan geira í júlí.
Þarna er um að ræða líftæknifyrir-
tæki sem vinnur að þróun í sjálfbærri
ræktun án tilbúins áburðar, bæði fyrir
matvæla- og snyrtivöruiðnaðinn og
framleiðslu bætiefna. Þar er m.a. um
að ræða framleiðslu á próteinum eins
og collagen og elastin, en eingöngu
úr jurtaríkinu. Collagen er þó oftast
framleitt úr fiski, fiskroði, eggj-
um og nautgripabeinum, enda má
segja að collagen sé límið sem held-
ur bandvef, húð og brjóski saman
og er um þriðjungur alls próteins í
mannslíkamanum. Orðið collagen
er meira að segja dregið af gríska
orðinu kólla (κόλλα) sem þýðir lím.
Fyrirtækið iFarm er líka nefnt
í þessu sambandi, en það er með
höfuðstöðvar í Finnlandi og sér-
hæfir sig í gróðurhúsatækni. Það
var stofnað 2017, en fyrir skömmu
var tilkynnt um 4 milljóna dollara
innspýtingu í það fyrirtæki í gegn-
um fjárfestingasjóði. Fyrirtækið
er með um 50 vörur í framleiðslu
fyrir viðskiptavini í Evrópu og Mið-
Austurlöndum. Það hefur verið að
gera tilraunir með ræktun á jarðar-
berjum, cherry-tómötum, papriku,
radísum og fleiru.
Nefna má enn eitt fyrirtækið í
hátæknigeiranum. Það er Unfold
sem sérhæfir sig í tækni er varð-
ar lóðrétta ræktun (vertical farm-
ing). Fjárfestingaarmur Bayer kom
núverið með 30 milljónir dollara
inn í þetta fyrirtæki. Þessi tegund
ræktunar er stöðugt að aukast, ekki
síst í þéttbýli.
Náttúruvæn varnarefni
Kanadíska líftæknifyrirtækið
MustGrow Biologic er líka dæmi
um nýja hugsun í þróun varnar-
efna í stað eiturefna í landbúnaði.
Eiturefnageirinn er sagður velta
65 milljörðum dollara á ári og því
eftir miklu að slægjast ef hægt er
að þróa efni sem valda ekki skaða
á náttúrunni. Í því augnamiði hefur
MustGrow Biologic verið að þróa
náttúruvænt varnarefni sem unnið
eru úr fræjum sinnepsjurtarinnar.
Hátæknin er líka í dýraeldi
Hátæknin er líka að ryðja sér til
rúms í dýraeldi, kjöt- og mjólkur-
framleiðslu. Verið er m.a. að inn-
leiða tölvutækni sem fylgist með
fóðrun, vaxtarhraða og líðan naut-
gripa í fjósum. Vaxandi áhersla er
líka lögð á innleiðingu á tækni til að
auka dýraheilbrigði. Genatækninni
er þar líka beitt til að fá fram hag-
kvæmari gripi. Markaðsvirði naut-
griparæktarinnar í Bandaríkjunum
einum er metið á 30 milljarða
dollara á ári, en þar eru um 9 millj-
ónir mjólkurkúa. Fjárfestar eru nú
farnir að sýna þessari grein veru-
legan áhuga.
Þá hefur verið bent á að um 12%
kúabúa í heiminum noti nú sjálf-
virka mjaltaþjóna. Búist er við að
sú tala hækki í 20% á næstu fimm
árum. Þar standa íslenskir bændur
einna fremstir á heimsvísu.
Hátækni í vélbúnaði
Margvísleg þjónustufyrirtæki eru
að spretta upp í kringum landbún-
aðinn og allt snýst þetta um að auka
skilvirkni og spara dýrmætan tíma.
Eru sum fyrirtæki eins og dráttar-
vélaframleiðandi John Deere farin
að tala um að bændur muni í æ
ríkara mæli stíla á miðlægar þjón-
ustumiðstöðvar og fylgjast með
öllum búnaði í rauntíma í gegnum
tölvur. Þar með t.d. samtengingu
á mannlausum dráttarvélum úti á
akrinum og allan mælaaflestur t.d.
varðandi eldsneytiseyðslu yfir netið,
þráðlausa bilanagreiningu og jafn-
vel viðgerðir í gegnum tölvur frá
sér stökum þjónustumiðstöðvum.
Flestir framleiðendur dráttarvéla og
annarra landbúnaðartækja hafa líkt
og John Deere verið að tileinka sér
hátæknina í þróun á sínum búnaði.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
COVID-19
Fjárfestar keppast nú við að dæla fjármunum inn í hátæknigeirann í landbúnaði sem ýmist er nefndur „Agtech“ eða „Agritech“.
Hátæknilandbúnaður er nú innleiddur í hampræktina enda er veltuaukningin
í þeim geira, eins og á vörum sem innihalda CBD-olíu, ævintýralegur. Hefur
veltan í þeim geira 37-faldast frá 2017 ef áætluð velta 2020 er tekin með.
Risagróðurhús AgTech Scientific í Kentucky í Bandaríkjunum. Fyrirtækið
hefur verið að sérhæfa sig í hátæknilausnum í þróun og tilraunum í ræktun
á hampi. Mynd / AgTech Scientific
Sound Agricultural sem er líftækni-
drifið efna- og plöntuþróunarfyrir-
tæki sem setti 22 milljónir dollara í
hátækni í maí. Fyrsta vara fyrirtækis-
ins er kölluð SOURCE og virkjar ör-
verur í jarðvegi til að framleiða meira
af köfnunarefni og fosfór. Þannig er
ætlunin að draga úr notkun á tilbún-
um áburði.