Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 10

Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202010 FRÉTTIR Svínapest innan landamæra Þýskalands breiðist hratt út – Yfirvöld sökuð um seinagang: Stórútflutningur Þjóðverja á svínakjöti í uppnámi – Sjö stærstu ríkin í kaupum á þýsku svínakjöti banna innflutning og Matvælastofnun á Íslandi er með málið í skoðun Julia Klöckner, landbúnaðarráð- herra Þýskalands, staðfesti þann 10. september að fyrsta tilfellið af afrísku svínapestinni (ASF) hafi fundist í landinu. Þá hafði fundist hræ af smituðum villigelti í rík- inu Brandenburg í austurhluta Þýskalands. Þann 23. september höfðu fundist 32 smituð villisvín í Þýskalandi og voru staðfest smit orðin 46 þann 7. október. Illa virðist ganga hjá yfirvöldum að hefta útbreiðslu sjúkdómsins. Þjóðverjar líta málið mjög alvar- legum augum, enda hefur svína- pestin leikið svínarækt í mörg- um ríkjum grátt. Þó hvergi eins illa og í Kína þar sem hollenski bankinn Robobank hefur áætlað að meira en 40% af 360 millj- óna dýra svínastofni hafi drepist. Svínapestarvírusinn hefur nú fund- ist í 10 Evrópulöndum. Skammt frá pólsku landamærunum Hræið af smitaða villigeltinum sem fyrst fannst í Þýskalandi var í 6 km fjarlægð frá pólsku landa- mærunum og í um 30 km fjarlægð frá þeim stað sem slíkt smit var síðast staðfest í Póllandi. Sýni úr hræinu var tekið til rannsóknar hjá rannsóknastofu Loeffler- stofnunarinnar í Þýskalandi sem staðfesti að um afrísku svínapestina (AFS) væri að ræða. Engin lyf eru enn til við þessum mjög svo smitandi sjúkdómi sem er með 100% dánartíðni. Hann dregur svín nær undantekningarlaust til dauða á innan við sjö dögum. Þjóðverjar að missa tökin á svínapestinni Síðustu fréttir af útbreiðslu afrísku svínapestarinnar í Þýskalandi eru taldar alvarlegt bakslag fyrir þýska svínaframleiðendur og sláturiðnað- inn. Þar með einnig fyrir dönsku svínaframleiðendurna sem senda smágrísi til Þýskalands eða eiga á annan hátt viðskipti við kollega í suðri. Nýjustu tíðindi af útbreiðslu pestarinnar sýna að þýsk yfirvöld hafa ekki stjórn á málinu og eykur þetta verulega áhyggjur af frek- ari útbreiðslu. Alls hefur nú verið staðfest að 38 villisvín eru smituð af afrísku svínapestinni og óttast menn nú að pestin sé búin að herja á svín á svæðinu mun lengur en talið var. Á hinn bóginn eru enn engar fregnir af faraldri í eldisdýrum í Þýskalandi. Varaði við andvaraleysi Stig Mellergaard, aðalráðgjafi um dýraheilbrigði hjá dönsku dýra- læknis- og matvælastofnuninni, hafði áður varað við andvaraleysi Þjóðverja eftir að smit hafði greinst í svínum Póllandsmegin við landa- mærin. Sagði hann þá að þegar menn uppgötvuðu svona sjúkdóm væri líklegt að hann hafi þegar verið á svæðinu í einn til tvo mánuði. Auk þess hefur verið bent á að smit hafi getað borist á önnur svæði með skrokkum villisvína sem veiðimenn hafi verið að skjóta. Eftirlit hefur nú verið hert með villisvínaveiðum á smituðum svæðum. Smit hefur borist minnst 80 km á tíu dögum Nú hafa smituð villisvín fundist í norðurhluta Bleyen, eða í um 80 kílómetra fjarlægð frá þeim stað sem fyrsta smitið fannst. Hafa þýsk yfirvöld þannig fengið enn stærra svæði til að fylgjast með smiti. Bráðabirgðatilkynningar benda til þess að setja eigi upp raf- magnsgirðingar á Bleyensvæðinu, rétt eins og komið var fyrir í Neuzelle. Þjóðverjar gerðu sér vonir um að kínversk yfirvöld myndu sam- þykkja að kaupa áfram svínakjöt af svæðum utan skilgreindra sýk- ingarsvæða, en þær vonir virðast orðnar að engu. Tugum þúsunda eldissvína slátrað í Póllandi Í Póllandi heldur svínapestin áfram að breiðast út og tölur í síðustu viku sýna að slátra þurfi 846 eldissvínum í Mið-Póllandi. Hafa nú tæplega 100 hjarðir orðið fyrir áhrifum pestarinnar síðan í janúar, samkvæmt frétt þýska fjölmiðilsins Fleischwirtschaft. Vegna þessa hefur 56.800 inn- lendum eldissvínum verið slátrað til að reyna að hemja útbreiðslu sýkinnar. Þjóðverjar langstærstu svínakjötsframleiðendur í Evrópu Þýskaland er langstærsti svínakjöts- framleiðandinn í Evrópu. Áætlað er að svínakjötsframleiðsla Þjóðverja á árinu 2020 muni nema um 5,2 millj- ónum tonna, sem er örlitlu minna en á síðasta ári. Um 50 þúsund tonn á mánuði til Kína Þýskaland er stærsti útflytjandi í álfunni á svínakjöti til Kína. Hafa Þjóðverjar flutt þangað yfir 50.000 tonn af svínakjöti á mánuði sam- kvæmt frétt á vef National Hog Farmer í lok september. Þá er þýskt svínakjöt um 14% af öllu svínakjöti sem flutt er inn til Kína. Þýskaland er fjórði stærsti svínakjötsútflytjandi í heimi á efir Bandaríkjunum, Spáni, og Kanada, með yfir 9% hlutdeild á útflutningsmarkaði. Helstu kaupendur banna svínakjötsinnflutning frá Þýskalandi Fréttin af svínapestinni í Þýskalandi hafði strax þau áhrif 11. september að bæði Suður-Kórea og Japan settu bann á innflutningi á svínakjöti frá Þýskalandi. Á árinu 2019 fluttu Japanir inn yfir 40 þúsund tonn af svínakjöti frá Þýskalandi. Í kjölfarið bönnuðu yfirvöld í Kína, Brasilíu, Argentínu, Mexíkó og á Filippseyjum líka innflutning á svínakjöti frá Þýskalandi. Samtök bænda gagnrýna seinagang yfirvalda Samtök bænda í Þýskalandi (Deutscher Bauerverband - DBV) hafa kallað eftir því að yfirvöld kæmu upp villisvínalausu belti meðfram pólsku landamærunum. Hafa samtökin harð- lega gagnrýnt yfirvöld í Brandenburg fyrir skilningsleysi á málinu. Haft er eftir Bernhard Krüsken, for- manni samtakanna, að það hafi ná- kvæmlega enginn skilningur verið á málinu frá fyrsta degi. Viðbrögð hafi verið mjög sein og fjöldi við- bragðssveita væru að vinna að mál- inu hlið við hlið án nokkurrar sam- ræmingar. Landbúnaðarráðherrann, Julia Klöckner, reyndi að hughreysta bændur og sagði að þeir yrðu ekki skildir eftir með þennan vanda. Þar yrðu m.a. tekin upp úrræði varðandi geymslu á kjöti sem ekki yrði hægt að selja úr landi. Risabanki reynir að róa markaðinn Hollenski fjölþjóðabankinn Rabo- bank, sem er næststærsti banki Hollands, reyndi að hughreysta fjár- festa á hrávörumarkaði í fyrri viku með að langtímaáhrif á svínakjöts- markaðinn yrðu kannski ekki eins alvarleg og ætla mætti. Hljómaði það dálítið sérkennilega í ljósi innflutn- ingsbanns fjölda ríkja á svínakjöti frá Þýskalandi. Þá höfðu smit greinst á tveimur stöðum í ríkinu Brandenburg við landamærin að Póllandi, þ.e. í OderSpree og Spree-Neissde. Landbúnaðarráðuneyti Þýska lands setti af stað hæsta viðbúnaðarstig, enda talið erfitt að koma í veg fyrir útbreiðslu veikinnar í Þýskalandi með villtum svínum. Danir höfðu áður brugðist við með því að reisa sérstaka girðingu á landamærunum að þýskalandi sem á að koma í veg fyrir að villt svín frá Þýskalandi ráfi mögulega yfir landamærin. Búið er að koma upp tvöföldu kerfi rafmagnsgirðinga í kringum svæðin þar sem smit hafa fundist í Þýskalandi, en það virðist ekki hafa dugað. Þá hafa yfirvöld sett í gang leit að villisvínum í því augnamiði að reyna að komast að því hversu útbreidd svínapestin sé orðin. Er not- ast við hunda og þyrlur við leitina. Hundarnir hafa verið fluttir á svæðið frá Rínarhéraðinu Palatinate og frá Schleswig-Holstein. Eru þeir sérþjálf- aðir í að finna svínahræ en snerta þau ekki. /HKr Villisvínum hefur farið fjölgandi í Evrópu. Dýr sem smitast af afrísku svína- pestinni geta m.a. borið smit í fóður á ökrum sem síðan ratar inn í svínabú. Mynd / Eruonews Verið er að koma upp um 120 km löngum rafmagnsgirðingum til að hefta för villisvína í Þýskalandi og útbreiðslu á afrísku svínapestinni. Margar þjóðir hafa orðið illa fyrir barðinu á svínapestinni, en þessi mynd er frá Rússlandi. Í umfjöllun um afurðaverð til sauðfjárbænda á blaðsíðu 4 í síð- asta blaði slæddust inn nokkrar villur í töflu sem þar fylgdi. Þar kom fram að reiknað landsmeðal afurðaverðs væri 444 krónur á kíló dilka, en það var hins vegar 502 krónur. Síðan hefur Norðlenska hækkað hjá sér afurðaverð fyrir dilkakjöt um 2,2 prósent á kílóið þannig að landsmeðaltal stendur nú í 504 krónum. Þá var hækkunin á afurðaverði fyrir fullorðið hjá KS og SKVH sögð vera 18,5 prósent frá síðasta ári, en hið rétta er að verðið er það sama á milli sláturtíða. Verð hjá Fjallalambi fyrir full- orðið á að vera 111 krónur á kíló- ið, en ekki 122 krónur, og breyting Fjallalambs er því lækkun um 8,6 prósent en ekki hækkun um 8,6 prósent eins fram kom í töflunni í síðasta blaði. /smh Breytingar frá 2019 Sláturleyfishafi Lömb Fullorðið SS 8,5% -2% NL 6,4% 0% SAH 9% 0% KS og SKVH 6% 0% Fjallalamb 5,7% -8,6% SV 8,5% 0% Landsmeðaltal 7,1% -0,83% Verð 2020 Sláturleyfishafi Lömb Fullorðið SS 505 kr. 121 kr. NL 490 kr. 111 kr. SAH 503 kr. 114 kr. KS og SKVH 508 kr. 139 kr. Fjallalamb 483 kr. 111 kr. SV 507 kr. 117 kr. Landsmeðaltal 502 kr. 124 kr. Afurðaverð til sauðfjárbænda – Leiðréttingar GÆÐADEKKIN ÞÍN FÁST ÓDÝRARI HJÁ OKKUR! SENDUM HVERT Á LAND SEM ER NOTAÐU AFSLÁTTARKÓÐANN: BONDI Funahöfða 6, 110 Reykjavík • Njarðarbraut 11, 260 Reykjanesbær Sími: 519-1516 • WWW.DEKK1.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.