Bændablaðið - 08.10.2020, Page 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202010
FRÉTTIR
Svínapest innan landamæra Þýskalands breiðist hratt út – Yfirvöld sökuð um seinagang:
Stórútflutningur Þjóðverja á svínakjöti í uppnámi
– Sjö stærstu ríkin í kaupum á þýsku svínakjöti banna innflutning og Matvælastofnun á Íslandi er með málið í skoðun
Julia Klöckner, landbúnaðarráð-
herra Þýskalands, staðfesti þann
10. september að fyrsta tilfellið af
afrísku svínapestinni (ASF) hafi
fundist í landinu. Þá hafði fundist
hræ af smituðum villigelti í rík-
inu Brandenburg í austurhluta
Þýskalands. Þann 23. september
höfðu fundist 32 smituð villisvín
í Þýskalandi og voru staðfest smit
orðin 46 þann 7. október. Illa
virðist ganga hjá yfirvöldum að
hefta útbreiðslu sjúkdómsins.
Þjóðverjar líta málið mjög alvar-
legum augum, enda hefur svína-
pestin leikið svínarækt í mörg-
um ríkjum grátt. Þó hvergi eins
illa og í Kína þar sem hollenski
bankinn Robobank hefur áætlað
að meira en 40% af 360 millj-
óna dýra svínastofni hafi drepist.
Svínapestarvírusinn hefur nú fund-
ist í 10 Evrópulöndum.
Skammt frá pólsku
landamærunum
Hræið af smitaða villigeltinum
sem fyrst fannst í Þýskalandi var
í 6 km fjarlægð frá pólsku landa-
mærunum og í um 30 km
fjarlægð frá þeim stað sem
slíkt smit var síðast staðfest
í Póllandi. Sýni úr hræinu
var tekið til rannsóknar hjá
rannsóknastofu Loeffler-
stofnunarinnar í Þýskalandi
sem staðfesti að um afrísku
svínapestina (AFS) væri að
ræða. Engin lyf eru enn til
við þessum mjög svo smitandi
sjúkdómi sem er með 100%
dánartíðni. Hann dregur svín
nær undantekningarlaust til
dauða á innan við sjö dögum.
Þjóðverjar að missa
tökin á svínapestinni
Síðustu fréttir af útbreiðslu afrísku
svínapestarinnar í Þýskalandi eru
taldar alvarlegt bakslag fyrir þýska
svínaframleiðendur og sláturiðnað-
inn. Þar með einnig fyrir dönsku
svínaframleiðendurna sem senda
smágrísi til Þýskalands eða eiga á
annan hátt viðskipti við kollega í
suðri.
Nýjustu tíðindi af útbreiðslu
pestarinnar sýna að þýsk yfirvöld
hafa ekki stjórn á málinu og eykur
þetta verulega áhyggjur af frek-
ari útbreiðslu. Alls hefur nú verið
staðfest að 38 villisvín eru smituð
af afrísku svínapestinni og óttast
menn nú að pestin sé búin að herja á
svín á svæðinu mun lengur en talið
var. Á hinn bóginn eru enn engar
fregnir af faraldri í eldisdýrum í
Þýskalandi.
Varaði við andvaraleysi
Stig Mellergaard, aðalráðgjafi um
dýraheilbrigði hjá dönsku dýra-
læknis- og matvælastofnuninni,
hafði áður varað við andvaraleysi
Þjóðverja eftir að smit hafði greinst
í svínum Póllandsmegin við landa-
mærin. Sagði hann þá að þegar
menn uppgötvuðu svona sjúkdóm
væri líklegt að hann hafi þegar verið
á svæðinu í einn til tvo mánuði. Auk
þess hefur verið bent á að smit hafi
getað borist á önnur svæði með
skrokkum villisvína sem veiðimenn
hafi verið að skjóta. Eftirlit hefur nú
verið hert með villisvínaveiðum á
smituðum svæðum.
Smit hefur borist
minnst 80 km á tíu dögum
Nú hafa smituð villisvín fundist í
norðurhluta Bleyen, eða í um 80
kílómetra fjarlægð frá þeim stað
sem fyrsta smitið fannst. Hafa
þýsk yfirvöld þannig fengið enn
stærra svæði til að fylgjast með
smiti. Bráðabirgðatilkynningar
benda til þess að setja eigi upp raf-
magnsgirðingar á Bleyensvæðinu,
rétt eins og komið var fyrir í
Neuzelle.
Þjóðverjar gerðu sér vonir um
að kínversk yfirvöld myndu sam-
þykkja að kaupa áfram svínakjöt
af svæðum utan skilgreindra sýk-
ingarsvæða, en þær vonir virðast
orðnar að engu.
Tugum þúsunda eldissvína
slátrað í Póllandi
Í Póllandi heldur svínapestin
áfram að breiðast út og tölur í
síðustu viku sýna að slátra þurfi
846 eldissvínum í Mið-Póllandi.
Hafa nú tæplega 100 hjarðir orðið
fyrir áhrifum pestarinnar síðan í
janúar, samkvæmt frétt þýska
fjölmiðilsins Fleischwirtschaft.
Vegna þessa hefur 56.800 inn-
lendum eldissvínum verið slátrað
til að reyna að hemja útbreiðslu
sýkinnar.
Þjóðverjar langstærstu
svínakjötsframleiðendur í
Evrópu
Þýskaland er langstærsti svínakjöts-
framleiðandinn í Evrópu. Áætlað er
að svínakjötsframleiðsla Þjóðverja á
árinu 2020 muni nema um 5,2 millj-
ónum tonna, sem er örlitlu minna en
á síðasta ári.
Um 50 þúsund tonn
á mánuði til Kína
Þýskaland er stærsti útflytjandi í
álfunni á svínakjöti til Kína. Hafa
Þjóðverjar flutt þangað yfir 50.000
tonn af svínakjöti á mánuði sam-
kvæmt frétt á vef National Hog
Farmer í lok september. Þá er þýskt
svínakjöt um 14% af öllu svínakjöti
sem flutt er inn til Kína. Þýskaland
er fjórði stærsti svínakjötsútflytjandi
í heimi á efir Bandaríkjunum, Spáni,
og Kanada, með yfir 9% hlutdeild á
útflutningsmarkaði.
Helstu kaupendur banna
svínakjötsinnflutning frá
Þýskalandi
Fréttin af svínapestinni í Þýskalandi
hafði strax þau áhrif 11. september
að bæði Suður-Kórea og Japan settu
bann á innflutningi á svínakjöti frá
Þýskalandi. Á árinu 2019 fluttu
Japanir inn yfir 40 þúsund tonn af
svínakjöti frá Þýskalandi. Í kjölfarið
bönnuðu yfirvöld í Kína, Brasilíu,
Argentínu, Mexíkó og á Filippseyjum
líka innflutning á svínakjöti frá
Þýskalandi.
Samtök bænda gagnrýna
seinagang yfirvalda
Samtök bænda í Þýskalandi
(Deutscher Bauerverband - DBV) hafa
kallað eftir því að yfirvöld kæmu upp
villisvínalausu belti meðfram pólsku
landamærunum. Hafa samtökin harð-
lega gagnrýnt yfirvöld í Brandenburg
fyrir skilningsleysi á málinu. Haft
er eftir Bernhard Krüsken, for-
manni samtakanna, að það hafi ná-
kvæmlega enginn skilningur verið
á málinu frá fyrsta degi. Viðbrögð
hafi verið mjög sein og fjöldi við-
bragðssveita væru að vinna að mál-
inu hlið við hlið án nokkurrar sam-
ræmingar. Landbúnaðarráðherrann,
Julia Klöckner, reyndi að hughreysta
bændur og sagði að þeir yrðu ekki
skildir eftir með þennan vanda. Þar
yrðu m.a. tekin upp úrræði varðandi
geymslu á kjöti sem ekki yrði hægt
að selja úr landi.
Risabanki reynir að róa
markaðinn
Hollenski fjölþjóðabankinn Rabo-
bank, sem er næststærsti banki
Hollands, reyndi að hughreysta fjár-
festa á hrávörumarkaði í fyrri viku
með að langtímaáhrif á svínakjöts-
markaðinn yrðu kannski ekki eins
alvarleg og ætla mætti. Hljómaði það
dálítið sérkennilega í ljósi innflutn-
ingsbanns fjölda ríkja á svínakjöti frá
Þýskalandi. Þá höfðu smit greinst á
tveimur stöðum í ríkinu Brandenburg
við landamærin að Póllandi, þ.e. í
OderSpree og Spree-Neissde.
Landbúnaðarráðuneyti Þýska lands
setti af stað hæsta viðbúnaðarstig,
enda talið erfitt að koma í veg fyrir
útbreiðslu veikinnar í Þýskalandi
með villtum svínum. Danir höfðu
áður brugðist við með því að reisa
sérstaka girðingu á landamærunum
að þýskalandi sem á að koma í veg
fyrir að villt svín frá Þýskalandi ráfi
mögulega yfir landamærin.
Búið er að koma upp tvöföldu
kerfi rafmagnsgirðinga í kringum
svæðin þar sem smit hafa fundist í
Þýskalandi, en það virðist ekki hafa
dugað. Þá hafa yfirvöld sett í gang
leit að villisvínum í því augnamiði
að reyna að komast að því hversu
útbreidd svínapestin sé orðin. Er not-
ast við hunda og þyrlur við leitina.
Hundarnir hafa verið fluttir á svæðið
frá Rínarhéraðinu Palatinate og frá
Schleswig-Holstein. Eru þeir sérþjálf-
aðir í að finna svínahræ en snerta þau
ekki. /HKr
Villisvínum hefur farið fjölgandi í Evrópu. Dýr sem smitast af afrísku svína-
pestinni geta m.a. borið smit í fóður á ökrum sem síðan ratar inn í svínabú.
Mynd / Eruonews
Verið er að koma upp um 120 km
löngum rafmagnsgirðingum til að
hefta för villisvína í Þýskalandi og
útbreiðslu á afrísku svínapestinni.
Margar þjóðir hafa orðið illa fyrir barðinu á svínapestinni, en þessi mynd
er frá Rússlandi.
Í umfjöllun um afurðaverð til
sauðfjárbænda á blaðsíðu 4 í síð-
asta blaði slæddust inn nokkrar
villur í töflu sem þar fylgdi. Þar
kom fram að reiknað landsmeðal
afurðaverðs væri 444 krónur á kíló
dilka, en það var hins vegar 502
krónur. Síðan hefur Norðlenska
hækkað hjá sér afurðaverð fyrir
dilkakjöt um 2,2 prósent á kílóið
þannig að landsmeðaltal stendur
nú í 504 krónum.
Þá var hækkunin á afurðaverði
fyrir fullorðið hjá KS og SKVH
sögð vera 18,5 prósent frá síðasta
ári, en hið rétta er að verðið er það
sama á milli sláturtíða.
Verð hjá Fjallalambi fyrir full-
orðið á að vera 111 krónur á kíló-
ið, en ekki 122 krónur, og breyting
Fjallalambs er því lækkun um 8,6
prósent en ekki hækkun um 8,6
prósent eins fram kom í töflunni í
síðasta blaði. /smh
Breytingar frá 2019
Sláturleyfishafi Lömb Fullorðið
SS 8,5% -2%
NL 6,4% 0%
SAH 9% 0%
KS og SKVH 6% 0%
Fjallalamb 5,7% -8,6%
SV 8,5% 0%
Landsmeðaltal 7,1% -0,83%
Verð 2020
Sláturleyfishafi Lömb Fullorðið
SS 505 kr. 121 kr.
NL 490 kr. 111 kr.
SAH 503 kr. 114 kr.
KS og SKVH 508 kr. 139 kr.
Fjallalamb 483 kr. 111 kr.
SV 507 kr. 117 kr.
Landsmeðaltal 502 kr. 124 kr.
Afurðaverð til sauðfjárbænda – Leiðréttingar
GÆÐADEKKIN ÞÍN
FÁST ÓDÝRARI
HJÁ OKKUR!
SENDUM HVERT Á LAND SEM ER
NOTAÐU AFSLÁTTARKÓÐANN: BONDI
Funahöfða 6, 110 Reykjavík • Njarðarbraut 11, 260 Reykjanesbær
Sími: 519-1516 • WWW.DEKK1.IS