Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202026
Hönnuðirnir Sonja Bent og Elín
Hrund Þorgeirsdóttir reka fyrir-
tækið Nordic angan sem framleið-
ir vörur úr ilmkjarnaolíum sem
eimaðar hafa verið úr íslensk-
um jurtum og trjám. Þær hófu
tilraunastarfsemi fyrir rúmum
þremur árum og er nú rannsókn-
ar- og þróunarverkefnið þeirra,
Ilmbanki íslenskra jurta, orðið að
vörulínu ásamt sýningu á vinnu-
stofu þeirra í Álafosskvosinni í
Mosfellsbæ.
„Ég hef sagt að þetta hafi verið
svona mitt „happí hobbí“ í byrjun og
þetta kviknaði eiginlega út frá blóð
bergi. Maður þekkir ekki þessa lykt
af blóðberginu sem er mjög sérstök
og þess vegna var alveg geggjað að
ná henni, að fanga lyktina. Pabbi
minn, Þórir Bent Sigurðsson, hafði
lært að eima á námsárum sínum í
Noregi þannig að hann hafði grunn
og ég byrjaði að leita mér upplýsinga.
Við breyttum gömlu brugggræjunum
hans og eftir nokkrar tilraunir gat
ég ekki stoppað. Ég var úti um allar
koppagrundir að lykta af öllu og lét
Elínu vita af þessu en við þekktumst
í gegnum hönnunargeirann sem end
aði með að við fórum í samstarf,“
segir Sonja.
Gamlir mjólkurtankar
frá bændum
Jóhannesi Bjarna Eðvarðssyni,
frænda Sonju, leist svo vel á hug
myndina að hann kom inn í fyrir
tækið með þeim stöllum og standsetti
húsnæði fyrir þær í Álafosskvosinni
í Mosfellsbæ. Einnig hefur hann
hjálpað þeim að nálgast mjólkur
tanka og hráefni fyrir vinnsluna.
„Fljótlega urðum við að kaupa
alls kyns tilraunatæki og auglýst
um meðal annars í Bændablaðinu
eftir gömlum mjólkurtönkum því
við þurftum stærri tæki fyrir trjáein
ingar til eimunar. Við fengum mjög
góð viðbrögð við auglýsingunni því
gamlir tankar liggja víða uppi í sveit
og það kostar að farga þeim. Því
voru þeir bændur sem við keyptum
af himinsælir með að við vildum
kaupa slíka tanka. Það var svolítið
skemmtilegt hvað bændunum þótti
vænt um tankana sem búnir eru til úr
sænsku gæðastáli. Við fengum einn
á Kópaskeri og þar þurfti að taka
hurðina af fjósinu til að ná honum
út, svo það voru dálitlar æfingar,“
útskýrir Elín.
Árið 2017 fengu Sonja og Elín
aðstöðu í Hönnunarsafni Íslands þar
sem þær voru með lifandi vinnustofu
og fyrstu vörurnar litu dagsins ljós.
„Við fengum gríðarlega athygli
og vorum hvattar til að sækja um
styrki til að fara með hugmyndina
lengra. Þannig að við fórum út í þá
vinnu og fengum nokkra styrki frá
Tækniþróunarsjóði, Hönnunarsjóði,
Mosfellsbæ og Atvinnuþróunarsjóði
kvenna sem var algjör grundvöllur
fyrir okkur til að halda áfram að gera
tilraunir og þróa vörur,“ segir Sonja.
Fjölbreytt eimingarferli
Það sem byrjaði sem rannsóknarverk
efni hjá hönnuðunum fór nú yfir á
næsta stig og fengu þær aðstoð efna
og lyfjafræðinga á því sem þær gátu
ekki sjálfar leyst.
„Það er ekki hefð fyrir eimingu
á Íslandi og við þurftum að finna út
úr alls kyns þáttum við að ná ilm
kjarnaolíum út úr mismunandi jurt
um og trjám. Við þurftum að finna
út hvenær sé best að tína og hvaða
hluta plöntunnar er best að nýta. Það
eru til dæmis margar jurtir hér sem
engum hefur dottið í hug að eima og
því þurftum við að fara okkar leið í
að vinna þær,“ segir Sonja og Elín
bætir við:
„Manni mistekst oft í þessu ferli
og fær enga olíu og enga lykt og
verður þá pirraður yfir því en síðan
í næsta skrefi fær maður frábæra
LÍF&STARF
Easy Swing gripaburstar
fyrir velferð dýranna
Í samstarfi við Finneasy í
Finnlandi býður BYKO nú upp
á Easy Swing gripabursta af
ýmsum stærðum án mótora.
Burstarnir henta gripum allt frá
ungum kálfum upp í fullorðin
naut. Burstarnir eru smíðaðir
með mikið álag í huga. Easy
Swing gripaburstarnir eru
auðveldir í uppsetningu og kosta
mun minna en rafmagnsdrifnir
kúaburstar.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
byko.is
GRIPABURSTAR
angan
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
Á Hönnunarmars í fyrra frumsýndu þær stöllur ilmsturtuna sem vakti verð-
skuldaða athygli þar sem fólk baðar sig í íslenskum ilmkjarnaolíum. Há-
tíðnihljóðbylgjur brjóta olíurnar niður í öragnir en þannig eiga þær greiðari
leið inn í líkamann. Ilmkjarnaolíurnar berast að öndunarfærunum sem köld
þurrgufa. Mynd / og Sigtryggur Ari Jóhannsson
Hönnuðirnir Sonja Bent og Elín Hrund Þorgeirsdóttir eima íslenskar jurtir og tré til framleiðslu á ilmkjarnaolíum
undir merkinu Nordic angan. Mynd / ehg
Á sýningunni Ilmbanki íslenskra jurta í Álafosskvosinni geta gestir lyktað
sig áfram um íslenska náttúru í orðsins fyllstu merkingu.
Mynd / og Sigtryggur Ari Jóhannsson
Allar ilmmyndirnar á sýningunni
Ilmbanki íslenskra jurta eru ilmvötn
sem fanga stemningu og augnablik
í gegnum texta og lykt.