Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020 51
smiðjan Glommen Mjøsen. Þar á bæ
fellur auðvitað mikið til af allskonar
úrgangi frá vinnslunni og feðgarnir
hafa alltaf horft á þennan úrgang
sem vannýtta auðlind en hinsvegar
átt erfitt með að finna almennileg
not fyrir hann. Fyrir nærri 30 árum
fóru þeir að gera fyrstu tilraunir
sem gengu út á það að reyna að ná
plöntusykrinum út úr saginu með
einhverjum hætti en það var þó ekki
fyrr en með sérstöku verkefni sem
hófst árið 2012 að almennilega gekk
að vinna að tæknilegum lausnum.
Það tók þó nokkur ár í viðbót að þróa
aðferð sem gekk upp og gat dregið
sykrurnar úr trjákurlinu en það tókst
og nú hafa feðgarnir fengið einkaleyfi
fyrir hugmynd sinni en afurðina kalla
þeir „Skógarmelassa“.
Nota engin aukaefni
Sag inniheldur 40-45% af cellulósa
og 25-30% af hemícellulósa auk
annarra efna en vegna hins mikla
magns af hemícellulósa er hráefnið
afar áhugavert fyrir frekari vinnslu.
Tæknin sem þeir feðgar nota byggir
ekki á neinum viðbótarefnum heldur
einfaldlega er hráefnið látið fara í
gegnum mismunandi ferla, m.a. með
atnsrofi og síðar eimun. Út úr þeirri
vinnslu verður til einskonar leðja
sem svo er síuð með sérstökum að-
ferðum sem hafa verið þróaðar fyrir
olíuvinnslu. Lokaafurðin er svo
kögglaður skógarmelassi með u.þ.b.
60 sykurinnihald! Það sem er síað
frá í vinnslunni og nýtist ekki sem
skógarmelassi fer einnig til kögglunar
og henta þeir vel til brennslu t.d. hús-
hitunar. Eini úrgangur framleiðsl-
unnar er í raun hreint vatn!
Byggja verskmiðju
fyrir 1,5 milljarða
Nú hefur þeim feðgum tekist að fá
fagfjárfesta að verkefninu og er verið
að byggja upp stóra verksmiðju, fyrir
um 1,5 milljarða íslenskra króna,
sem mun framleiða skógarmelassa
fyrir norska markaðinn í framtíð-
inni og það á samkeppnishæfu verði
að sögn feðganna. Framleiðslugeta
verksmiðjunnar verður í fyrstu 100
þúsund rúmmetrar af sagi en úr því
magni má vinna um 15 þúsund tonn
af skógarmelassa eða um 25% af inn-
flutningnum. Verksmiðjan er staðsett
við hlið timburvinnslu svo hráefnið
er tryggt og mun vinnslan keyra
allan sólarhringinn. Síðan er stefnt
að því að byggja fleiri verksmiðjur á
stöðum þar sem hráefnið fellur til og
þannig byggja upp næga framleiðslu
á skógarmelassa svo innflutningur
verði óþarfur.
Hentar sérstaklega vel sem fóður
Skógarmelassinn inniheldur eins og
áður segir um 60% sykur og þessi
sykur er samsettur af nokkrum
megingerðum sykra eins og þrúgu-
sykurs (glúkósa), galaktósa, xylósa
og mannósa og um 50% sykursins
er mannósi. Þar sem hátt hlutfall af
þessum sykri skógarmelassa eru stór-
sameindir brotnar hann hægt niður
sem er afar heppilegt sé hann gefinn
jórturdýrum sem fá kjarnfóður.
Nú þegar hafa verið gerðar fóð-
urtilraunir á nautgripum þar sem
búið var að skipta út hefðbundnum
melassa með þessum skógarmelassa
í því kjarnfóðri sem gripirnir fengu.
Niðurstöðurnar sýndu að kjarnfóðrið
var einkar lystugt og var átgetan góð
hjá gripunum.
Skógarmelassa má einnig nýta í
fóður svína en þó með aðeins breyttu
sniði þar sem svín eru einmaga dýr
og þurfa aðra samsetningu fóðursins.
Þá má, fræðilega séð amk., nýta
skógarmelassann sem grunnhráefni
til próteingerðar með því að nota
örverur til framleiðslunnar. Í fyrstu
er þó markmiðið að framleiða nóg
fyrir heimamarkaðsþörfina á melassa.
Þýtt og endursagt með leyfi höf-
undar úr Buskap 1/2020
DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR Í SÍMA 540 4900
Arctic Trucks Ísland ehf Kletthálsi 3 110 Reykjavík
Sími: 540 4900 Netfang: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is
Vönduð amerísk jeppadekk sem henta
frábærlega fyrir íslenskar aðstæður.
Stærðir 29 - 44”.
KANNAÐU ÚRVALIÐ! VERSLUN.ARCTICTRUCKS.IS
Framleiðsluferlið. Mynd / Glommen Technology AS
Hratið frá framleiðslunni á melass-
anum nýtist vel til brennslu eftir að
það hefur verið kögglað.
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Gleraugu með
glampa- og rispuvörn
Verð 19.900 kr
Sérsmíðum samdægurs í styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0.
Framkvæmdastjóri Selasetur Íslands
Laus er staða framkvæmdarstjóra við Selasetur Íslands. Um er að ræða fullt
starf í eitt ár með möguleika á framlengingu. Selasetur Íslands var stofnað árið
2005 og hlutverk þess er að standa fyrir rannsóknum á selum og náttúrutengdri
ferðaþjónustu. Megin markmið setursins er að efla náttúrutengda ferðaþjónustu
í Húnaþingi vestra, vinna að eflingu selaskoðunar á svæðinu og standa fyrir fjöl-
breyttum rannsóknum, fræðslu og upplýsingamiðlun um seli við Ísland. Starfsstöð
framkvæmdastjóra er á Hvammstanga sem er fjölskylduvænt samfélag.
Í starfinu felst:
• Stefnumótun og stjórnun Selaseturs Íslands
• Öflun rannsóknastyrkja og framkvæmd verkefna á fræðasviðum setursins
• Uppbyggingu náttúru- og menningartengdrar ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra
• Móttaka gesta og miðlun þekkingar
• Rekstrar- og fjármálastjórnun setursins
Við leitum að einstaklingi með:
• Meistarapróf á fræðasviði sem nýtist til uppbyggingar starfsemi Selaseturs Íslands
en doktorsmenntun er æskileg
• Reynslu af stjórnun, rannsóknum og þróunarstarfi
• Leiðtogahæfileika, ábyrgð, frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum
Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. janúar 2021 og er krafist búsetu í Húnaþingi
vestra. Umsóknir berist fyrir 1. nóvember 2020 ásamt afritum af prófskírteinum,
ferilskrá og nöfnum tveggja meðmælenda.
Umsóknir sendist til Guðmundar Jóhannessonar, gummijo@simnet.is
Bænda
bbl.is Facebook