Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 53

Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020 Í vikunni lækkaði Norðlenska verð fyrir nautgripi og varð þar með fjórði sláturleyfishafinn til þess að lækka verð til bænda undan- farinn mánuð en KS, SS og SAH höfðu áður tilkynnt lækkanir hjá sér. Fækkun ferðamanna í kjölfar COVID-19 hefur haft mikil áhrif á eftirspurn eftir nautakjöti en það er ekki einungis kófið sem naut- gripabændur kljást við heldur hefur tollaumhverfið tekið stór- kostlegum breytingum á stuttum tíma. Helstu staðreyndir um tollaumhverfið • Fyrir tíma COVID hafði fjöldi ferðamanna til landsins dregist saman en þrátt fyrir það aukast tollkvótar jafnt og þétt milli ára. Samdráttur milli 2018 og 2019 nam 14,1%. • Þrátt fyrir að nautakjötssala heilt yfir hafi dregist saman er meiri eftirspurn eftir tollkvótum en koma til úthlutunar. • Um næstu áramót verður tollkvóti fyrir nautakjöt frá Evrópusambandinu til Íslands búinn að sjöfaldast frá ársbyrjun 2018 og verður 696 tonn. • Á síðustu 2 árum hefur orðið um 75% verðlækkun á tollkvót- um frá ESB. • Nýjum úthlutunarreglum á toll- kvótum sem var beitt í fyrsta sinn í sumar leiddi til þess að verð tollkvóta fyrir nautakjöt lækkaði um 40% frá fyrri úthlutun og er nú aðeins einn fjórði af því verði sem það var í upphafi 2019. • Minnkuð eftirspurn og auknir tollkvótar á sama tíma skila sér í því að verðmyndandi áhrif innflutningsins aukast á innan- landsframleiðslu. • Ef fer sem horfir stefnir í að allt nautakjöt sem flutt er inn til landsins verði flutt inn á toll- kvótum sem sífellt hafa lækkað í verði og verði því enn ódýrara en nú er. Mikill árangur náðst undanfarin ár Uppgangur hefur verið í innlendri nautakjötsframleiðslunni á síðustu árum og mikið hefur verið lagt þar til bæði frá bændum og stjórnvöldum. Nýr kafli er rétt að hefjast með nýju Angus erfðaefni og möguleikar í holdakjötsframleiðslu spennandi. Flokkun nautgripakjöts hefur þokast uppá við og bændur hafa lagt metnað sinn í að bjóða upp á aukið úrval og betri vörur. Það er gott að geta boðið neytendum upp á heilnæma íslenska gæðavöru. Undanfarnar lækkanir sláturleyfishafa hafa því verið kjaftshögg fyrir greinina. Frá ársbyrjun 2018 hefur vísi- tala neysluverðs hækkað um 8,5% en á sama tíma hefur afurðaverð til bænda fyrir ungnautakjöt lækkað um rúmlega 10%. Verð á aðföngum til nautakjöts- framleiðslu hefur hækkað á síðustu árum og því er ljóst að verðlækkan- irnar nú skila sér í því að enn harðar er gengið á launalið bóndans. Nú hefur verið gengið svo langt að hvat- inn fyrir að halda uppi þeim góða árangri sem hefur náðst er að verða takmarkaður og einhverjir fara að hætta að sjá sér hag í því að fram- leiða nautakjöt. Þær ákvarðanir sem við tökum í dag hafa áhrif á nautakjötsmarkað- inn eftir 2–3 ár og við gætum mögu- lega horft fram á mikinn samdrátt í framleiðslu íslensks nautakjöts. Látum það ganga Í upphafi fyrstu COVID-bylgjunnar vaknaði mikil umræða um mikil- vægi fæðuöryggis í landinu, rétt eins og hafði gerst eftir hrun – og tilhneiging er til að gerist þegar á reynir – en vill svo gleymast með tímanum þegar fram líða stundir. Þá hefur einnig verið talað um mikilvægi þess að halda störfum í landinu og að vernda atvinnugreinar. Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, ásamt fjölmörgum samtökum, réð- ust af stað í átakið „Íslenskt – láttu það ganga“. Nú velti ég fyrir mér hvort að stjórnvöld ætli sér að gera eitthvað svo að íslensk nautakjöts- framleiðsla – fái að ganga. Sanngjarnt tollaumhverfi Stórkostlegar breytingar í tollaum- hverfi nautgripakjöts hafa komið greininni í mjög erfiða stöðu hvað varðar samkeppnishæfni hennar. Það sem er sérstaklega ömurlegt við þær breytingar er að þær voru gerðar á sama tíma og hvað mest uppbygging var fyrirséð í greininni. Lyft er undir með annarri hendi en togað allsvaka- lega niður með hinni. Það er skýrt hverjum þeim sem vill sjá að einhverju verður að breyta í tollaumhverfi greinarinnar. Við höfum lagt ríka áherslu á að tolla- samningur við Evrópusambandið verði hið minnsta endurskoðaður, ekki seinna en í gær. Áður en samn- ingurinn tók gildi mótmæltum við honum harðlega, enda er í honum samið um kíló á móti kílói, sem aug- ljóslega veldur því að áhrif samn- ingsins eru meiri á íslenskan mark- að en nokkurn tímann á evrópskan markað. Allt frá því hann tók svo gildi um mitt ár 2018 höfum við farið fram á endurskoðun enda ljóst frá upphafi hversu mikil neikvæð áhrif hann myndi hafa á íslenskan landbúnað. Aðstæður nautakjötsframleiðsl- unnar þurfa að verða lífvænlegri til þess að hér sé hægt að vernda bæði þann árangur sem náðst hefur undan- farin ár og þau fjölmörgu störf sem hafa skapast við greinina, það eru nefnilega ekki einungis bændur sem komu að því að koma nautasteik á disk landsmanna. Við erum stolt af okkar land- búnaði og teljum okkur standa vel þegar kemur að matvælaöryggi, en hvar viljum við standa þegar kemur að fæðuöryggi? Önnur ríki hafa brugðist við með að gefa í og styrkja innlenda matvælaframleiðslu enn frekar. Íslenska ríkið getur styrkt íslenskan landbúnað með því að búa honum bjóðandi tollaumhverfi. Ekki seinna, heldur núna! – Látum það ganga. Herdís Magna Gunnarsdóttir, Egilsstöðum, varaformaður Landssambands kúabænda KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is Eigum á lager nýja kynslóð af MultiOne EZ-7 liðléttingum sem eru 100% rafknúnir með góða endingu á rafhlöðunni. Frábær fjölnotavél með 1600 kg lyftigetu og möguleika á ýmsum aukahlutum. Vélarnar afhendast með skóflu og taðgreip. Hafðu samband við Ívar Atla í síma 590 5116 eða sendu línu á iab@klettur.is. Ný kynslóð 100% rafmagn! VALLARBRAUT EHF WWW.VALLARBRAUT.IS Trönuhrauni 5 Hafnarfirði S-4540050 26-50-75-90 hestöfl PERKINS 75-113 hestöfl 113 hö 6.400.000+vsk 75 hö 3.750.000+vsk 26 hö væntanleg Með tækjum 4.950.000+vsk Með tækjum 7.650.000+vsk LANDSSAMBAND KÚABÆNDA Hlúum að íslenskri nautakjötsframleiðslu Herdís Magna Gunnarsdóttir. „Við erum stolt af okkar landbúnaði og teljum okkur standa vel þegar kemur að matvælaöryggi, en hvar viljum við standa þegar kemur að fæðuöryggi?“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.