Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020
Í vikunni lækkaði Norðlenska verð
fyrir nautgripi og varð þar með
fjórði sláturleyfishafinn til þess
að lækka verð til bænda undan-
farinn mánuð en KS, SS og SAH
höfðu áður tilkynnt lækkanir hjá
sér. Fækkun ferðamanna í kjölfar
COVID-19 hefur haft mikil áhrif á
eftirspurn eftir nautakjöti en það
er ekki einungis kófið sem naut-
gripabændur kljást við heldur
hefur tollaumhverfið tekið stór-
kostlegum breytingum á stuttum
tíma.
Helstu staðreyndir um
tollaumhverfið
• Fyrir tíma COVID hafði fjöldi
ferðamanna til landsins dregist
saman en þrátt fyrir það aukast
tollkvótar jafnt og þétt milli ára.
Samdráttur milli 2018 og 2019
nam 14,1%.
• Þrátt fyrir að nautakjötssala
heilt yfir hafi dregist saman er
meiri eftirspurn eftir tollkvótum
en koma til úthlutunar.
• Um næstu áramót verður
tollkvóti fyrir nautakjöt frá
Evrópusambandinu til Íslands
búinn að sjöfaldast frá ársbyrjun
2018 og verður 696 tonn.
• Á síðustu 2 árum hefur orðið
um 75% verðlækkun á tollkvót-
um frá ESB.
• Nýjum úthlutunarreglum á toll-
kvótum sem var beitt í fyrsta
sinn í sumar leiddi til þess að
verð tollkvóta fyrir nautakjöt
lækkaði um 40% frá fyrri
úthlutun og er nú aðeins einn
fjórði af því verði sem það var
í upphafi 2019.
• Minnkuð eftirspurn og auknir
tollkvótar á sama tíma skila sér
í því að verðmyndandi áhrif
innflutningsins aukast á innan-
landsframleiðslu.
• Ef fer sem horfir stefnir í að
allt nautakjöt sem flutt er inn
til landsins verði flutt inn á toll-
kvótum sem sífellt hafa lækkað
í verði og verði því enn ódýrara
en nú er.
Mikill árangur náðst
undanfarin ár
Uppgangur hefur verið í innlendri
nautakjötsframleiðslunni á síðustu
árum og mikið hefur verið lagt þar til
bæði frá bændum og stjórnvöldum.
Nýr kafli er rétt að hefjast með nýju
Angus erfðaefni og möguleikar í
holdakjötsframleiðslu spennandi.
Flokkun nautgripakjöts hefur þokast
uppá við og bændur hafa lagt metnað
sinn í að bjóða upp á aukið úrval
og betri vörur. Það er gott að geta
boðið neytendum upp á heilnæma
íslenska gæðavöru. Undanfarnar
lækkanir sláturleyfishafa hafa því
verið kjaftshögg fyrir greinina.
Frá ársbyrjun 2018 hefur vísi-
tala neysluverðs hækkað um 8,5%
en á sama tíma hefur afurðaverð til
bænda fyrir ungnautakjöt lækkað um
rúmlega 10%.
Verð á aðföngum til nautakjöts-
framleiðslu hefur hækkað á síðustu
árum og því er ljóst að verðlækkan-
irnar nú skila sér í því að enn harðar
er gengið á launalið bóndans. Nú
hefur verið gengið svo langt að hvat-
inn fyrir að halda uppi þeim góða
árangri sem hefur náðst er að verða
takmarkaður og einhverjir fara að
hætta að sjá sér hag í því að fram-
leiða nautakjöt.
Þær ákvarðanir sem við tökum í
dag hafa áhrif á nautakjötsmarkað-
inn eftir 2–3 ár og við gætum mögu-
lega horft fram á mikinn samdrátt í
framleiðslu íslensks nautakjöts.
Látum það ganga
Í upphafi fyrstu COVID-bylgjunnar
vaknaði mikil umræða um mikil-
vægi fæðuöryggis í landinu, rétt
eins og hafði gerst eftir hrun – og
tilhneiging er til að gerist þegar á
reynir – en vill svo gleymast með
tímanum þegar fram líða stundir.
Þá hefur einnig verið talað um
mikilvægi þess að halda störfum í
landinu og að vernda atvinnugreinar.
Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið,
ásamt fjölmörgum samtökum, réð-
ust af stað í átakið „Íslenskt – láttu
það ganga“. Nú velti ég fyrir mér
hvort að stjórnvöld ætli sér að gera
eitthvað svo að íslensk nautakjöts-
framleiðsla – fái að ganga.
Sanngjarnt tollaumhverfi
Stórkostlegar breytingar í tollaum-
hverfi nautgripakjöts hafa komið
greininni í mjög erfiða stöðu hvað
varðar samkeppnishæfni hennar. Það
sem er sérstaklega ömurlegt við þær
breytingar er að þær voru gerðar á
sama tíma og hvað mest uppbygging
var fyrirséð í greininni. Lyft er undir
með annarri hendi en togað allsvaka-
lega niður með hinni.
Það er skýrt hverjum þeim sem
vill sjá að einhverju verður að breyta
í tollaumhverfi greinarinnar. Við
höfum lagt ríka áherslu á að tolla-
samningur við Evrópusambandið
verði hið minnsta endurskoðaður,
ekki seinna en í gær. Áður en samn-
ingurinn tók gildi mótmæltum við
honum harðlega, enda er í honum
samið um kíló á móti kílói, sem aug-
ljóslega veldur því að áhrif samn-
ingsins eru meiri á íslenskan mark-
að en nokkurn tímann á evrópskan
markað. Allt frá því hann tók svo
gildi um mitt ár 2018 höfum við
farið fram á endurskoðun enda ljóst
frá upphafi hversu mikil neikvæð
áhrif hann myndi hafa á íslenskan
landbúnað.
Aðstæður nautakjötsframleiðsl-
unnar þurfa að verða lífvænlegri til
þess að hér sé hægt að vernda bæði
þann árangur sem náðst hefur undan-
farin ár og þau fjölmörgu störf sem
hafa skapast við greinina, það eru
nefnilega ekki einungis bændur sem
komu að því að koma nautasteik á
disk landsmanna.
Við erum stolt af okkar land-
búnaði og teljum okkur standa vel
þegar kemur að matvælaöryggi,
en hvar viljum við standa þegar
kemur að fæðuöryggi? Önnur ríki
hafa brugðist við með að gefa í og
styrkja innlenda matvælaframleiðslu
enn frekar. Íslenska ríkið getur styrkt
íslenskan landbúnað með því að búa
honum bjóðandi tollaumhverfi. Ekki
seinna, heldur núna!
– Látum það ganga.
Herdís Magna Gunnarsdóttir,
Egilsstöðum,
varaformaður Landssambands
kúabænda
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Eigum á lager nýja kynslóð af MultiOne EZ-7
liðléttingum sem eru 100% rafknúnir með
góða endingu á rafhlöðunni.
Frábær fjölnotavél með 1600 kg lyftigetu
og möguleika á ýmsum aukahlutum.
Vélarnar afhendast með skóflu og taðgreip.
Hafðu samband við Ívar Atla í síma 590 5116
eða sendu línu á iab@klettur.is.
Ný kynslóð
100% rafmagn!
VALLARBRAUT EHF WWW.VALLARBRAUT.IS Trönuhrauni 5 Hafnarfirði S-4540050
26-50-75-90 hestöfl
PERKINS 75-113 hestöfl
113 hö 6.400.000+vsk
75 hö 3.750.000+vsk
26 hö væntanleg
Með tækjum 4.950.000+vsk
Með tækjum 7.650.000+vsk
LANDSSAMBAND KÚABÆNDA
Hlúum að íslenskri nautakjötsframleiðslu
Herdís Magna Gunnarsdóttir.
„Við erum stolt af okkar landbúnaði og teljum okkur standa vel þegar kemur að matvælaöryggi, en hvar viljum við
standa þegar kemur að fæðuöryggi?“