Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202036 LÍF&STARF Það er einstaklega gaman að heimsækja ábúendur á bænum Lambhaga á Rangárvöllum í Rangárþingi ytra því þar er allt svo snyrtilegt, vel hugsað um skepnurnar og mikill hugur í bændunum á bænum þrátt fyrir að það séu blikur á lofti í landbúnaði með auknum innflutningi og lækk- unum á afurðaverði. Þá eru mörg börn á hlaðinu, sem eru dugleg að taka þátt í búrekstrinum og stunda ýmsar tómstundir samhliða því að vera í skóla. Margrét Harpa Guðsteinsdóttir og Ómar Helgason settust niður með blaðamanni og svöruðu nokkrum laufléttum spurningum. – En byrjum á byrjuninni, hver er saga bæjarins, hvernig jörð er þetta, hverjir búa þar í dag og hvers konar búskapur er stundaður á bænum? „Já, þú segir nokkuð,“ segir Ómar. Helgi Jónsson (f. 6. júlí 1943, d. 7. apríl 1993) og Sjöfn Guðmundsdóttir keyptu Lambhaga vorið 1970 og hófu þar búskap með 21 nautgrip og 28 ær við bágbor­ inn húsakost. Helgi og Sjöfn eign­ uðust 6 börn og búa nú tveir synir þeirra í Lambhaga ásamt fjölskyld­ um okkar og móður og rekum við í sameiningu Lambhagabúið ehf. Í Lambhaga eru þrjú íbúðarhús og gripahús fyrir bústofninn,“ segir Ómar. Í Lambhaga er rekið blandað bú með áherslu á mjólkurframleiðslu og nautakjötsframleiðslu. Bústofn telur nú um 530 nautgripi, þar af 110 mjólkurkýr og 75 holdakýr, 85 ær, 10 hænur, hundana Týru og Perlu og nokkra ketti. Ómar segir að jörðin sé um 450 hektarar, þar af um 280 hektarar ræktað land og er hluti af því nýttur til beitar. „Um 1970 var jörðin nánast öll sandur og ræktað land aðeins um 20 hektarar. Við höfum verið iðin í landgræðslu og er nú nán­ ast öll jörðin uppgrædd. Við höfum einnig ræktað um 60 hektara af sandi frá Landgræðslu ríkisins og nýtum nú sem tún,“ segir Ómar. Ábúendur á jörðinni eru Sjöfn Guðmundsdóttir (mamma strákanna), Ómar Helgason og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir. Börn þeirra eru: Kolfinna Sjöfn, Hafdís Laufey, Hrafnkell Frosti og Helgi Tómas. Í hinni fjölskyldunni eru Björgvin Reynir Helgason og Dóra Steinsdóttir. Börn þeirra eru; Ásberg Ævarr, Þorbjörg Helga, Steinn Skúli, Pétur Freyr og Óli Þórir. Bræðurnir Ómar og Björgvin eru fæddir og uppaldir í Lambhaga og eru Rangæingar í húð og hár. Margrét Harpa er úr Flóanum og Dóra úr Reykjavík. Hugur bræðranna hefur alltaf verið við búskap – Hvað kom til að þið ákváðuð á sínum tíma að gerast bændur á Lambhaga? „Hugur bræðranna hefur alltaf verið við búskap og kom lítið annað til greina hjá þeim annað en að verða bændur. Ég og Dóra fluttum á svæðið með þeim formerkjum að vinna að mestu annars staðar en við búið, en við höfum þó verið ansi upptekn­ ar síðustu ár við að koma nýjum einstaklingum í heiminn og sinna þeim,“ segir Margrét Harpa og hlær. – Hvernig hefur búskapurinn verið að þróast eftir að þið tókuð við og hvernig er staðan í dag á búskapnum, og hvernig gengur að reka félagsbú, eru margir kostir við það eða er það flókið? Ómar er snöggur og svarar hér. „Já, búið hefur stækkað mjög mikið síðustu 20 árin og það sem þótti mikið fyrir nokkrum árum þykir það ekki í dag. Samstarfið gengur mjög vel og erum við bræðurnir mjög góðir í að lesa hugsanir hvor annars. Svona bú er erfitt að reka nema með aðkomu fleiri en eins er mikilvægt að samkomulagið sé gott. Við höfum alla tíð notast mikið við verktaka fyrir alls konar verk. Það er nauðsynlegt í nútímasamfélagi að geta komist í frí og veislur án þess að þurfa að kalla til afleysingafólk og teljum við það vera helsta kostinn við að búa í félagsbúi. Þegar fleiri en einn kemur að rekstri koma oft góðar hugmyndir og aðferðir til að vinna hlutina og þá vinnast verkin líka betur.“ Margrét Harpa skýtur hér inn í og segir að samkomulagið á hlaðinu sé býsna gott. „ Já, bræðurn­ ir eru með ákveðna verkaskiptingu sem enginn skilur en gengur afskap­ lega vel upp. Krakkarnir okkar eru dugleg að leika saman og eins er ómetanlegt að hafa ömmu í næsta húsi til að spjalla við um lífið og tilveruna.“ Nýtt og myndarlegt fjós – Þið eruð nýbúin að byggja stórt og myndarlegt fjós, hvað getið þið sagt mér um þá byggingu og er þetta allt annað líf að vera komin með mjaltaþjóna og þurfa ekki að setja tækin sjálf á kýrnar? „Fjósið er frá Landstólpa og sáu þeir um uppsetningu á því. Um steypuvinnu sá nágranni okkar, Birkir á Móeiðarhvoli, sem er líka bóndi. Það skiptir máli að fjós sé byggt og hannað af mönnum sem hafa komið og unnið í fjósi. Fjósið er tæpir 1.700 fermetrar, með kanal­ kerfi í haughúsi, er með sjálfvirku gjafakerfi og tveimur Merlin­ róbótum. Það var byggt á 360 dögum sem er í sjálfu sér ótrúlegt og gekk samstarfið við Landstólpa og Birki mjög vel. Vinnan er öðruvísi í svona tæknifjósi, velferð kúnna er til fyrir­ myndar og skilar það sér í auknum afurðum. Við förum enn í fjósið kvölds og morgna en bindingin er ekki eins mikil og áður var, vinnan er öðruvísi. Nú þarf að gefa kálfum, fylgjast með kúnum, þrífa, setja í fóðurkerfið og svo er tölvuvinna orðin ansi stór þáttur í daglegum störfum,“ segir Ómar. – Þið eruð líka með mikið af holdanautum, hvað getið þið sagt mér um þann búskap? „Það er þannig að kálfarnir fæðast flestir frá maí til september og ganga undir kúnum fram yfir áramót og eru þá teknir inn. Holdanautin eru yfir­ leitt róleg og þægileg í umgengni en nýborin holdakýr er yfirleitt varasöm eða stórhættuleg, þær gera allt til að verja kálfana sína. Holdagripir gefa mun meira og betra kjöt en íslenska kynið gerir, það er bara staðreyndir,“ segir Margrét Harpa. – Íslenska sauðkindin á líka heima í Lambhaga, hvað eruð þið með margar kindur og hvernig geng- ur sú ræktun? „Já, við erum með um 85 kindur, aðallega til gamans. Húsakostur er til staðar fyrir þær og reynum við að gera alla vinnu við þær sem auð­ veldasta, enda er afkoma af þeim frekar lítil og skiptir afskaplega litlu máli í heildarafkomu búsins. Kindastofninn er ágætur en við leggj­ um mikið upp úr að eiga alla liti, má segja að markmiðið sé að rækta bæði gerð og liti. Það verða nú að vera til lömb í Lambhaga,“ segir Ómar og hlær. – Það eru margir krakkar á hlað- inu á Lambhaga, eru þau dugleg að taka þátt í búskapnum og hafa áhuga á honum? Flott fjölskylda, Margrét Harpa og Ómar ásamt börnunum sínum en þau heita Kolfinna Sjöfn, Hafdís Laufey, Hrafnkell Frosti og Helgi Tómas. Myndir / Úr einkasafni Margir krakkar eru oft á hlaðinu í Lambhaga. Þau ná vel saman og eru alltaf til í að leika, ekki síst þegar það er snjór úti og hægt að fara á snjóþoturnar. Árni Bragason landgræðslustjóri afhendir hér Sjöfn í Lambhaga Landgræðsluverðlaunin 2020, strákarnir hennar, þeir Ómar og Björgvin Reynir, fylgjast spenntir með. Mynd / Áskell Þórisson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.