Bændablaðið - 08.10.2020, Qupperneq 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202036
LÍF&STARF
Það er einstaklega gaman að
heimsækja ábúendur á bænum
Lambhaga á Rangárvöllum í
Rangárþingi ytra því þar er allt
svo snyrtilegt, vel hugsað um
skepnurnar og mikill hugur í
bændunum á bænum þrátt fyrir að
það séu blikur á lofti í landbúnaði
með auknum innflutningi og lækk-
unum á afurðaverði. Þá eru mörg
börn á hlaðinu, sem eru dugleg að
taka þátt í búrekstrinum og stunda
ýmsar tómstundir samhliða því að
vera í skóla.
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
og Ómar Helgason settust niður með
blaðamanni og svöruðu nokkrum
laufléttum spurningum.
– En byrjum á byrjuninni, hver er
saga bæjarins, hvernig jörð er þetta,
hverjir búa þar í dag og hvers konar
búskapur er stundaður á bænum?
„Já, þú segir nokkuð,“ segir
Ómar. Helgi Jónsson (f. 6. júlí
1943, d. 7. apríl 1993) og Sjöfn
Guðmundsdóttir keyptu Lambhaga
vorið 1970 og hófu þar búskap með
21 nautgrip og 28 ær við bágbor
inn húsakost. Helgi og Sjöfn eign
uðust 6 börn og búa nú tveir synir
þeirra í Lambhaga ásamt fjölskyld
um okkar og móður og rekum við
í sameiningu Lambhagabúið ehf.
Í Lambhaga eru þrjú íbúðarhús og
gripahús fyrir bústofninn,“ segir
Ómar. Í Lambhaga er rekið blandað
bú með áherslu á mjólkurframleiðslu
og nautakjötsframleiðslu. Bústofn
telur nú um 530 nautgripi, þar af 110
mjólkurkýr og 75 holdakýr, 85 ær,
10 hænur, hundana Týru og Perlu
og nokkra ketti. Ómar segir að jörðin
sé um 450 hektarar, þar af um 280
hektarar ræktað land og er hluti af því
nýttur til beitar. „Um 1970 var jörðin
nánast öll sandur og ræktað land
aðeins um 20 hektarar. Við höfum
verið iðin í landgræðslu og er nú nán
ast öll jörðin uppgrædd. Við höfum
einnig ræktað um 60 hektara af sandi
frá Landgræðslu ríkisins og nýtum
nú sem tún,“ segir Ómar. Ábúendur
á jörðinni eru Sjöfn Guðmundsdóttir
(mamma strákanna), Ómar Helgason
og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir.
Börn þeirra eru: Kolfinna Sjöfn,
Hafdís Laufey, Hrafnkell Frosti og
Helgi Tómas. Í hinni fjölskyldunni
eru Björgvin Reynir Helgason og
Dóra Steinsdóttir. Börn þeirra eru;
Ásberg Ævarr, Þorbjörg Helga,
Steinn Skúli, Pétur Freyr og Óli
Þórir. Bræðurnir Ómar og Björgvin
eru fæddir og uppaldir í Lambhaga
og eru Rangæingar í húð og hár.
Margrét Harpa er úr Flóanum og
Dóra úr Reykjavík.
Hugur bræðranna hefur alltaf
verið við búskap
– Hvað kom til að þið ákváðuð á
sínum tíma að gerast bændur á
Lambhaga?
„Hugur bræðranna hefur alltaf
verið við búskap og kom lítið annað
til greina hjá þeim annað en að verða
bændur. Ég og Dóra fluttum á svæðið
með þeim formerkjum að vinna að
mestu annars staðar en við búið, en
við höfum þó verið ansi upptekn
ar síðustu ár við að koma nýjum
einstaklingum í heiminn og sinna
þeim,“ segir Margrét Harpa og hlær.
– Hvernig hefur búskapurinn
verið að þróast eftir að þið tókuð
við og hvernig er staðan í dag á
búskapnum, og hvernig gengur að
reka félagsbú, eru margir kostir við
það eða er það flókið?
Ómar er snöggur og svarar hér.
„Já, búið hefur stækkað mjög mikið
síðustu 20 árin og það sem þótti
mikið fyrir nokkrum árum þykir
það ekki í dag. Samstarfið gengur
mjög vel og erum við bræðurnir
mjög góðir í að lesa hugsanir hvor
annars. Svona bú er erfitt að reka
nema með aðkomu fleiri en eins er
mikilvægt að samkomulagið sé gott.
Við höfum alla tíð notast mikið við
verktaka fyrir alls konar verk. Það
er nauðsynlegt í nútímasamfélagi að
geta komist í frí og veislur án þess
að þurfa að kalla til afleysingafólk
og teljum við það vera helsta kostinn
við að búa í félagsbúi. Þegar fleiri
en einn kemur að rekstri koma oft
góðar hugmyndir og aðferðir til að
vinna hlutina og þá vinnast verkin
líka betur.“ Margrét Harpa skýtur
hér inn í og segir að samkomulagið á
hlaðinu sé býsna gott. „ Já, bræðurn
ir eru með ákveðna verkaskiptingu
sem enginn skilur en gengur afskap
lega vel upp. Krakkarnir okkar eru
dugleg að leika saman og eins er
ómetanlegt að hafa ömmu í næsta
húsi til að spjalla við um lífið og
tilveruna.“
Nýtt og myndarlegt fjós
– Þið eruð nýbúin að byggja stórt
og myndarlegt fjós, hvað getið þið
sagt mér um þá byggingu og er þetta
allt annað líf að vera komin með
mjaltaþjóna og þurfa ekki að setja
tækin sjálf á kýrnar?
„Fjósið er frá Landstólpa og
sáu þeir um uppsetningu á því. Um
steypuvinnu sá nágranni okkar,
Birkir á Móeiðarhvoli, sem er líka
bóndi. Það skiptir máli að fjós sé
byggt og hannað af mönnum sem
hafa komið og unnið í fjósi. Fjósið
er tæpir 1.700 fermetrar, með kanal
kerfi í haughúsi, er með sjálfvirku
gjafakerfi og tveimur Merlin
róbótum. Það var byggt á 360 dögum
sem er í sjálfu sér ótrúlegt og gekk
samstarfið við Landstólpa og Birki
mjög vel. Vinnan er öðruvísi í svona
tæknifjósi, velferð kúnna er til fyrir
myndar og skilar það sér í auknum
afurðum. Við förum enn í fjósið
kvölds og morgna en bindingin er
ekki eins mikil og áður var, vinnan
er öðruvísi. Nú þarf að gefa kálfum,
fylgjast með kúnum, þrífa, setja í
fóðurkerfið og svo er tölvuvinna
orðin ansi stór þáttur í daglegum
störfum,“ segir Ómar.
– Þið eruð líka með mikið af
holdanautum, hvað getið þið sagt
mér um þann búskap?
„Það er þannig að kálfarnir fæðast
flestir frá maí til september og ganga
undir kúnum fram yfir áramót og eru
þá teknir inn. Holdanautin eru yfir
leitt róleg og þægileg í umgengni en
nýborin holdakýr er yfirleitt varasöm
eða stórhættuleg, þær gera allt til að
verja kálfana sína. Holdagripir gefa
mun meira og betra kjöt en íslenska
kynið gerir, það er bara staðreyndir,“
segir Margrét Harpa.
– Íslenska sauðkindin á líka
heima í Lambhaga, hvað eruð þið
með margar kindur og hvernig geng-
ur sú ræktun?
„Já, við erum með um 85 kindur,
aðallega til gamans. Húsakostur er
til staðar fyrir þær og reynum við
að gera alla vinnu við þær sem auð
veldasta, enda er afkoma af þeim
frekar lítil og skiptir afskaplega
litlu máli í heildarafkomu búsins.
Kindastofninn er ágætur en við leggj
um mikið upp úr að eiga alla liti, má
segja að markmiðið sé að rækta bæði
gerð og liti. Það verða nú að vera
til lömb í Lambhaga,“ segir Ómar
og hlær.
– Það eru margir krakkar á hlað-
inu á Lambhaga, eru þau dugleg að
taka þátt í búskapnum og hafa áhuga
á honum?
Flott fjölskylda, Margrét Harpa og Ómar ásamt börnunum sínum en þau heita Kolfinna Sjöfn, Hafdís Laufey, Hrafnkell Frosti og Helgi Tómas. Myndir / Úr einkasafni
Margir krakkar eru oft á hlaðinu í Lambhaga. Þau ná vel saman og eru alltaf til í að leika, ekki síst þegar það er
snjór úti og hægt að fara á snjóþoturnar.
Árni Bragason landgræðslustjóri afhendir hér Sjöfn í Lambhaga Landgræðsluverðlaunin 2020, strákarnir hennar,
þeir Ómar og Björgvin Reynir, fylgjast spenntir með. Mynd / Áskell Þórisson