Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020 25
Matvælasjóður var formlega
opnaður 2. september og um leið
var opnað fyrir umsóknir í hann.
Umsóknarfrestur rann út 21. sept-
ember og þá höfðu 263 umsóknir
borist í í alla fjóra styrkjaflokk-
ana.
Matvælasjóður varð til með sam-
einingu Framleiðnisjóðs landbún-
aðarins og AVS-rannsóknarsjóðs í
sjávarútvegi. Stofnfé sjóðsins er 500
milljónir króna og er gert ráð fyrir
úthlutun í kringum næstu mánaða-
mót.
Samkvæmt nýbirtu fjárlagafrum-
varpi mun Matvælasjóður fá 250
milljón króna viðbótarframlag á
næsta ári við þær tæplega 400 millj-
ónir sem áætlað er að sjóðurinn hafi
árlega til umráða.
Fjórir styrkjaflokkar
Matvælasjóður hefur fjóra styrkja-
flokka, Keldu, Afurð, Báru og
Fjársjóð.
Í Keldu bárust 48 umsóknir,
sem styrkir rannsóknaverkefni sem
miða að því að skapa nýja þekk-
ingu. Tilgangur Keldu er að veita
rannsóknastyrki til að hægt sé að
afla nýrrar þekkingar sem stuðlar
að nýsköpun, sjálfbærni, verð-
mætasköpun og samkeppnishæfni
íslenskrar matvælaframleiðslu.
Í Afurð bárust 50 umsóknir, sem
styrkir verkefni sem komin eru af
hugmyndastigi en eru þó ekki til-
búin til markaðssetningar, en leiða
af sér afurð. Líta má á þennan flokk
styrkja sem tækifæri til að móta og
þróa afurð úr hráefnum sem tengjast
matvælaframleiðslu og gera hana
verðmætari í ferlinu. Afurðirnar eiga
að auka nýsköpun, sjálfbærni, verð-
mætasköpun og samkeppnishæfni
íslenskrar matvælaframleiðslu.
Verkefnin geta verið á ólíkum stað
í ferlinu, á byrjunarreit eða loka-
stigum.
Í Báru bárust 126 umsóknir, sem
styrkir verkefni á hugmyndastigi.
Styrkur úr Báru fleytir hugmynd
yfir í verkefni. Í Báru leita þeir
frumkvöðlar, og fyrirtæki sem eru
yngri en fimm ára, sem vilja skoða
hugmynd, hráefni eða aðferðir sem
stuðla að nýsköpun, sjálfbærni, verð-
mætasköpun og samkeppnishæfni
íslenskrar matvælaframleiðslu.
Í Fjársjóð bárust 37 umsókn-
ir, sem styrkir sókn á markað.
Fjársjóður er samansafn verðmætra
hluta og styrkir fyrirtæki til að koma
sínum verðmætum á framfæri.
Skilyrði Fjársjóðs er að varan sé
afurð úr íslenskum hráefnum sem
ætlað er til matvælaframleiðslu.
Tilgangurinn er að veita styrk til
fyrirtækja til að styrkja markaðsinn-
viði og markaðssókn afurða tengd-
um íslenskri matvælaframleiðslu
og stuðla þannig að nýsköpun,
sjálfbærni, verðmætasköpun og
sam keppnishæfni íslenskrar mat-
vælaframleiðslu.
Hluti af öðrum aðgerðarpakka
vegna COVID-19
Unnið var að stofnun sjóðsins á síð-
asta ári en þeirri vinnu flýtt til að
bregðast við áhrifum COVID-19.
Var frumvarp um sjóðinn lagt fram
á Alþingi í apríl síðastliðnum sem
hluti af öðrum áfanga aðgerða til að
skapa efnahagslega viðspyrnu við
ástandinu.
Stjórn gerir tillögur
um úthlutanir
Stjórn Matvælasjóðs skipa Gréta
María Grétarsdóttir, formaður
stjórnar, Gunnar Þorgeirsson sam-
kvæmt tilnefningu Bændasamtaka
Íslands, Heiðrún Lind Marteinsdóttir,
samkvæmt tilnefningu Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi, og Karl
Frímannsson, án tilnefningar. /smh
Fiskislóð 30
101 Reykjavík
561 4110
Grjóthálsi 10
110 Reykjavík
561 4210
Njarðarbraut 9
260 Reykjanesbæ
420 3333
Njarðarnesi 1
603 Akureyri
460 4350
Lyngási 8
210 Garðabæ
565 8600
Breiðhöfði 13
110 Reykjavík
590 2080
Sjáðu úrvalið á
nesdekk.is
Skoðaðu nýju heimasíðuna
okkar á nesdekk.is
Þar getur þú fundið réttu dekkin sem henta þér best,
og gengið frá kaupunum.
POWER IS NOTHING WITHOUT CONTROL
EKKI DETTA
ÚR SAMBANDI!
Eins og dæmin sanna geta bæði fyrirtæki
og einstaklingar, ekki síst bændur, orðið
fyrir stórtjóni þegar rafmagn dettur út
vegna veðurs og náttúruhamfara. Við
eigum varaaflstöðvar fyrir allar aðstæður.
Rafmagnsleysi getur valdið stórtjóni
REYKJAVÍK
Klettagörðum 25
Sími 5 200 800
SELFOSSI
Eyravegi 67
Sími 4 800 600
AKUREYRI
Draupnisgötu 2
Sími 4 600 800
REYÐARFIRÐI
Nesbraut 9
Sími 4 702 020
REYKJANESBÆ
Hafnargötu 52
Sími 4 207 200
HAFNARFIRÐI
Bæjarhrauni 12
Sími 5 200 800
GRUNDARTANGA
Mýrarholtsvegi 2
Sími 5 200 830
Hafðu samband í tæka tíð!
Nánari upplýsingar á ronning.is eða ronning@ronning.is
263 umsóknir í fyrstu úthlutun úr Matvælasjóði
Matvælasjóður varð til með sameiningu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og
AVS-rannsóknarsjóðs í sjávarútvegi. Stofnfé sjóðsins er 500 milljónir króna.
LÍF&STARF
Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum
í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla.
Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og
eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi.
Sendum um allt land.
www.pgs.is
pgs@pgs.is
s 586 1260
Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík
Alternatorinn eða
startarinn bilaður?