Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 39

Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020 39 LESENDABÁS Bændur, takið Birni Bjarnasyni vel Nýlega skipaði landbúnaðarráð- herra tveggja manna nefnd um framtíð landbúnaðarins. Þetta gerir hann án samráðs við bænda- forystuna. Fyrir liði fer marg- reyndur maður, Björn Bjarnason fyrrv. ráðherra, en með honum er í nefndinni Hlédís Sveinsdóttir. Björn hefur víða komið að málum en hvergi að landbúnaði svo ég muni. Björn hefur ýmsa kosti. Hann er einarður maður, ótal-hlýð- inn og gerir það eitt er hann telur réttast. Sagt er að hann hafi gert aðeins eina kröfu, að hann hefði Sigur geir Þorgeirsson, fyrrverandi framkvæmda ­ stjóra Bændasamtaka Íslands og ráðu­ neytisstjóra, að baki sér. Sigurgeir þekkir landbúnaðinn út og inn og veit manna best hvar skórinn kreppir og hvað hefur farið úrskeiðis á síðustu árum. Halldóri Blöndal landbúnað­ arráðherra var hann slíkur aðstoðar­ maður að ráðherrann sagði gjarnan: – „Við Sigurgeir höfum ákveðið“ og vissu þá allir að vel var ráðið. Umgjörð íslenska landbúnaðarins hefur verið umturnað Að baki Birni gnæfa tveir jarlar í pólitík, þeir Bjarni Benediktsson, faðir hans og forsætisráðherra, og Ingólfur Jónsson á Hellu, sem Bjarni treysti best fyrir málefnum bænda og telst enn fremstur meðal jafningja sem landbúnaðarráðherra. Björn var menntamálaráðherra lengi og því mun hann átta sig fljótt á að umgjörð ráðgjafar og vísinda hefur verið brotin á bak aftur gagnvart landbúnaðinum. Hann mun átta sig á að það verður að byggja upp landbúnaðarráðuneytið og heimta stofnanir landbúnaðarins heim á ný. Allri umgjörð íslenska landbúnaðar­ ins hefur verið umturnað. Þar bera aðrir meiri sök en Kristján ráðherra, en Kristján hinn, ráðuneytisstjóri, hefur staðið vondu vaktina innan dyra allan tímann. Ekki hlustað á bændaforystuna Á meðan heldur hinn ríki og stóri sjávarútvegur öllu sínu hjá ríkinu. Ríkið borgar Hafrannsóknastofnun, Fiskistofu og Landhelgisgæsluna. Þegar ráðherrann sami og fer með landbúnaðinn ætlaði að fara með sjávarútveginn eins og landbúnað­ inn, útgerðin ætti að borga rann­ sóknir og eftirlit og þar með nýtt hafrannsóknaskip, þá sögðu for­ ingjar útgerðarinnarinnar „éttu hann sjálfur,“ og þar við sat. Á bænda­ forystuna hefur ekki verið hlustað í mörg ár og tillögur hennar og fag­ legar athugasemdir að engu hafðar. Ríkisstjórnir staglast á matvælum og leggja fram peninga, en með hinni hendinni eru leiðirnar opnaðar er­ lendis frá til að svelta bændur og blekkja neytendur. Íslenski fjölskyldubúskapurinn einn sá besti í veröldinni Nú vill svo til að ný forysta Bænda samtakanna virðist öfl­ ugri en fyrr, og er vís til að berja í borðið hvað líður. Mín áskorun til hennar og bænda er þessi: Safnið liði og öllum gögnum um hverju verður að breyta bæði í stjórn­ kerfi landbúnaðarins og gagnvart bændum og búgreinunum. Dragið fram mynd af t.d. norskum land­ búnaði. Sparið ekki kraftana að upplýsa og marka nýja sýn, það plagg verður ykkar kröfugerð til ríkisstjórnar ef Björnsnefndin strandar á blindskeri. Birni er ætlað óvinnandi verk að ná sátt jafnt við Bændasamtökin og fjanda flokka eins og heildsalana Ólaf Stephensen og Andrés og enn logar mýrarljós Samfylkingar og Við reisnar um ESB­aðild. Svo veit ég að Björn hefur ekki skap til að liggja yfir einhverju sviðs­ myndarugli, heldur vill marka mikilvægum atvinnuvegi tækifæri. Hann mun vonandi fara að eins og Jón Loftsson í Odda forðum, þegar ruglið dynur á honum, frjáls­ hyggjan og fláræðið: „Heyra má ég erkibiskups boðskap en ráðinn er ég í að halda hann að engu.“ Því staðreyndin er sú að á öllum sviðum erum við Íslendingar í góðri stöðu með fjölskyldubúskap­ inn, einn þann besta í veröldinni að mati fólksins í landinu, lækna og matreiðslumanna í allri Evrópu og eigum einstaka Móður jörð. Verð til sauðfjárbænda fallið um 40–50% Ein grein innan landbúnaðarins er komin að hruni, það er sauð­ fjárbúskapurinn. Því bið ég Björn Bjarnason að taka stöðu sauðfjár­ bænda til sérstakrar afgreiðslu strax og gera tillögur um aðgerðir til að bæta lífsafkomu sauðfjárbænda, þar liggur og sérgrein Sigurgeirs sem ann meir feitum hrútum en makríl. Engum vafa er það undirorpið að sauðfjárbændur hafa búið við erf­ iðleika nú í nokkur ár. Afurðaverð féll fyrir 3–4 árum um 40–50%, sem gerir afkomu þeirra af bú­ skapnum rýra. Nú er fullyrt að eitt lægsta afurðaverð til bænda sé á íslenska lambakjötinu í Evrópu, á einni bestu náttúruafurð heimsins, lambinu okkar. Slíkt er óboðlegt og reynir þessi vonda staða mest á ungt fólk í greininni sem verður dæmt til að tapa eignum sínum og ætluðu lífsstarfi. Sauðfjárbyggðum blæðir út, verði ekkert að hafst. Og þá munu þeir kumpánar óáreittir flytja lambakjöt yfir hálfan hnöttinn eins og gerðist fyrir ári síðan. Guðni Ágústsson. Guðni Ágústsson. ORKUSJÓÐURORKUSTOFNUN ORKUSJÓÐUR Umsóknir skulu sendar gegnum þjónustugátt Orkustofnunar: gattin.os.is Orkusjóður auglýsir styrki til orkuskipta 2020 Innviða- og verkefnastyrkir vegna áherslu stjórnvalda um orkuskipti og nýtingu endurnýjanlegrar orku. Heildarfjárhæð til úthlutunar er 180 m.kr. 1. Innviðastyrkir fyrir vistvæn ökutæki (s.s. heimsendingaþjónusta, bílaleigur, leigubílar og annar rekstur). Krafa er um eftirfarandi skilyrði: a. 10 bifreiðar eða 2 hópbifreiðar að lágmarki í flota. b. Styrkir geta að hámarki numið 33% af áætluðum stofnkostnaði. 2. Innviðastyrkir fyrir vistvæn ökutæki við opinbera staði (s.s. hleðslustöðvar við sundlaugar, heilsugæslur, skóla, hafnir/flugvelli, heimahjúkrun, félagaþjónustu, vaktbíla). a. Styrkir geta að hámarki numið 50% af áætluðum stofnkostnaði. 3. Verkefnastyrkir fyrir rekstur í haftengdri starfsemi (s.s. fiskeldi, ferðaþjónusta, smábátar). a. Með verkefnastyrki er átt við að samstarfsaðilar komi saman að skilgreiningu heildarverkefnis sem lúti bæði að innviðauppbyggingu í landi sem og að búa báta með mestu lengd allt að 15 metrum til nýtingar á endurnýjanlegu eldsneyti. Aðilar að skilgreindu verkefni ákveði hvernig styrkupphæð skiptist á milli hluteigandi aðila. Skilyrði að samkomulag sé til staðar við viðkomandi höfn. Styrkir geta að hámarki numið 33% af áætluðum stofnkostnaði. Sjóðurinn áskilur sér rétt til að forgangsraða styrkjum í samræmi við áherslur stjórnvalda við orkuskipti, s.s. líta til þess hversu líklegt er að styrkhæft verkefni hraði orkuskiptum og hversu mikil áhrif það hefur til minnkunar á kolefnisfótspori. Einnig verður horft til dreifingu verkefna um landið og hversu hratt þau eru talin koma til framkvæmda. Styrkupphæð til hvers verkefnis ræðst af getu sjóðsins og fjölda umsókna. Umsóknarfrestur er til 20. október 2020 Umsóknir skulu sendar gegnum þjónustugátt Orkustofnunar: gattin.os.is Nánari upplýsingar fást hjá Orkusjóði, Rangárvöllum við Hlíðarfjallsveg, 603 Akureyri. Sími: 569 6083. Netfang: rka@os.is. Akureyri · Sími 465 1332 www.buvis.is Vorum að fá vandaðar gripaflutningakerrur Bensínknúnir staurahamrar frá Petrol Post með Honda mótor Verð kr. 369.000.- án vsk. 16” dekk Heildar burðargeta 3.5 tonn Verð kr. 1.678.000.- án vsk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.