Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202016 Ef lagafrumvarp sjávarútvegsráð- herra um að fella grásleppuveiðar inn í aflamarkskerfið nær fram að ganga er grásleppan ein af síð- ustu verðmætu fisktegundunum við Ísland til þess að verða kvóta- sett. Mjög skiptar skoðanir eru meðal grásleppukarla með þessa fyrirhuguðu ráðstöfun. Er ýmist talað um nauðsynlega skilvirkni og sveigjanleika eða aðför að smærri byggðum landsins vegna samþjöppunar veiðiheimilda. Umræðan um nauðsyn kvóta- setningar á grásleppu fór á flug í vor þegar vertíðin var skyndilega stöðvuð í miðjum klíðum vegna þess að leyfilegur afli var uppveiddur. Veiðarnar hefjast jafnan fyrst á norð- austurhorni landsins og þar fiskað- ist svo vel fyrstu vikurnar að þegar grásleppan gekk upp að landinu fyrir vestan nokkru síðar var svo lítið eftir af hámarksaflanum að sumir náðu ekki að nýta leyfi sín og sátu uppi með fjárhagslegan skell. Kristján Þór Júlíusson sjávarút- vegsráðherra lýsti því þá þegar yfir að hann vildi breyta fyrirkomulagi grásleppuveiða þannig að í stað þess að stýra veiðunum með ákveðnum fjölda samfelldra veiðidaga yrði sérhverjum grásleppubáti úthlutað kvóta sem menn gætu nýtt þegar hverjum og einum hentaði. Þeir sem andvígir voru þeirri hugmynd bentu á að unnt hefði verið að koma í veg fyrir uppákomuna síðastliðið vor með því að svæðaskipta aflan- um og fylgjast betur með framvindu veiða og grípa fyrr inn í þannig að allir fengju eitthvað að veiða. Veiðireynsla ráði Samkvæmt frumvarpi ráðherrans skal kvóti hvers báts miðast við veiðireynslu á þremur bestu veiði- tímabilunum á sex árum, frá 2013 til 2018. Sú skýring er gefin að vertíðir grásleppuveiða standi yfir í stuttan tíma og frátafir á einni vertíð geti því haft mikið að segja varðandi veiði- reynslu báts það ár. Þá séu aflabrögð misjöfn milli ára og eftir svæðum. Sá mismunur jafnist út með lengra viðmiðunartímabili. Miðað er við „veiðireynslu“ veiðileyfisins ef það hefur skipt um hendur á tímabilinu. Grásleppuleyfi hafa verið bundin við þá báta sem voru með slíkt leyfi árið 1997 eða báta sem komið hafa í þeirra stað síðan. Alls eru þetta 450 leyfi og hefur verið hægt að selja þau eða leigja en þó þannig að ekki má vera nema eitt leyfi á hverjum báti. Ekki nærri öll leyfin hafa verið nýtt. Á síðustu vertíð tóku til dæmis 201 bátar þátt í veiðum, en þeir voru 240 árið 2019 og 222 á vertíðinni 2018. Leyfishafar, sem ekki hafa nýtt leyfi sín á tímabilinu 2013-2018, munu ekki eiga tilkall til kvótaúthlutunar. 2% kvótaþak Frumvarpið gerir ráð fyrir að sam- eina megi tvo eða fleiri grásleppu- kvóta á einn bát öfugt við það sem leyfilegt er í núverandi kerfi hvað dagana áhrærir. Til þess að sporna gegn of mikilli samþjöppun veiði- heimilda og fækkun báta er miðað við að enginn einstaklingur eða félag megi eiga hærra hlutfall af heildaraflahlutdeild í grásleppu en 2%. Bent er á að hlutdeild aflahæsta grásleppubátsins á árunum 2013- 2018 hafi verið á bilinu 1,0%-1,40%. Þess séu dæmi að menn geri út 2-3 báta til þessara veiða og því segi hámarksafli á bát ekki endilega hver sé hámarksafli á útgerð. Þá er ráðherra heimilt, samkvæmt frumvarpinu, að ákveða staðbund- in veiðisvæði fyrir grásleppuveiðar þannig að aðeins geti þar stund- að veiðar bátar sem skráðir séu frá byggðarlagi við hlutaðeigandi veiðisvæði og útgerð bátsins eigi þar heimilisfesti. Ókostir núverandi kerfis Í greinargerðinni með frumvarpinu segir að kostirnir við kvótasetn- ingu grásleppuveiða séu ótvíræðir: ábyrgari og fyrirsjáanlegri fiskveiði- stjórnun, meiri sveigjanleiki fyrir þá sem stundi veiðarnar og einfaldari stjórnsýsla. Ókostirnir við núverandi kerfi felist í því að erfitt sé að halda veiðinni innan leyfilegs heildarafla. Þá séu veiðarnar bundnar ákveðnum samfelldum dögum sem þýði að þegar leyfi sé virkjað á bát byrji dagarnir að telja óháð veðri sem geti ýtt undir að veitt sé þótt veður séu slæm eða óæskilegur meðafli sé mikill, svo sem fugla og sjávar- spendýra sem aftur leiddi til þess að veiðarnar hafi misst umhverfis- vottun. Þá sé ekki unnt að taka til- lit til bilana, veikinda eða annarra ófyrirsjáanlegra tafa. Auk þess sé breytilegt milli ára hversu margir virki leyfi til veiðanna. „Auðlindaþjófnaður“ Frumvarp sjávarútvegsráðherra var í samráðsgátt stjórnvalda 4.-18. sept- ember síðastliðinn og bárust alls 64 umsagnir. Af þeim voru 37 jákvæðar gagnvart kvótasetningu, 22 nei- kvæðir og 5 á báðum áttum. Einna harðasta gagnrýnin á frumvarpið kom frá smábátafélaginu Hrollaugi á Hornafirði. Þar er frumvarpið lýst sem „aðför að nýliðun og auðlinda- þjófnaður, svo ekki sé meira sagt.“ Í umsögninni segir ennfremur: „Það eru ekki almannahagsmunir að kvótasetja grásleppu heldur sérhags- munir ætlaðir örfáum aðilum. Sagan segir okkur að samþjöppunin hefst á fyrsta degi og aðgengi sjávarbyggða og íbúa þeirra að nýtingu auðlinda sinna hverfur skref fyrir skref. Örfáir aðilar munu njóta ávinningsins en heildin ekki.“ Það er álit félagsins að eina breytingin sem gera þurfi á núver- andi kerfi sé að svæðaskipta heildar- afla grásleppu og miða við fjölda báta innan hvers svæðis á hverju ári. Álit Landssambands smábátaeigenda Síðasti aðalfundur Lands sambands smábátaeigenda (LS) í október 2019 lýsti sig mótfallinn kvóta- setningu grásleppu. Árið áður leiddi skoðunarkönnum sem LS gerði meðal félagsmanna í ljós að 54,8% svarenda vildu áfram núver- andi veiðistjórnun en 45,2% vildu kvóta. Í umsögn LS um frumvarpið í samráðsgátt stjórnvalda er bent á að málið sé áfram til umræðu innan samtakanna og framundan séu aðal- fundir svæðisfélaga og aðalfundur LS boðaður 15. október n.k. Í umsögninni er þess getið að LS hafi á undanförnum árum lagt til ýmsar lagfæringar á fyrirkomulagi veiðanna, m.a. að sameina leyfi, en á milli 25 og 35 bátar geri út 2 báta eða fleiri á hverri vertíð. Við sameiningu yrði þess gætt að hún myndi ekki leiða til sóknaraukningar með því að dagafjöldi ykist aðeins um 50% þegar leyfi tveggja jafnstórra báta yrði að einu. Annar þáttur hagræðingar fyrir grásleppusjómenn fælist í því að hægt yrði að gera hlé á veiðum með því að taka upp netin. Dagar sem liðu þar til þau yrðu lögð aftur teldust ekki til veiðidaga. Með því mætti minnka hættu á netatjóni fyr- irsjáanlegrar brælu, draga úr hættu á óæskilegum meðafla og taka tillit til veikinda og bilana svo eitthvað væri nefnt. LS segir að sjávarútvegsráðherra hafi ekki orðið við óskum LS um þessi tvö atriði. Þá bendir LS einnig á í umsögn sinni að veiðistjórn m.t.t. aflaráð- gjafar Hafró hafi tekist prýðilega. Á 10 ára tímabili 2011 – 2020 hafi samanlög ráðgjöf Hafró verið 50.100 tonn á móti 50.000 tonna afla. Á komandi aðalfundi Lands- sambands smábátaeigenda verða vafalaust heitar umræður um þetta umdeilda frumvarp sjávarútvegs- ráðherra. Guðjón Einarsson gudjone3@gmail.com Haustið er tíminn til að setja niður haustlauka og undir- búa blómstrandi og litríkt vor. Mikið úrval tegunda er í boði og fjölbreytileiki hvað varðar lit, lögun og hæð við allra hæfi. Keisarakróna er glæsileg planta sem verður allt að einn metri á hæð. Til í appelsínu- gulum eða gulum lit. Blómgast í maí til júní. Kýs þurran, sólríkan og skjólgóðan stað í garðinum undir stærri trjám eða runnum sem skýla henni gegn nætur- frostum á vorin. Keisarakróna lifir árum saman hér í görðum þar sem henni hafa verið búnar réttar aðstæður, til dæmis í skjóli við húsvegg. Laukur keisarakrónu er stundum kallaður músafælu- laukur vegna þess að af honum er sterk lykt sem mýs fælast. Skera skal laukinn í nokkra bita og dreifa honum innandyra þar sem hætta er á músagangi, til dæmis í húsbílum, tjaldvögnum, sumarbústöðum og útihúsum. Viðkvæm planta sem blómgast eingöngu við bestu skilyrði. Krókus blómgast snemma á vorin en einnig eru til tegund- ir sem blómgast að hausti. Lágvaxnir og til í mörgum litum. Fallegt að planta krók- usum í litlar þyrpingar, 10 til 20 saman, í grasflötina eða dreifa þeim handahófskennt og fylgj- ast með þegar þeir koma upp á vorin. Hátíðarliljur fást í ótal til- brigðum og í mörgum flokkum eftir blómgerð og uppruna. Þeim þykir gott að standa lengi á sama stað. Yfirleitt mjög harðgerðar og fjölga sér mikið með tímanum. Páskaliljur blómgast yfirleitt í lok maí og verða 40 til 50 sentí- metra háar. Til er fjöldi afbrigða en gul afbrigði þrífast best. Aðrar narsissur blómgast fyrr, jafnvel seint í mars eða byrjun apríl, til dæmis hin smágerða 'Tete-á- Tete‘ sem mikið er selt af í pott- um um páskaleytið. Eftir blómg- un má gróðursetja plöntuna eins og hún kemur fyrir í pottinum úti í garðinum og þar kemur hún upp og blómgast á hverju vori. Perluliljur eru 10 til 20 sentí- metrar á hæð. Blómin blá, perlu- laga og í klösum. Náttúruleg heimkynni í Litlu-Asíu og Suður- Evrópu. Fara vel sem bryddingar með túlípönum og páskaliljum sem blómgast á svipuðum tíma og þær. Nokkuð viðkvæmar, þola illa raka og rask en þar sem vel fer um þær eflast þær með hverju ári. Skrautlaukar eru nokkrar mis- munandi tegundir af laukaætt- kvíslinni. Blómsveipurinn efst á lauflausum stöngli sem getur orðið allt að einn og hálfur metri að hæð, en er yfirleitt mun lægri. Dafna best á sólríkum og skjól- góðum stað. Allir skrautlaukar þurfa frjóan og vel framræstan jarðveg, stórvöxnustu tegundir- nar þurfa að fara um 20 til 25 sentímetra djúpt,en smágerðari tegundum nægir 10 sentímetra dýpi. Vetrargosar eru harðgerðir og með fyrstu laukunum sem koma upp á vorin. Fjölga sér mikið svo að hægt er að skipta þeim upp á nokkurra ára fresti. Vetrargosar eru hvítir á litinn og verða 10 til 20 sentímetra háir. Skuggþolnir og fallegt að planta þeim í beð milli trjáa og runna. Vorboði blómstra gulum blómum eldsnemma á vorin, jafnvel í febrúar eða snemma í mars. Mjög harðger og á það til að þroska fræ og fjölga sér með sáningu. Hnýðin eru fremur smá- gerð og því gróðursett grunnt, 5 til 7 sentímetra. /VH STEKKUR NYTJAR HAFSINS Haustlaukaval Leyfishafar, sem ekki hafa nýtt leyfi sín á tímabilinu 2013–2018, munu ekki eiga tilkall til kvótaúthlutunar. Alls eru grásleppuveiðileyfin 450, en á síðustu þremur vertíðum tóku 200–240 bátar þátt í veiðunum. Mynd / VH Bænda 22. október
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.