Bændablaðið - 08.10.2020, Side 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202016
Ef lagafrumvarp sjávarútvegsráð-
herra um að fella grásleppuveiðar
inn í aflamarkskerfið nær fram
að ganga er grásleppan ein af síð-
ustu verðmætu fisktegundunum
við Ísland til þess að verða kvóta-
sett. Mjög skiptar skoðanir eru
meðal grásleppukarla með þessa
fyrirhuguðu ráðstöfun. Er ýmist
talað um nauðsynlega skilvirkni
og sveigjanleika eða aðför að
smærri byggðum landsins vegna
samþjöppunar veiðiheimilda.
Umræðan um nauðsyn kvóta-
setningar á grásleppu fór á flug í
vor þegar vertíðin var skyndilega
stöðvuð í miðjum klíðum vegna þess
að leyfilegur afli var uppveiddur.
Veiðarnar hefjast jafnan fyrst á norð-
austurhorni landsins og þar fiskað-
ist svo vel fyrstu vikurnar að þegar
grásleppan gekk upp að landinu fyrir
vestan nokkru síðar var svo lítið eftir
af hámarksaflanum að sumir náðu
ekki að nýta leyfi sín og sátu uppi
með fjárhagslegan skell.
Kristján Þór Júlíusson sjávarút-
vegsráðherra lýsti því þá þegar yfir
að hann vildi breyta fyrirkomulagi
grásleppuveiða þannig að í stað þess
að stýra veiðunum með ákveðnum
fjölda samfelldra veiðidaga yrði
sérhverjum grásleppubáti úthlutað
kvóta sem menn gætu nýtt þegar
hverjum og einum hentaði. Þeir
sem andvígir voru þeirri hugmynd
bentu á að unnt hefði verið að koma
í veg fyrir uppákomuna síðastliðið
vor með því að svæðaskipta aflan-
um og fylgjast betur með framvindu
veiða og grípa fyrr inn í þannig að
allir fengju eitthvað að veiða.
Veiðireynsla ráði
Samkvæmt frumvarpi ráðherrans
skal kvóti hvers báts miðast við
veiðireynslu á þremur bestu veiði-
tímabilunum á sex árum, frá 2013 til
2018. Sú skýring er gefin að vertíðir
grásleppuveiða standi yfir í stuttan
tíma og frátafir á einni vertíð geti því
haft mikið að segja varðandi veiði-
reynslu báts það ár. Þá séu aflabrögð
misjöfn milli ára og eftir svæðum.
Sá mismunur jafnist út með lengra
viðmiðunartímabili. Miðað er við
„veiðireynslu“ veiðileyfisins ef það
hefur skipt um hendur á tímabilinu.
Grásleppuleyfi hafa verið bundin
við þá báta sem voru með slíkt leyfi
árið 1997 eða báta sem komið hafa í
þeirra stað síðan. Alls eru þetta 450
leyfi og hefur verið hægt að selja þau
eða leigja en þó þannig að ekki má
vera nema eitt leyfi á hverjum báti.
Ekki nærri öll leyfin hafa verið nýtt.
Á síðustu vertíð tóku til dæmis 201
bátar þátt í veiðum, en þeir voru 240
árið 2019 og 222 á vertíðinni 2018.
Leyfishafar, sem ekki hafa nýtt leyfi
sín á tímabilinu 2013-2018, munu
ekki eiga tilkall til kvótaúthlutunar.
2% kvótaþak
Frumvarpið gerir ráð fyrir að sam-
eina megi tvo eða fleiri grásleppu-
kvóta á einn bát öfugt við það sem
leyfilegt er í núverandi kerfi hvað
dagana áhrærir. Til þess að sporna
gegn of mikilli samþjöppun veiði-
heimilda og fækkun báta er miðað
við að enginn einstaklingur eða
félag megi eiga hærra hlutfall af
heildaraflahlutdeild í grásleppu en
2%. Bent er á að hlutdeild aflahæsta
grásleppubátsins á árunum 2013-
2018 hafi verið á bilinu 1,0%-1,40%.
Þess séu dæmi að menn geri út 2-3
báta til þessara veiða og því segi
hámarksafli á bát ekki endilega hver
sé hámarksafli á útgerð.
Þá er ráðherra heimilt, samkvæmt
frumvarpinu, að ákveða staðbund-
in veiðisvæði fyrir grásleppuveiðar
þannig að aðeins geti þar stund-
að veiðar bátar sem skráðir séu
frá byggðarlagi við hlutaðeigandi
veiðisvæði og útgerð bátsins eigi
þar heimilisfesti.
Ókostir núverandi kerfis
Í greinargerðinni með frumvarpinu
segir að kostirnir við kvótasetn-
ingu grásleppuveiða séu ótvíræðir:
ábyrgari og fyrirsjáanlegri fiskveiði-
stjórnun, meiri sveigjanleiki fyrir þá
sem stundi veiðarnar og einfaldari
stjórnsýsla. Ókostirnir við núverandi
kerfi felist í því að erfitt sé að halda
veiðinni innan leyfilegs heildarafla.
Þá séu veiðarnar bundnar ákveðnum
samfelldum dögum sem þýði að
þegar leyfi sé virkjað á bát byrji
dagarnir að telja óháð veðri sem
geti ýtt undir að veitt sé þótt veður
séu slæm eða óæskilegur meðafli
sé mikill, svo sem fugla og sjávar-
spendýra sem aftur leiddi til þess
að veiðarnar hafi misst umhverfis-
vottun. Þá sé ekki unnt að taka til-
lit til bilana, veikinda eða annarra
ófyrirsjáanlegra tafa. Auk þess sé
breytilegt milli ára hversu margir
virki leyfi til veiðanna.
„Auðlindaþjófnaður“
Frumvarp sjávarútvegsráðherra var í
samráðsgátt stjórnvalda 4.-18. sept-
ember síðastliðinn og bárust alls 64
umsagnir. Af þeim voru 37 jákvæðar
gagnvart kvótasetningu, 22 nei-
kvæðir og 5 á báðum áttum. Einna
harðasta gagnrýnin á frumvarpið
kom frá smábátafélaginu Hrollaugi
á Hornafirði. Þar er frumvarpið lýst
sem „aðför að nýliðun og auðlinda-
þjófnaður, svo ekki sé meira sagt.“
Í umsögninni segir ennfremur:
„Það eru ekki almannahagsmunir að
kvótasetja grásleppu heldur sérhags-
munir ætlaðir örfáum aðilum. Sagan
segir okkur að samþjöppunin hefst á
fyrsta degi og aðgengi sjávarbyggða
og íbúa þeirra að nýtingu auðlinda
sinna hverfur skref fyrir skref. Örfáir
aðilar munu njóta ávinningsins en
heildin ekki.“
Það er álit félagsins að eina
breytingin sem gera þurfi á núver-
andi kerfi sé að svæðaskipta heildar-
afla grásleppu og miða við fjölda
báta innan hvers svæðis á hverju ári.
Álit Landssambands
smábátaeigenda
Síðasti aðalfundur Lands sambands
smábátaeigenda (LS) í október
2019 lýsti sig mótfallinn kvóta-
setningu grásleppu. Árið áður
leiddi skoðunarkönnum sem LS
gerði meðal félagsmanna í ljós að
54,8% svarenda vildu áfram núver-
andi veiðistjórnun en 45,2% vildu
kvóta. Í umsögn LS um frumvarpið
í samráðsgátt stjórnvalda er bent á
að málið sé áfram til umræðu innan
samtakanna og framundan séu aðal-
fundir svæðisfélaga og aðalfundur
LS boðaður 15. október n.k.
Í umsögninni er þess getið að LS
hafi á undanförnum árum lagt til
ýmsar lagfæringar á fyrirkomulagi
veiðanna, m.a. að sameina leyfi, en á
milli 25 og 35 bátar geri út 2 báta eða
fleiri á hverri vertíð. Við sameiningu
yrði þess gætt að hún myndi ekki
leiða til sóknaraukningar með því
að dagafjöldi ykist aðeins um 50%
þegar leyfi tveggja jafnstórra báta
yrði að einu.
Annar þáttur hagræðingar fyrir
grásleppusjómenn fælist í því að
hægt yrði að gera hlé á veiðum
með því að taka upp netin. Dagar
sem liðu þar til þau yrðu lögð aftur
teldust ekki til veiðidaga. Með því
mætti minnka hættu á netatjóni fyr-
irsjáanlegrar brælu, draga úr hættu
á óæskilegum meðafla og taka tillit
til veikinda og bilana svo eitthvað
væri nefnt.
LS segir að sjávarútvegsráðherra
hafi ekki orðið við óskum LS um
þessi tvö atriði.
Þá bendir LS einnig á í umsögn
sinni að veiðistjórn m.t.t. aflaráð-
gjafar Hafró hafi tekist prýðilega.
Á 10 ára tímabili 2011 – 2020 hafi
samanlög ráðgjöf Hafró verið 50.100
tonn á móti 50.000 tonna afla.
Á komandi aðalfundi Lands-
sambands smábátaeigenda verða
vafalaust heitar umræður um þetta
umdeilda frumvarp sjávarútvegs-
ráðherra.
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
Haustið er tíminn til að setja
niður haustlauka og undir-
búa blómstrandi og litríkt
vor. Mikið úrval tegunda er
í boði og fjölbreytileiki hvað
varðar lit, lögun og hæð við
allra hæfi.
Keisarakróna er glæsileg
planta sem verður allt að einn
metri á hæð. Til í appelsínu-
gulum eða gulum lit. Blómgast
í maí til júní. Kýs þurran, sólríkan
og skjólgóðan stað í garðinum
undir stærri trjám eða runnum
sem skýla henni gegn nætur-
frostum á vorin. Keisarakróna
lifir árum saman hér í görðum
þar sem henni hafa verið búnar
réttar aðstæður, til dæmis í skjóli
við húsvegg.
Laukur keisarakrónu er
stundum kallaður músafælu-
laukur vegna þess að af honum
er sterk lykt sem mýs fælast.
Skera skal laukinn í nokkra bita
og dreifa honum innandyra þar
sem hætta er á músagangi, til
dæmis í húsbílum, tjaldvögnum,
sumarbústöðum og útihúsum.
Viðkvæm planta sem blómgast
eingöngu við bestu skilyrði.
Krókus blómgast snemma á
vorin en einnig eru til tegund-
ir sem blómgast að hausti.
Lágvaxnir og til í mörgum
litum. Fallegt að planta krók-
usum í litlar þyrpingar, 10 til 20
saman, í grasflötina eða dreifa
þeim handahófskennt og fylgj-
ast með þegar þeir koma upp
á vorin.
Hátíðarliljur fást í ótal til-
brigðum og í mörgum flokkum
eftir blómgerð og uppruna. Þeim
þykir gott að standa lengi á sama
stað. Yfirleitt mjög harðgerðar og
fjölga sér mikið með tímanum.
Páskaliljur blómgast yfirleitt í
lok maí og verða 40 til 50 sentí-
metra háar. Til er fjöldi afbrigða
en gul afbrigði þrífast best. Aðrar
narsissur blómgast fyrr, jafnvel
seint í mars eða byrjun apríl, til
dæmis hin smágerða 'Tete-á-
Tete‘ sem mikið er selt af í pott-
um um páskaleytið. Eftir blómg-
un má gróðursetja plöntuna eins
og hún kemur fyrir í pottinum úti
í garðinum og þar kemur hún upp
og blómgast á hverju vori.
Perluliljur eru 10 til 20 sentí-
metrar á hæð. Blómin blá, perlu-
laga og í klösum. Náttúruleg
heimkynni í Litlu-Asíu og Suður-
Evrópu. Fara vel sem bryddingar
með túlípönum og páskaliljum
sem blómgast á svipuðum tíma
og þær. Nokkuð viðkvæmar, þola
illa raka og rask en þar sem vel
fer um þær eflast þær með hverju
ári.
Skrautlaukar eru nokkrar mis-
munandi tegundir af laukaætt-
kvíslinni. Blómsveipurinn efst
á lauflausum stöngli sem getur
orðið allt að einn og hálfur metri
að hæð, en er yfirleitt mun lægri.
Dafna best á sólríkum og skjól-
góðum stað. Allir skrautlaukar
þurfa frjóan og vel framræstan
jarðveg, stórvöxnustu tegundir-
nar þurfa að fara um 20 til 25
sentímetra djúpt,en smágerðari
tegundum nægir 10 sentímetra
dýpi.
Vetrargosar eru harðgerðir og
með fyrstu laukunum sem koma
upp á vorin. Fjölga sér mikið svo
að hægt er að skipta þeim upp á
nokkurra ára fresti. Vetrargosar
eru hvítir á litinn og verða 10 til
20 sentímetra háir. Skuggþolnir
og fallegt að planta þeim í beð
milli trjáa og runna.
Vorboði blómstra gulum
blómum eldsnemma á vorin,
jafnvel í febrúar eða snemma í
mars. Mjög harðger og á það til
að þroska fræ og fjölga sér með
sáningu. Hnýðin eru fremur smá-
gerð og því gróðursett grunnt, 5
til 7 sentímetra. /VH
STEKKUR NYTJAR HAFSINS
Haustlaukaval
Leyfishafar, sem ekki hafa nýtt leyfi sín á tímabilinu
2013–2018, munu ekki eiga
tilkall til kvótaúthlutunar.
Alls eru grásleppuveiðileyfin 450, en á síðustu þremur vertíðum tóku 200–240 bátar þátt í veiðunum. Mynd / VH
Bænda
22. október