Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020 57
Lamhúshettur eru alltaf góðar að eiga fyrir
þau minnstu.
DROPS Design: Mynstur bm-103-by
Stærðir: (<0) 0/1 (1/3) 6/9 (12/18) mánaða 2 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 (56/62) 68/74 (80/86) 92
Höfuðmál: (28/32) 34/38 (40/42) 42/44 (44/46)
48/50 cm
Garn: DROPS BABY MERINO (fæst í
Handverkskúnst)
- 50 (50) 50 (50) 50 (100) g Litur á mynd:
ljóstúrkis nr 10
Prjónfesta: 27 lykkjur x 32 umferðir í sléttu
prjóni = 10x10 cm.
Prjónar: Sokkaprjónar og hringprjónn 40 cm,
nr 3.
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.
ÚRTAKA (á við um miðju aftan á húfu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu. Byrjið 3 lykkjum á
undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúið slétt
saman / 2 lykkjur snúið brugðið saman (fer eftir
stroffi), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki mitt að
aftan situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur
slétt saman / 2 lykkjur brugðið saman (fer eftir
stroffi) = 2 lykkjur færri.
ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju í byrjun á
brugðnu einingunni með því að slá 1 sinni uppá
prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjóna-
ður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.
Í næsta skipti sem aukið er út er slegið 1 sinni uppá
prjóninn í lok brugðnu einingar.
Haldið svona áfram með útaukningu til skiptist í
byrjun og í lok hverrar brugðnu einingar.
ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna
út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í
umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda
útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 7,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá
prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í
næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn
svo að ekki myndist gat.
HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna
frá miðju á höfði og niður að hálsi, síðan er prjón-
að í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Að lokum er prjónaður kantur í kringum andlit.
HÚFA: Fitjið upp (84) 84 (84) 92 (92) 100 lykkj-
ur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hring-
prjón nr 3 með Baby Merino. Prjónið 2 umferðir
garðaprjón – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 2
umferðir slétt prjón með 1 kantlykkju garðaprjón
í hvorri hlið.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1
kantlykkja í garðaprjóni, *2 lykkjur slétt, 2
lykkjur brugðið*, prjónið frá *-* þar til 3 lykkj-
ur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og
endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setjið 1
prjónamerki mitt í umferð þannig að það verða
(42) 42 (42) 46 (46) 50 lykkjur hvoru megin við
prjónamerki (= mitt að aftan). Haldið áfram með
stroff fram og til baka. JAFNFRAMT þegar stykkið
mælist (1) 1 (1) 2 (2) 2 cm fækkið um 2 lykkjur
mitt að aftan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum
svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri
umferð frá réttu) alls 16 sinnum = (52) 52 (52)
60 (60) 68 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til
stykkið mælist (11) 12 (13) 14 (15) 16 cm. Í lok
næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp (4) 4
(4) 4 (8) 8 nýjar lykkjur (= mitt að framan undir
höku) = (56) 56 (56) 64 (68) 76 lykkjur. Setjið
1 prjónamerki í stykkið – héðan er nú mælt.
Setjið stykkið saman á hringprjón og prjónið
stroff hringinn yfir allar lykkjurnar (= 2 lykkjur
slétt, 2 lykkjur brugðið – stroffið á að ganga jafnt
upp alla leiðina hringinn).
Þegar stykkið mælist (2) 2½ (2½) 2½ (3) 3 cm frá
nýja prjónamerkinu, er aukið út í allar 2 lykkjur
brugðið til 3 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1=
aukið út um (14) 14 (14) 16 (17) 19 lykkjur. Aukið
svona út með 2 cm millibili alls (2) 2 (2) 2 (3)
3 sinnum = (84) 84 (84) 96 (119) 133 lykkjur.
Þegar stykkið mælist (8) 9 (9) 10 (11) 11 cm frá
nýja prjónamerkinu er fellt laust af með sléttum
lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum
yfir brugðnar lykkjur.
FRÁGANGUR: Saumið húfuna saman efst, saumið
í ysta lykkjubogann á lykkjum í uppfitjunarkanti,
þannig að saumurinn verði ekki of þykkur.
KANTUR Í KRINGUM OP AÐ FRAMAN:
Prjónið upp ca 52 til 84 lykkjur í kringum op að
framan á húfunni, þ.e.a.s. í kringum andlit (notið
heklunál og þráð þegar lykkjurnar eru prjónað-
ar upp þannig að kanturinn þar sem lykkjur eru
teknar upp verði fallegur). Skiptið lykkjum niður á
sokkaprjóna. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið
er út jafnt yfir til (60) 68 (72) 80 (88) 92 lykkjur
– ATH: Ekki auka út yfir miðju (6) 6 (6) 6 (10) 10
lykkjur undir hálsi – sjá ÚTAUKNING-2. Prjónið 1
umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið síðan
stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið)
þar til kanturinn mælist ca (4) 4½ (4½) 5 (5) 5½
cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar
lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur,
en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn
verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir
8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (upp-
slátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
FRÁGANGUR:
Brjótið uppá stroffið í kringum opið á húfunni
tvöfalt að röngu og saumið niður með smáu spori.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garn.is
Baby Legolas lambhúshetta
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3 7 8 1 4 6
7 3 2
1 4 9 6 8
2 3 7 4
6 5 4 8 3
4 5 7 9
3 1 2 8 9
5 9 6
2 1 8 5 6 7
Þyngst
6 9 7
1 2 8 3 9
3 6 5 2
6 1 3 8
9 8 6
5 7 4 2
7 4 9 3
6 4 8 2 7
3 1 5
1 9 7 2
2 4 5 6
5 4
7 3 1 2 6
2 3
6 1 8 5 7
5 7
9 4 5 3
2 8 6 4
1 5
4 8 1
6 7 4 2 8
8 1 6
2 6
2 3 7
4 5 3 1 9
9 8 2
8 3
Íslensk kjötsúpa
er uppáhaldsmaturinn
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Kjartan Steinn Jónasson er
12 ára fótbolta strákur sem er
fæddur í Bolungarvík. Hann á 2
eldri bræður Guðmund 17 ára og
Ragnar 22 ára. Í sumar flutti hann
til Akureyrar.
Nafn: Kjartan Steinn Jónasson.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Vog.
Búseta: Akureyri.
Skóli: Brekkuskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Íslensk kjötsúpa.
Uppáhaldshljómsveit: Hvanndals
bræður.
Uppáhaldskvikmynd: Star Wars.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var að
leika mér úti og datt á hökuna og það
þurfti að sauma sárið saman.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Fótboltamaður.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Fara í viðtal við Man.
City sjónvarpsstöðina á ensku án þess
að kunna neitt í ensku. Ég svaraði
bara yes eða no og fékk verðlaun fyrir
rétt svör.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Fór á fótboltamót og flutti
til Akureyrar.
Næst » Kjartan skorar á Halldóru
Björg Pétursdóttur að svara næst.