Bændablaðið - 08.10.2020, Side 20

Bændablaðið - 08.10.2020, Side 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202020 Hátækni í landbúnaði, sem ýmist er kölluð „Agtech“ eða „Agritech“ er tiltölulega ný skilgreining. Hún snýst um að auka skilvirkni og sjálfbærni í landbúnaði með inn- leiðingu á nýjustu tækni, ekki síst í líftækni og jafnvel gervigreind. Þessi geiri hefur vaxið gríðarlega á síðustu fimm árum. Undir þessari skilgreiningu hefur sprottið upp fjöldi sprotafyrirtækja um allan heim og er vöxtur þeirra mjög hraður þrátt fyrir COVID-19. Samkvæmt fjármálariti Forbes jókst veltan í greininni um 40% á árinu 2018, eða í 17 milljarða dollara. Í júní síðastliðnum var búið að fjárfesta fyrir 8,8 milljarða dollara í greininni í 798 samning- um í Bandaríkjunum á fyrstu sex mánuðum ársins. Enda er talið að hátæknilandbúnaður geti skipt sköp- um við að brauðfæða ört vaxandi mannfjölda á jörðinni. Um 130 milljarðar dollara í hátæknilandbúnað á heimsvísu Agtech-skilgreiningin nær yfir nán- ast alla þætti tækniinnleiðinga, allt frá hugbúnaði til jarðvegsrannsókna, plöntuþróunar, gróðureftirlits, vaxt- arstýringa og nýtingu gervihnatta í þágu landbúnaðar og gervigreind. Forbes hefur eftir stjórnanda hjá Better Food Ventures að í ágúst síðastliðnum hafi verið áætlað að um 130 milljarðar dollara væru í stýringu fjárfestingasjóða í Agtech- iðnaði á heimsvísu. Undir þessa skilgreiningu fellur líka innleiðing sjálfvirkni í ýmsum greinum land- búnaðar. Hátækni innleidd í hamrækt Á Íslandi hefur mikið farið fyrir ræktun á iðnaðarhampi á undan- förnum misserum. Þessi grein er ekki undanskilin í umræðum um innleiðingu á hátækni til að auka enn meira á skilvirkni í ræktun á þessari hraðvaxta jurt. Það er þó ekki bara á Íslandi sem áhuginn á ræktun iðnaðarhamps er mikil. Sem dæmi þá varð 600% aukning í ræktun á iðnaðarhampi í Evrópu frá 1993 til 2018, einkum vegna áhuga á CBD-olíu og að nýta hamp í matvælaframleiðslu og margvís- legar iðnaðarvörur. Ræktun iðnað- arhams hefur verið viðurkennd lengi í bandarískum lögum og nú einnig víða á ræktun kannabis sem inniheldur virka efnið THC. Sömu sögu er ekki að segja frá Evrópu þó líkt og á Íslandi hafi verið slakað á löggjöf um ræktun á iðnaðarhampi í mörgum Evrópuríkjum. Gríðarlegur vöxtur Vegna gríðarlegs vaxtar í greininni hafa fjárfestar verið að sýna hamp- ræktinni einstaklega mikinn áhuga. Kannski ekki skrítið ef litið er til þess að markaður fyrir CBD-vörur hefur vaxið úr 0,3 milljörðum dollara árið 2017 í 5,7 milljarða dollara árið 2019. Á þessu ári er talið að veltan verði 11,2 milljarðar dollara og vaxi í 22,9 milljarða dollara á árinu 2022. Meðal fyrirtækja sem fengið hafa stór viðskiptalán vegna hátækniinn- leiðingar í hampræktinni er AgTech Scientific sem fékk 30 milljónir dollara í lok síðasta árs. Fyrirtækið var stofnað 2015 en rekur nú 2 millj- óna ferfeta hátæknigróðurhús í París í Kentucky í Bandaríkjunum, eða um um 667 þúsund fermetra. Fyrirtækið er sagt leiðandi í rannsóknum og tilraunum í hamprækt. Líftæknigeirinn á kafi í hátæknilandbúnaði Meðal fyrirtækja sem hafa verið að fjárfesta í hátæknilandbúnað- arlausnum er Sound Agricultural sem er líftæknidrifið efna- og plöntuþróunarfyrirtæki sem setti 22 milljónir dollara í slíka tækni í maí. Fyrsta vara fyrirtækisins er kölluð SOURCE og virkjar örverur í jarðvegi til að framleiða meira af köfnunarefni og fosfór. Þannig er ætlunin að draga úr notkun á til- búnum áburði. Fyrirtækið Pivot Bio hafði áður kynnt um 100 milljóna dollara fjárfestingu í apríl, en fyr- irtækið sérhæfir sig, líkt og Sopund Agricultural, í tækni til að draga úr notkun tilbúins áburðar. Hafa rann- sóknir Pivot Bio í um 50 ára skeið þróað hvata til að auka köfnunarefni í jarðvegi. Er þessi tækni sögð eiga að auka uppskeru og tekjur bænda. Fleiri fyrirtæki, eins og Geltor í Bandaríkjunum, safnaði um 91 milljón dollara fjármögnun í gegnum CPT Capital inn í þennan geira í júlí. Þarna er um að ræða líftæknifyrir- tæki sem vinnur að þróun í sjálfbærri ræktun án tilbúins áburðar, bæði fyrir matvæla- og snyrtivöruiðnaðinn og framleiðslu bætiefna. Þar er m.a. um að ræða framleiðslu á próteinum eins og collagen og elastin, en eingöngu úr jurtaríkinu. Collagen er þó oftast framleitt úr fiski, fiskroði, eggj- um og nautgripabeinum, enda má segja að collagen sé límið sem held- ur bandvef, húð og brjóski saman og er um þriðjungur alls próteins í mannslíkamanum. Orðið collagen er meira að segja dregið af gríska orðinu kólla (κόλλα) sem þýðir lím. Fyrirtækið iFarm er líka nefnt í þessu sambandi, en það er með höfuðstöðvar í Finnlandi og sér- hæfir sig í gróðurhúsatækni. Það var stofnað 2017, en fyrir skömmu var tilkynnt um 4 milljóna dollara innspýtingu í það fyrirtæki í gegn- um fjárfestingasjóði. Fyrirtækið er með um 50 vörur í framleiðslu fyrir viðskiptavini í Evrópu og Mið- Austurlöndum. Það hefur verið að gera tilraunir með ræktun á jarðar- berjum, cherry-tómötum, papriku, radísum og fleiru. Nefna má enn eitt fyrirtækið í hátæknigeiranum. Það er Unfold sem sérhæfir sig í tækni er varð- ar lóðrétta ræktun (vertical farm- ing). Fjárfestingaarmur Bayer kom núverið með 30 milljónir dollara inn í þetta fyrirtæki. Þessi tegund ræktunar er stöðugt að aukast, ekki síst í þéttbýli. Náttúruvæn varnarefni Kanadíska líftæknifyrirtækið MustGrow Biologic er líka dæmi um nýja hugsun í þróun varnar- efna í stað eiturefna í landbúnaði. Eiturefnageirinn er sagður velta 65 milljörðum dollara á ári og því eftir miklu að slægjast ef hægt er að þróa efni sem valda ekki skaða á náttúrunni. Í því augnamiði hefur MustGrow Biologic verið að þróa náttúruvænt varnarefni sem unnið eru úr fræjum sinnepsjurtarinnar. Hátæknin er líka í dýraeldi Hátæknin er líka að ryðja sér til rúms í dýraeldi, kjöt- og mjólkur- framleiðslu. Verið er m.a. að inn- leiða tölvutækni sem fylgist með fóðrun, vaxtarhraða og líðan naut- gripa í fjósum. Vaxandi áhersla er líka lögð á innleiðingu á tækni til að auka dýraheilbrigði. Genatækninni er þar líka beitt til að fá fram hag- kvæmari gripi. Markaðsvirði naut- griparæktarinnar í Bandaríkjunum einum er metið á 30 milljarða dollara á ári, en þar eru um 9 millj- ónir mjólkurkúa. Fjárfestar eru nú farnir að sýna þessari grein veru- legan áhuga. Þá hefur verið bent á að um 12% kúabúa í heiminum noti nú sjálf- virka mjaltaþjóna. Búist er við að sú tala hækki í 20% á næstu fimm árum. Þar standa íslenskir bændur einna fremstir á heimsvísu. Hátækni í vélbúnaði Margvísleg þjónustufyrirtæki eru að spretta upp í kringum landbún- aðinn og allt snýst þetta um að auka skilvirkni og spara dýrmætan tíma. Eru sum fyrirtæki eins og dráttar- vélaframleiðandi John Deere farin að tala um að bændur muni í æ ríkara mæli stíla á miðlægar þjón- ustumiðstöðvar og fylgjast með öllum búnaði í rauntíma í gegnum tölvur. Þar með t.d. samtengingu á mannlausum dráttarvélum úti á akrinum og allan mælaaflestur t.d. varðandi eldsneytiseyðslu yfir netið, þráðlausa bilanagreiningu og jafn- vel viðgerðir í gegnum tölvur frá sér stökum þjónustumiðstöðvum. Flestir framleiðendur dráttarvéla og annarra landbúnaðartækja hafa líkt og John Deere verið að tileinka sér hátæknina í þróun á sínum búnaði. FRÉTTASKÝRING Hörður Kristjánsson hk@bondi.is COVID-19 Fjárfestar keppast nú við að dæla fjármunum inn í hátæknigeirann í landbúnaði sem ýmist er nefndur „Agtech“ eða „Agritech“. Hátæknilandbúnaður er nú innleiddur í hampræktina enda er veltuaukningin í þeim geira, eins og á vörum sem innihalda CBD-olíu, ævintýralegur. Hefur veltan í þeim geira 37-faldast frá 2017 ef áætluð velta 2020 er tekin með. Risagróðurhús AgTech Scientific í Kentucky í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur verið að sérhæfa sig í hátæknilausnum í þróun og tilraunum í ræktun á hampi. Mynd / AgTech Scientific Sound Agricultural sem er líftækni- drifið efna- og plöntuþróunarfyrir- tæki sem setti 22 milljónir dollara í hátækni í maí. Fyrsta vara fyrirtækis- ins er kölluð SOURCE og virkjar ör- verur í jarðvegi til að framleiða meira af köfnunarefni og fosfór. Þannig er ætlunin að draga úr notkun á tilbún- um áburði.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.