Bændablaðið - 08.10.2020, Qupperneq 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202040
Skortur á slökkvivatni til sveita
og löng bið eftir slökkviliði
Nær þriðjungur bænda, eða rúm-
lega 30 prósent, telja að ekki sé
nægur og greiður aðgangur að
slökkvivatni í nálægð við útihús,
samkvæmt könnun sem Gallup
gerði fyrir Eldvarnabandalagið.
Í niðurstöðum könnunarinnar
kemur einnig fram að stór hluti
bænda býr í talsverðri fjarlægð
frá næstu slökkvistöð og getur
því liðið talsverður tími frá
því slökkviliði berst útkall uns
slökkvistarf getur hafist.
Að meðaltali segist ríflega
fimmtungur bænda búa í meira
en 30 kílómetra fjarlægð frá
næstu slökkvistöð. Hlutfallið er
hærra í einstökum landshlutum en
Austurland sker sig algerlega úr að
þessu leyti. Þar segjast 43 prósent
bænda búa í meira en 30 kílómetra
fjarlægð frá slökkvistöð og önnur 14
prósent í 21-30 kílómetra fjarlægð.
Það er því ljóst að viðbragðsgeta
bænda sjálfra getur ráðið miklu
um afleiðingarnar ef eldur kemur
upp. Til samanburðar búa aðeins
11 prósent bænda á Suðurlandi í
meira en 30 kílómetra fjarlægð frá
slökkvistöð.
Slæmt ástand eldvarna
Gallup gerði könnunina í apríl síð-
astliðnum. Úrtakið var 1.522 manns
af meðlimaskrá Bændasamtakanna.
Þátttökuhlutfall var mjög gott eða
45,7 prósent og bárust 696 svör.
Eins og fram kom í síðasta
tölublaði Bændablaðsins eru tals-
verðar brotalamir á eldvörnum í
úti- og gripahúsum bænda hér á
landi samkvæmt könnun Gallup
fyrir Eldvarnabandalagið. Ljóst
er að ástand viðvörunarbúnaðar,
brunahólfunar og slökkvibúnað-
ar er slæmt hjá mörgum. Þannig
segja 62 prósent bænda að ástand
viðvörunarbúnaðar sé frekar slæmt
eða mjög slæmt og þar af segja 42,6
prósent að ástandið sé mjög slæmt.
Næstum því helmingur svarenda
segir ástand slökkvibúnaðar frekar
eða mjög slæmt. Þá kemur í ljós að
aðeins 27,3 prósent hafa gert rým-
ingaráætlun fyrir gripahús.
Löng bið eftir slökkviliði
Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri
Brunavarna Árnessýslu og formaður
Félags slökkviliðsstjóra, segir að um
það bil 20 mínútur geti liðið frá því
slökkvilið fær boð um útkall uns
slökkvistarf á vettvangi geti hafist
ef aka þarf 20 kílómetra leið á vett-
vang og nærri 30 mínútur ef fara
þarf 30 kílómetra. Er hér miðað við
bestu akstursaðstæður. Því sé afar
mikilvægt að bændur hafi búnað og
aðgang að slökkvivatni til að tryggja
fyrstu viðbrögð á vettvangi áður en
aðstoð berst.
„Bændur geta heft útbreiðslu
elds á byrjunarstigi og bjargað verð-
mætum ef þeir hafa tiltækan búnað,
slökkvitæki og brunaslöngur. Það
er einnig að sjálfsögðu mikilvægt
að við höfum nægan og greiðan
aðgang að vatni þegar við komum
á vettvang,“ segir Pétur.
Áhyggjur af frauðplastinu
Pétur segir slökkvilið hafa sér-
stakar áhyggjur af slökkvistarfi í
útihúsum þar sem eldfim efni eins
og frauðplast eru notuð til einangr-
unar. Samkvæmt könnun Gallup
reynist það vera tilfellið í um 40
prósent tilvika. Nái eldur að læsa
sig í frauðplast breiðist hann út með
ógnarhraða og eru dæmi um að
slökkvistarf hafi í slíkum tilvikum
verið afar erfitt og jafnvel vonlaust.
Baldur Pálsson, fyrrverandi
slökkviliðsstjóri, og Haraldur Geir
Eðvaldsson, núverandi slökkviliðs-
stjóri Brunavarna á Austurlandi,
rituðu grein um slíkan eldsvoða
í Bændablaðið fyrr á árinu. Þar
segir: „Slökkviliðin innan vébanda
Brunavarna á Austurlandi eru fimm
og fengu það hlutverk fyrir nokkrum
árum að brenna íbúðarhús ásamt
stóru fjósi á Fljótsdalshéraði, en
fjósið var einangrað með frauð-
plasti í þaki. Eftir að æfingunni í
íbúðarhúsinu lauk létum við eldinn
ná fjósinu og skipti engum togum
að um leið og eldurinn náði plast-
inu í þakinu hófst hraður bruni og
hitamyndun svo hröð að við trúðum
vart okkar eigin augum.“
Alelda á örfáum mínútum
Þá segir í grein Baldurs og
Haraldar: „Um leið hófst eldrign-
ing frá plastinu sem eins og mynd-
aði eldvegg þvert yfir húsið og fór
eldveggurinn hratt eftir endilöngu
húsinu og kveikti í öllu sem niðri
var. Það liðu aðeins 12 mínútur þar
til allir gluggar voru sprungnir út
og eldsúlan sem þá myndaðist upp
um strompinn náði alveg tveimur
til þremur metrum á hæð. Eftir
20 mínútur var allt brunnið sem
brunnið gat í húsinu.
Reykur frá frauðplasti er
baneitraður og mjög hættulegur
mönnum og skepnum langt út
fyrir brunastað. Því þarf alltaf að
nota reykköfunartæki við slökkvi-
starf jafnt innan- sem utanhúss.
Samkvæmt framanrituðu er alveg
ljóst að slökkvilið koma alltaf of
seint þar sem plastbruni í þökum á
sér stað og engu verður bjargað.“
Notkun frauðplasts til ein-
angrunar í útihúsum er einmitt
langalgengust á Austurlandi,
eða sem nemur 52 af hundraði.
Sambærilegt hlutfall á Suðurlandi
er 30 prósent.
Fátíðar heimsóknir eftirlitsaðila
Athygli vekur hve hátt hlutfall
bænda segist aldrei hafa fengið
heimsókn frá slökkviliði eða
áhættuskoðun tryggingafélags.
Samkvæmt könnun Gallup seg-
ist rúmlega helmingur bænda
aldrei hafa fengið slíka heim-
sókn. Tíu prósent bænda segjast
hafa fengið heimsókn slökkviliðs
eða tryggingafélags á þessu ári
og fyrir ári síðan en aðrir segja
lengra um liðið eða alls ekki.
Rúmlega fimmtungur segir að
meira en fimm ár séu liðin frá
síðustu heimsókn slökkviliðs eða
tryggingafélags og sem fyrr segir
hefur rúmlega helmingur aldrei
fengið þessa aðila í heimsókn.
Loks var spurt hversu vel eða
illa bændur hefðu kynnt sér rit
Bændasamtakanna, Öryggi og
vinnuvernd í landbúnaði. Ritið
var gefið út 2016 í tengslum við
verkefnið Búum vel – öryggi –
heilsa- umhverfi og var dreift til
allra lögbýla í landinu. Í ljós kom
að fjórðungur bænda hafði kynnt
sér ritið vel, 38,6 prósent svöruðu
hvorki né og 36,4 prósent kváð-
ust hafa kynnt sér það illa eða alls
ekki.
Eldvarnabandalagið er sam
starfs vettvangur um auknar
eldvarnir. Aðild að því eiga:
Eignarhaldsfélagið Bruna-
bótafélag Íslands, Félag
slökkviliðsstjóra, Húsnæð-
is- og mannvirkjastofnun,
Landssamband slökkviliðs-
og sjúkraflutningamanna,
Sjóvá-Almennar tryggingar
hf., Slysavarnafélagið Lands-
björg, Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins, TM hf., VÍS hf. og
Vörður tryggingar hf. www.
eldvarnabandalagid.is
Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri
Brunavarna Árnessýslu og formaður
Félags slökkviliðsstjóra.
Mjög gott; 3,4%
Frekar gott;
19,4%
Hvorki né;
29,5%
Frekar slæmt;
24,7%
Mjög slæmt;
22,9%
Ástand slökkvibúnaðar í útihúsum
Heimild: Gallup Graf / Bændablaðið HKr.
Að meðaltali segist ríflega fimmtungur bænda búa í meira en 30 kílómetra fjarlægð frá næstu slökkvistöð. Hlutfallið
er hærra í einstökum landshlutum en Austurland sker sig algerlega úr að þessu leyti. Þar segjast 43 prósent bænda
búa í meira en 30 kílómetra fjarlægð frá slökkvistöð og önnur 14 prósent í 21-30 kílómetra fjarlægð. Þessi mynd er
frá Norðurfirði á Ströndum, en þaðan eru 104 km til Hólmavíkur. Mynd / Hörður Kristjánsson
Austurvegi 69 // 800 Selfoss
480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is
LANDBÚNAÐARDEILD AFLVÉLA
eigum nokkrar
Valtra eftirársVélar
Valtra T234 D, Valtra N134 A, Valtra N114 EH5, Valtra N154 EA