Bændablaðið - 08.10.2020, Qupperneq 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020 45
LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA
Hvað er eiginlega þetta kolefni?
Kollegi minn fékk þessa spurn-
ingu einu sinni, hálfpartinn í
gríni held ég. Og þó. Til að hafa
sæmilegan skilning á frumefninu
kolefni þarf maður helst að hafa
setið háskólakúrsa í lífefnafræði,
sem fæstir hafa gert. Vegna sér-
stakra eiginleika kolefnisatóma,
umfram önnur frumefni, við að
mynda tengingar við önnur atóm
fær kolefni þá sérstöðu að heilu
fræðigreinarnar fjalla eingöngu
um það. Sumir segja að kolefni sé
undirstaða lífs. Mér finnst réttara
að segja að líf sé einn eiginleika
kolefnis.
Líf er sú birtingarmynd kolefnis
sem við höfum hvað mestan áhuga
á, enda erum við lífverur. Þó er mun
meira kolefni í efnasamböndum utan
lífríkisins, t.d. í koltvísýringi (CO2)
og metani (CH4) sem eru gastegund-
ir, eða í kalksteini eða silfurbergi
(CaCO3) sem er grjót. Ekki er síður
mikið kolefni í hafinu, t.d. í formi
uppleysts CO2, í skeljum dýra og í
seti.
Þegar talað er um kolefnisforða er
átt við að kolefni finnist í mismun-
andi formi, í mismiklu magni og á
mismunandi stöðum. Koltvísýringur
og metan mynda aðalkolefnisforða
andrúmsloftsins. Kolefnisforðar á
yfirborði jarðar eru einkum í lifandi
og dauðum lífverum og í jarðvegi og
vatni í margs konar efnasamböndum.
Neðanjarðar eru stórir kolefnisforðar í
kolum, olíu og jarðgasi sem er lífrænt
kolefni úr fornum skógum eða seti.
Stór hluti kalksteins í heiminum er
einnig upprunninn í lífríkinu, úr skelj-
um í sjávarseti og fornum kóralrifjum.
Kolefni færist á milli þessara forða
og er þá talað um kolefnishringrás.
Ljóstillífun í laufblöðum plantna nýtir
sér CO2 úr andrúmsloftinu og vatn
neðan úr jarðveginum sem hráefni og
sólarljós sem orkugjafa til að búa til
sykrusameindina glúkósa (C6H12O6),
sem er keðja kolefnisatóma með
súrefnis- og vetnisatóm tengd við á
ákveðinn hátt. Glúkósa nota síðan
aðrar frumur plantnanna til að búa
til aðrar kolefnissameindir, t.d. til að
mynda stoðvefi (við), forðanæringu
(fjölsykrur og fituefni), amínósýr-
ur (sem mynda prótein), kjarnsýrur
(erfðaefni) og fleiri lífrænar sameind-
ir. Þar með er búið að færa kolefni úr
forða andrúmsloftsins í forða lífrík-
isins. Þar heldur það svo áfram að
flæða. Sumt endar í jarðvegi þegar
smárætur vaxa þar um og drepast
síðan. Sumt færist yfir í dýr þegar
þau éta plönturnar og svo önnur dýr
sem éta þau. Við orkumyndun lífvera,
sem er í raun hægur bruni á lífrænum
kolefnissamböndum, losnar kolefni
aftur út í forða andrúmsloftsins sem
CO2. Það gerist einnig þegar líf endar
og sveppir, bakteríur og
aðrar rotverur taka til við
niðurbrotsiðju sína.
Svipaðar tilfærslur
er hægt að lýsa á milli
annarra kolefnisforða
en ég læt duga að
nefna eina. Það er
sú tilfærsla sem á sér
stað þegar maðurinn
færir gamalt og vel
geymt kolefni úr neðan-
jarðar kola- og olíuforðum,
brennur það sem orku-
gjafa og úr verður CO2
sem bætist í forðann í
andrúmsloftinu.
Allt eru þetta nátt-
úrulegir ferlar. Á undan-
förnum 200 árum hefur
athafnasemi mannsins
hins vegar aukið hraða
tilfærslna á kolefni á
milli forða. Við það hafa
sumir forðar minnkað en
aðrir stækkað. Kola- og
olíuforðinn í jarðlögum
hefur verið fluttur upp
í andrúmsloftið með
milligöngu iðnaðar og
farartækja. Stærsti forði
kolefnis í lífi á landi,
viður trjáa, hefur verið
rýrður mjög verulega
með skógareyðingu
og það kolefni hefur
sömuleiðis endað sem
CO2 í andrúmsloftinu
að mestu. Við ósjálf-
bæra akuryrkju, ofbeit
búfjár og jarðvegsrof rýrnar kolefn-
isforði jarðvegs og endar einnig
uppi í loftinu að mestu. Sömuleiðis
færist kolefni úr kalksteini upp í
andrúmsloftið við sementsvinnslu.
Vandamálið er að allt hefur þetta
verið á einn veg, einstefna upp í
loftið.
Uppsöfnun CO2 í andrúmsloftinu
hefur verið mæld árlega síðan 1958.
Á þeim 62 árum hefur magn þess
aukist um þriðjung. Ekki nóg með
það heldur hefur hert á aukningunni
jafnt og þétt. Þetta er nú farið að
hafa aðrar mælanlegar afleiðingar,
einkum á hita. Skýringuna á því má
finna á veraldarvefnum og því sleppi
ég henni hér, en niðurstaðan er sú að
aukið magn CO2 í andrúmsloftinu
veldur hlýnun í neðri lögum þess.
Afleiðingar þess eru bráðnun jökla,
hækkandi sjávarborð og öfgakenndari
breytileiki í veðri – þurrkar verða
þurrari, stórrigningar verða stærri,
stormar verða sterkari, hitabylgjur
verða heitari og jafnvel kuldaköst
kaldari. Ekki er síður alvarlegt að
aukinn styrkur CO2 í andrúmsloftinu
þýðir að meira af því leysist upp í
hafinu og veldur þar súrnun í gegn-
um ákveðin efnahvörf. Það er aftur
slæmt fyrir skeljamyndun svifdýra
og kórala sem getur haft mjög nei-
kvæð áhrif á allt lífríki sjávar. Það
eru ekki síst slæmu fréttirnar fyrir
okkur Íslendinga.
Til að stemma stigu við verstu
afleiðingum aukningar CO2 í and-
rúmsloftinu er nauðsynlegt að gera
tvennt: draga úr losun og efla leiðir
til að snúa einstefnunni við, þ.e. að
draga CO2 niður úr andrúmsloftinu.
Nærtækasta og skilvirkasta leiðin
til þess er með skógrækt, að vernda
þá skóga sem fyrir eru, rækta nýja
og að auka vöxt þeirra. Þannig er
að langstærstur hluti þess kolefnis
sem tekinn er úr andrúmsloftinu með
ljóstillífun fer í að byggja stoðvefi
trjáa, en kolefni er um 40% af massa
trjáviðar. Í bolum stórra trjáa er því
kolefnisforði sem getur verið bundinn
þar í marga áratugi eða aldir. Eftir því
hvernig sá viður er síðan nýttur getur
kolefnið í honum verið bundið mjög
lengi í viðbót, t.d. í byggingum.
Annar hluti kolefnisins endar í
jarðveginum eins og fyrr sagði. Þar
getur það verið bundið í aldir og árþús-
und-
i r
s v o
fremi
að ekki
verði jarð-
vegsrof. Almennt
gildir að gróður þar sem
lífmassi eykst ár frá ári, eins og í vax-
andi skógi, er einnig að skila kolefni
til jarðvegarins og því meira eftir því
sem vöxturinn er meiri.
Kolefnisbinding með skógrækt
er tvímælalaust örugg og góð leið
til að binda CO2 úr andrúmsloftinu
til langs tíma. Það hlutverk skóga
fer líka vel saman við annan ágóða
skógræktar svo sem jarðvegsvernd,
útivist og timburframleiðslu. Nú er
bara að bretta upp ermar og fara að
gróðursetja.
Þröstur Eysteinsson
skógræktarstjóri
Hvað er kolefnisbinding með skógrækt?
Þröstur Eysteinsson.
Finnsk gæði sem henta vel
fyrir íslenskar aðstæður
VETRARBÚNAÐUR
HILLTIP
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík
551 5464 / wendel.is
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá