Bændablaðið - 05.11.2020, Side 9

Bændablaðið - 05.11.2020, Side 9
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 2020 9 COVID-19 faraldurinn hefur haft verulega neikvæð áhrif á rekstur ferðaþjónustufyrir- tækja á Íslandi og um allan heim. Hótel Saga er þar ekki undan- skilin. Stjórnendur hótelsins eru nauðbeygðir til að loka hótelinu. Önnur starfsemi í húsinu verður óbreytt. Lokunin hefur ekki áhrif á aðra starfsemi í húsinu og verður starf­ semi Bændasamtaka Íslands og annarra samtaka í landbúnaði sem starfa á 3. hæð Bændahallarinnar sem og annarra fyrirtækja og félaga sem eru með starfsemi annars staðar í húsinu óbreytt. Hótelið gengur nú í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu og stendur vinna við hana yfir. Stjórnendur hótelsins voru nauð­ beygðir til að loka hótelinu 1. nóv­ ember síðastliðinn. Gríðarlegur tekjusamdráttur Fyrir liggur að Hótel Saga hefur orðið fyrir gríðarlegum tekjusam­ drætti vegna faraldursins. Mikil óvissa er uppi um hvernig rekstrar­ umhverfi fyrirtækja í ferðaþjónustu mun þróast í nánustu framtíð. Er nú svo komið að stjórnendur þess sjá sér ekki annan kost en að loka því, að minnsta kosti að sinni, þar sem ekki sér enn fyrir endann á far­ aldrinum og engin augljós merki eru um að straumur ferðamanna til Íslands muni aukast á næstu vikum og mánuðum. Nauðbeygð til að loka hótelinu Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstjóri á Hótel sögu, segir að í raun séu stjórnendur hótelsins nauðbeygðir til að loka hótelinu. „Síðustu sóttvarnaraðgerðir gera það að verkum að það er ekki lengur rekstrargrundvöllur til að halda starfseminni gang­ andi. Hótel Saga er stórt hótel og það þarf að lágmarki 15 til 20 starfsmenn til að halda uppi allra nauðsynlegustu þjónustu og tekju­ möguleikar eins og staðan er í dag nánast engir. Þannig að ákvörðunin um að loka var tekin af illri nauðsyn þrátt fyrir að í september hafi verið stefnt að því að hafa opið til ára­ móta eða þangað til að fundin hafi verið laus við endurskipulagningu rekstursins.“ /VH Bústólpi ehf - fóður og áburður • Oddeyrartanga • 600 Akureyri bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is KRAFTBLANDA Inniheldur Effekt Midi Island steinefnablöndu KRAFTBLANDA-30 • 30% fiskimjöl • Óerfðabreytt hráefni • Lífrænt selen KRAFTBLANDA-15 • 15% fiskimjöl • Óerfðabreytt hráefni • Lífrænt selen FRÉTTIR Hótel Saga við Hagatorg. Fremst á myndinni er listaverkið Íslandsmerki eftir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara. Mynd / HKr. Óvissa í hótelrekstri vegna COVID-19: Hótel Sögu lokað Sveitarstjórnir NV-lands: Hafa áhyggjur af lágu afurðaverði Sveitarstjórnir Húnaþings vestra, Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps hafa sent frá sér sameiginlega ályktun þar sem lýst er þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda og seinagangi við birtingu afurða- stöðvaverðs haustið 2020. „Byggðarráð Húnaþings vestra og sveitarstjórnir Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps lýsa yfir þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda og seinagangi við birtingu afurðastöðvaverðs haustið 2020. Sauðfjárrækt er mikilvæg búgrein þessara sveitarfélaga og ein af forsendum búsetu í dreifbýli. Í þessum sveitarfélögum var rúmlega 21% af framleiðslu kindakjöts árið 2019. Á undanförnum árum hafa orðið ábúendaskipti á þónokkrum bújörðum í sveitarfélögunum og yngra fólk með fjölskyldur tekið við. Þessar fjölskyldur efla samfélagið, styðja við þjónustu ásamt því að halda uppi atvinnustigi. Líkt og í öðrum rekstri er mikil­ vægt að sauðfjárbændur fái viðun­ andi verð fyrir sína vöru og hafi þannig forsendur til áætlanagerðar og ákvarðanatöku. Því er skorað á afurðastöðvar að gefa út afurðaverð 2021 fyrir komandi áramót. Samkvæmt samantekt Lands­ samtaka sauðfjárbænda var afurðaverð til íslenskra sauðfjárbænda á síðasta ári það lægsta sem finnst í Evrópu og miðað við nýbirtar verðskrár 2020 er vegið meðalverð 502 kr./ kg. Hefði afurðaverð fylgt almennri verðlagsþróun frá 2014 ætti það að vera 690 kr./kg. Því vantar enn tæpar 200 kr./kg. upp á afurðastöðvaverð fylgi verðlagsþróun. Í heimsfaraldri vegna COVID­ 19 fengu Íslendingar áminningu um mikilvægi innlendrar matvæla­ framleiðslu. Skapa þarf greininni stöðugleika í rekstri til lengri tíma og styðja á öflugan hátt við innlenda matvælaframleiðslu,“ segir í ályktun­ inni. /smh

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.