Bændablaðið - 05.11.2020, Side 10

Bændablaðið - 05.11.2020, Side 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 202010 FRÉTTIR Annaðhvort er að duga eða drepast Tíðindamaður Bændablaðsins var á ferð á dögunum austur í Flóa og ók inn í litla sumarhúsabyggð rétt austan Selfoss. Þar blasti við honum hetjulegur maður uppi á þaki að mála. Þegar málarinn hafði klöngrast niður af þakinu kom í ljós að hann var vel við aldur, fæddur 1932, eða 88 ára gamall. Þetta þótti tíðindamanni magn- að og settist niður og tók spjall við málarann. Hann kvaðst heita Jens Árni Ingimundarson og vera fædd- ur á Djúpavogi, þar sem hann sleit barnsskónum og gerðist sjómaður. – Hvað dró þig suður? „Það var konan, hún hét Karitas Geirsdóttir, hérna frá Hallanda í Flóa, hún er dáin fyrir átján árum. Við bjuggum tvö ár á Djúpavogi en síðan lá leiðin til Reykjavíkur. Hvað starfaðir þú þar? Ég vann hjá Sól h/f, svo hjá Hampiðjunni og Sláturfélagi Suðurlands.“ Oft stutt á milli þess að vera hugaður og heimskur Nú víkur blaðamaður sér að mál- aranum og þessum kjarki í 88 ára gömlum manni að príla uppi á þaki. Jens glottir við tönn og segir: „Það er nú oft stutt á milli þess að vera hugaður og heimskur. Ég fer að öllum reglum, er vel bundinn, svo byrja ég á að skrapa og hreinsa svo þakið með háþrýstidælu áður en ég mála. En ég ek mínum bíl og reyni að halda mér við, fer í líkamsrækt og hef stundað hana í 21 ár og þar sæki ég mér kraft og þrek og liðka mig. Ég tel það allra meinabót að vera í líkamsrækt.“ Drap í síðustu sígarettunni 18. júlí 1992 – Jens, ertu reglumaður? „Nei, nei, ég var reykingamaður en fór til læknis og þá var kransæðastífla að angra mig. Læknirinn sagði mér að hætta að reykja, ég ætti engan annan kost ef ég vildi lifa og verða gamall. Ég tók lækninn á orðinu því lífið er betra en dauðinn. Ég drap í síðustu sígarettunni 18. júlí 1992 klukkan hálfníu um kvöldið, og hef aldrei séð eftir því, var farinn að reykja á annan pakka af Camel á dag.“ – Áttu þér ekki einhver áhuga- mál? „Jú, veiðidella hefur fylgt mér allt lífið, að skjóta af byssu fara á gæs og rjúpu og svo veiðistöngin. Ég hnýti mínar flugur yfir veturinn og veit hvað passar í Veiðivötnin og svo upp í silunginn og sjóbirtinginn hér í Ölfusá, í Kaldaðarnesi eða Auðsholti. Svo fór ég oft hér í Langholt/Hallanda í Hvítá og veiddi laxa í Hallskerinu eða á Breiðunni, stórkostlegt svæði. En Veiðivötnin eru mér kærust, þangað fer ég á hverju sumri og alltaf á afmælisdaginn minn, 6. ágúst.“ – Er fjölskyldan stór? „Nei, við Karitas eignuðumst einn son, sem heitir Sigurður Jensson, og svo á ég uppeldisdóttur sem Karitas átti fyrir, Höllu Margréti Þórarinsdóttur.” Að lokum var málarinn spurður hvort honum hafi dottið það í hug sem ungum manni að hann ætti eftir að sjá sig sem 88 ára gamlan mann uppi á þaki að mála? „Nei, nei, það hugsaði ég aldrei.“ Að duga eða drepast – Eru börnin þá ekki hrædd þegar þú stendur uppi á þaki? „Jú, jú, Þær Halla og Gígja dóttir hennar loka augunum og finnst þetta hættulegt. En þetta er mitt mál, annaðhvort er að duga eða drepast,“ segir Jens Árni Ingimundarson að lokum. /HKr. Jens Árni Ingimundarson hikar ekki við að mála svo sem eitt þak þótt hann sé orðinn 88 ára. Hann segist þó vera vel bundinn og fara eftir öllum reglum. Jens Árni Ingimundarson hefur stundað líkamsrækt í 21 ár. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 DRIFSKÖFT OG DRIFSKAFTAEFNI jardir.is Aðalfundur LK verður haldinn 6. nóvember: Kúabændur kjósa sér nýjan formann Aðalfundur Landssambands kúa- bænda fer fram í 34. sinn föstu- daginn 6. nóvember. Fundurinn er með heldur breyttu sniði þetta árið en hann er haldinn í gegnum fjar- fundarbúnað vegna COVID-19. Mun nýr formaður vera kosinn á fundinum þar sem núverandi formað- ur, Arnar Árnason, gefur ekki kost á sér. Hefur stjórnarmaðurinn Herdís Magna Gunnarsdóttir þegar gefið kost á sér sem formaður. Starfsnefndir fundarins hófu að funda á mánudag og hafa því afgreitt þau mál sem vísað er til þeirra fyrir aðalfundinn sjálfan. Hafa þeir fundir gengið með ágætum og framkvæmdastjóri og formaður setið fundina með nefndunum líkt og hefur verið venjan þegar fund- urinn er staðarfundur. Þá voru aðrir stjórnarmenn á bakvakt á meðan á þeim stóð og gátu hoppað inn eftir þörfum. Félagsmenn geta fylgst með fundinum Fundurinn hefur verið opinn öllum félagsmönnum og því auglýsti LK á miðlum sínum í síðustu viku að þeir sem hefðu áhuga á því gætu haft samband við skrifstofu samtakanna svo hægt væri að veita þeim aðgang að fundinum. Þá hefur einnig verið auglýst eftir framboðum til formanns og stjórnarkjörs en ljóst er að breytingar verða þar á þar sem Arnar Árnason, sitjandi formaður, hefur gefið það út að hann muni ekki gefa áframhaldandi kost á sér. Breytingar í stjórn Þegar blaðið fór í prentun hafði Herdís Magna Gunnarsdóttir ein gefið kost á sér sem næsti formaður samtakanna, en hún hefur setið í stjórn frá 2017. Bess i Freyr Vésteinsson hefur setið í stjórn frá 2016 og gefur áframhaldandi kost á sér ásamt Rafni Bergssyni, sem setið hefur í stjórn frá 2018. Jónatan Magnússon, hefur setið í stjórn frá 2019, en hyggst ekki gefa kost á sér áfram. Það er því ljóst að ýmsar breytingar verða á stjórn samtakanna og hafa Vaka Sigurðardóttir, bóndi á Dagverðareyri og Sigurbjörg Ottesen, bóndi á Hjarðarfelli, gefið kost á sér í stjórn. Allir félagsmenn LK eru þó í kjöri hverju sinni og hægt er að gefa kost á sér allt fram að kosningu á fundinum sjálfum. Af mörgu að taka Starfsárið sem nú er að klárast hefur einkennst af miklum breytingum. Endurskoðun búvörusamninga lauk í lok árs 2019 þar sem horfið var frá því að afnema kvótakerfi í mjólk- urframleiðslu og tilboðsmarkaður greiðslumarks mjólkur var aftur tekinn upp, þó með hámarksverði og hámarki á magni sem hægt er að óska eftir hverju sinni. Tollkvótar hafa aukist og verð á þeim lækkað, verð á nautgripa- kjöti lækkað í tveimur lotum með tilheyrandi tekjuskerðingu bænda og COVID hefur sett sitt mark á starfsumhverfi bænda sem og annarra. Fyrir fundinum liggja 47 tillög- ur frá stjórn og aðildarfélögum en margar eru keimlíkar og ljóst að bændur eru sammála um stóran hluta verkefna sem ráðast þarf í á næst- unni, greininni til heilla. / MG/HKr. Skútustaðahreppur og Þingeyjarsveit: Kosið um sameiningu næsta sumar Samstarfsnefnd Skútustaða- hrepps og Þingeyjarsveitar hefur ákveðið að fresta kosningu um sameiningu sveitarfélaganna um rúma tvo mánuði. Fyrirhugað var að kjósa um sam- einingu sveitarfélaganna tveggja 28. mars 2021, en ákveðið var að færa kosningadaginn til og verður kosið 5. júní næsta sumar. Þykir samstarfsnefndinni rétt að bíða með fyrirhugað íbúasamráð á meðan samkomutakmarkanir eru í gildi og samfélagið tekst á við afleiðingar ástandsins. /MÞÞ

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.