Bændablaðið - 05.11.2020, Qupperneq 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 2020
Til sjóðfélaga í Lífeyrissjóði bænda
Sjóðfélagayfirlit fyrir tímabilið apríl 2020 til september
2020 fyrir alla greiðandi sjóðfélaga í Lífeyrissjóði
bænda eru nú aðgengileg á sjóðfélagavef. Vinsamlegast
hafið samband við sjóðinn ef óskað er eftir að fá yfirlit
sent í pósti.
Skorað er á sjóðfélaga að bera yfirlitin saman við
launaseðla og gera án tafar athugasemdir, ef vanhöld
koma í ljós á iðgjaldaskilum. Jafnframt er sjóðfélögum
bent á að hafa tafarlaust samband við sjóðinn, hafi þeir
ekki fengið yfirlit frá sjóðnum en telja að vinnuveitandi
hafi átt að skila iðgjöldum til sjóðsins.
Hafi athugasemdir frá sjóðfélaga, staðfestar með
launaseðlum, ekki borist sjóðnum innan 60 daga
frá dagsetningu yfirlits eða birtingu auglýsingar, sé
það síðar, og sjóðnum hefur ekki verið kunnugt um
iðgjaldakröfuna, er sjóðurinn einungis ábyrgur fyrir
réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki
sem þau fást greidd.
LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA
Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík
s. 563 1300 - lsb@lsb.is
MÁLFAR&MÁLNOTKUN
Ég hef stundum horft á fót-
boltaleiki sem lýst er í sjónvarp-
inu og þá hef ég tekið eftir að
notuð eru orð sem mér finnast
ekki hæfa efninu. Þegar liðin
taka aukaspyrnu eða horn-
spyrnu þá er talað um „föst
leikatriði“ en mér finnast þau
alltaf vera tilfallandi leikatriði.
Einu föstu leikatriðin sem ég sé
eru þegar leikurinn er flautað-
ur á þegar hann hefst og síðan
flautaður af þegar hann endar.
Allt annað er háð gangi leiksins.
Í hálfleik er talað um að annað
liðið „leiði“ með tiltekið mörgum
mörkum. Þegar við leiðum börn
eða gamalmenni þá erum við að
hjálpa þeim að komast áfram en
þegar einstaklingar eða lið keppa
hvert við annað þá eru þau ekki
að hjálpa andstæðingunum áfram,
þvert á móti eru þau að hindra
andstæðingana í að ná árangri og
um leið eru þau að keppast sjálf
við að hafa forystu.
Þegar liðnar eru 90 mínútur
í fótboltaleik þá er það kallaður
„venjulegur leiktími“. Það er
venjan að bæta þurfi við þennan
leiktíma nokkrum mínútum vegna
tafa í leiknum þannig að það væri
mjög óvenjulegt ef leiktíminn færi
ekkert umfram þessar 90 mínútur.
Betra væri að tala um markaðan
leiktíma þegar 90 mínúturnar eru
liðnar.
Þegar leikmenn brjóta af
sér innan vítateigs er dæmd
vítaspyrna. „Víti“ vísar til að
liðinu sé refsað fyrir ólöglegt
athæfi. Ef leiknum lýkur án þess
að úrslit hafi fengist þá er stundum
gripið til „vítaspyrnukeppni“.
Fyrir hvað er þá verið að refsa?
Vítaspyrna einkennist af því
að þá er knettinum spyrnt frá
tilgreindum punkti og hún gæti
eins kallast punktspyrna.
Tímabilið sem keppnin á
Íslandsmótinu stendur yfir er
stundum kallað „season“ upp
á ensku. Í skólakerfinu er talað
um önn þegar átt er við hliðstæð
tímabil.
Þorsteinn Guðmundsson
Fótbolti
BÆKUR& MENNING
Kindasögur 2:
Afturgengnar
kindur á
Rauðasandi
Aðalsteinn Eyþórsson og Guðjón
Ragnar Jónasson hafa tekið
saman annað hefti af kindasögum
sem kallast Kindasögur 2. Fyrra
bindi, Kindasögur, kom út á
síðasta ári og hlaut afbragðsgóðar
viðtökur. Höfundarnir ákváðu
því að setja saman aðra bók með
fleiri frásögnum af afrekum og
uppátækjum íslenskra kinda til
að slökkva kindasagnaþorsta
þjóðarinnar.
Höfundarnir eru áhugamenn
um sögur og sauðfé og þeir segja
kindasögur vera merkilega grein
íslenskrar sagnaskemmtunar sem
eigi sér langa sögu en endurnýist
þó sífellt með breyttum tímum
og búskaparháttum. Útgefandi er
bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi.
Víða komið við
Í nýju bókinni er víða leitað fanga
eins og í þeirri fyrri. Greint er frá
afreki forystusauðar í Þistilfirði,
fjallað um afturgengnar kindur á
Rauðasandi, í Vopnafirði og víðar,
rifjaðar upp útvarpsauglýsingar
Sauðfjárverndarinnar á Selfossi
og sagt frá manninum sem stóð
á bak við þær. Þá er stiklað
á sögu sauðfjárhalds innan
borgarmarka Reykjavíkur og sagt
frá stormasömum samskiptum
reykvískra fjáreigenda við
garðeigendur og borgaryfirvöld.
Rætt er um áhrif eldgosa á sauðfé,
meðal annars greint frá afleiðingum
öskufalls frá Eyjafjallajökli í
Fljótshlíðinni, og rifjaðar upp sögur
af strokukindum sem létu hvorki
stórfljót né aðrar torfærur stöðva
sig á leið sinni í forna heimahaga.
Sagt er frá fjárskiptum og fjárböðun
í Flóanum á síðustu öld og loks eru
rifjuð upp kvæði íslenskra skálda
þar sem kindur eru í aðalhlutverki.
Með sögunum fljóta svo ýmsir
fróðleiksmolar um líf og kjör
fólks og fénaðar í
landinu að fornu
og nýju.
Kindur úr
handan heimum
„Í íslenskri
þjóðtrú úir og
grúir af sögum
af afturgöngum
bæði manna
og dýra. Einn
skæðasti draugur
á Íslandi var raunar ekki
afturgenginn maður heldur naut,
sjálfur Þorgeirsboli, og fleiri dæmi
eru um að nautgripir, hestar, hundar
og jafnvel selir gangi aftur. Þó er
furðu lítið um að sauðfé komi
við draugasögur að öðru leyti en
því að illvígir draugar voru vísir
til að drepa kindur til að ná sér
niðri á eigendum þeirra. Þó er
ekki dæmalaust að draugar bregði
sér í kindalíki í gömlum sögum.
Hrútsvatn heitir allstórt stöðuvatn
rétt sunnan við hið forna stórbýli
Ás í Ásahreppi í Rangárvallasýslu.
Löngum lék það orð á að kynjadýr
væru í vatni þessu, sumir sögðu
nykur en aðrir töldu að í vatninu
byggi hrútur, mórauður að lit. Sagt
er að í fyrndinni hafi í búrhorninu
í Ási haldið til draugur í líki
mórauðs hrúts. Fenginn hafi verið
kunnáttumaður til að kveða hann
niður og sá á að hafa sett þann
mórauða niður í Hrútshelli sem var
norðanvert við vatnið. Vatnið hefur
síðan brotið land þar sem hellir
þessi var og er hann nú horfinn.
Þar er nú aðeins bergsnös, spölkorn
ofan við vatnsbakkann, en ekki
hefur frést til hrútsins í seinni tíð.
Fylgjur voru eins konar
andaverur eða draugar sem fylgdu
einstaklingum eða heilum ættum,
mann fram af manni, og voru oft í
líki dýra. Þegar maður sem átti sér
fylgju kom á bæ var hún oft komin
á undan honum og heimilismenn
sem næmir voru eða skyggnir
gátu þá séð hvaða gestakomu var
að vænta. Fylgjur voru iðulega í
hundslíki, sumar voru í mannsmynd
og enn aðrar voru kynjaskepnur
eða skrímsli. Þess eru líka dæmi
að kindur séu fylgjur manna þótt
ekki sé það algengt.
Hins vegar eru til fjöldamargar
frásagnir af kindum huldufólks
sem áttu það til að hverfa þegar
minnst varði. Sagnir eru til um
að ær úr mannheimum hafi verði
lembdar af hulduhrútum og svo
gat það líka verið á hinn veginn,
að huldufólk kæmi með ær um
fengitímann og héldi þeim undir
hrúta úr mannheimum. Til eru
sögur um að mennskar konur
hafi mjólkað ókunnar ær í kvíum,
hirt mjólkina og orðið fyrir reiði
huldufólksins sem ærnar átti –
en á hinn bóginn gat bóndi sem
fóðraði huldukindur um vetur átt
von á launum frá eigendum þeirra
um vorið. Loks má minnast þess
að haft var eftir Einari Jónssyni
á Einarsstöðum í Reykjadal, sem
lengi starfaði sem lækningamiðill,
að hann hefði oft átt í vandræðum
með að telja fé í rétt eða fjárhúskró.
Hann hefði séð miklu fleiri kindur
en aðrir menn.“ /VH
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir
eftir nýjum umsóknum um álagsgreiðslur vegna
gæðastýrðrar sauðfjárframleiðslu.
Gæðastýrð sauðfjárframleiðsla nær m.a. til
landnota, aðbúnaðar og umhverfis, skýrsluhalds,
jarðræktar, fóðrunar, heilsufars og lyfjanotkunar.
Skila skal umsóknum rafrænt í AFURÐ fyrir 20.
nóvember nk., ásamt tilheyrandi fylgiskjölum með
umsókn, óski framleiðandi eftir álagsgreiðslum
fyrir næsta almanaksár.
Stjórnarráð Íslands
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Umsóknir um álagsgreiðslur
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
SETTU TÆKIN ÞÍN
Á NEGLD DEKK
Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur
og hafa reynst vel við krefjandi aðstæður.
Þú færð Best Grip
naglana hjá okkur