Bændablaðið - 05.11.2020, Side 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 2020 55
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum
í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla.
Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og
eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi.
Sendum um allt land.
www.pgs.is
pgs@pgs.is
s 586 1260
Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík
Alternatorinn eða
startarinn bilaður?
GORMUR.IS
öðruvísi gjafavara
GORMUR
öðruvísi gjafavara
GORMUR
Varahlu�r i VOLVO
Vinnutæki
Smiðjuvegur 30, 200 Kópavogur
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR í flestar
gerðir dráttarvéla
Uppfyllir staðalinn EN 20345: 2011 SRC CI
Stærðir: 40-47
Verðtilboð: 14.880
Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is
Alvöru vetrarskór með tá- og naglavörn
á tilboði. Á annarri hliðinni er rennilás
til að auðvelda að fara í og úr skónum.
Panda Stralis - TILBOÐ
Margir um borð í Esjunni voru fegnir að sjá að herskipin í Reykjavíkurhöfn voru bresk en ekki þýsk.
Mynd / úr bókinni Þegar heimurinn lokaðist
Árið er 1940 og heimurinn er vígvöll-
ur. Ferðir milli Íslands og Evrópu
hafa lagst af vegna styrjaldarinnar.
Víða um lönd eru Íslendingar sem
þrá að komast heim.
Í bókinni Þegar heimurinn lokast
segir sagnfræðingurinn Davíð Logi
Sigurðarson á lifandi og fræðandi
hátt um aðdraganda þess að íslenskir
embættismenn eftir margra mánaða
þrotlausa fá Þjóðverja og Bretar til
að samþykkja að Íslendingar megi
senda Esjuna, stærsta skip þjóðarinn-
ar á þeim tíma, til að sækja Íslendinga
sem voru strandaglópar í Evrópu í
einni ferð.
Þegar heimurinn lokað-
ist er sagan af fólkinu sem
lagði í sögulega hættuför frá
Norðurlöndum og meginlandi
Evrópu til Petsamo við Norður-
Íshafið og sigldi út á haf þar
sem tundurdufl og kafbátar
leyndust.
Margir Petsamo-faranna
höfðu lokið námi í vísindum
og listum og áttu eftir að reyn-
ast landi og þjóð ómetanlegir
á ýmsum sviðum mannlífsins
á komandi áratugum.
Bókin er prýdd tugum ein-
stakra ljósmynda sem ekki
hafa komið fyrir sjónir almennings
áður. Útgefandi er Sögur útgáfa.
/VH
Petsamo-ferð Íslendinga 1940:
Þegar heimurinn lokaðist
BÆKUR& MENNING
Fyrirhugaður samruni Norðlenska og Kjarnafæðis:
Samkeppniseftirliti hafa
borist allmargar umsagnir
– Leitað eftir frekara viðhorfi frá bændum
Þó nokkrar umsagnir bárust
Samkeppniseftirliti sem óskaði
eftir því að fram kæmu sjónar-
mið þeirra sem hagsmuna eiga að
gæta varðandi fyrirhugaðan sam-
runa Norðlenska og Kjarnafæðis.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir
að allmörg svör hefðu borist til
eftirlitsins þegar óskað var eftir
sjónarmiðum um samrunann. Ekki
er búið að vinna úr svörum og því
segir hann að ekki sé hægt að gefa
út að svo stöddu yfirlit yfir þær
umsagnir sem bárust.
„Eftirlitinu hafa borist allmörg
svör við beiðni okkar um að fá
fram sjónarmið hagsmunaaðila
um fyrirhugaðan samruna
Norðlenska og Kjarnafæðis,“
segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins.
Staða margra bænda erfið
Páll Gunnar segir að til viðbótar
öflunar þessara sjónarmiða hafi
Samkeppniseftirlitið í hyggju að
leita eftir frekara viðhorfi bænda
og upplýsinga frá þeim, „enda
blasir við að staða margra þeirra
er erfið, ekki síst sauðfjárbænda.
Samkeppniseftirlitið telur mikil-
vægt að rödd þeirra heyrist skýrt
í málsmeðferðinni,“ segir Páll
Gunnar.
Akureyri styður samruna
Bæjarráð Akureyrar sendi inn um-
sögn þar sem lýst er yfir stuðningi
við samruna fyrirtækjanna tveggja.
„Starfsemi fyrirtækjanna er afar
mikilvæg bæði hvað varðar vinnu-
markað sem og þjónustu við öfl-
ugan landbúnað á svæðinu,“ segir
í umsögn bæjarins. /MÞÞ