Bændablaðið - 19.11.2020, Side 9
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 9
Ariens var stofnað árið 1933 í Wisconsin í Banda ríkjunum og
þar hafa bæði hönnunin og fram leiðslan verið allar götur
síðan enda fyrirtækið gengið, föður til sonar í fjórar kynslóðir.
Komin er margra áratuga reynsla á snjóblásarana frá Ariens
við krefjandi aðstæður í Bandaríkjunum, Canada, Skandinavíu
og víðsvegar annars staðar í Evrópu. Ariens eru mest seldu
tveggja þrepa snjóblásarar í heiminum, þekktir fyrir einstök
gæði, afl og endingu.
Jötunn hefur síðastliðin 4 ár selt snjóblásara o.fl. vörur frá
Ariens sem hafa reynst einstaklega vel í íslenskum aðstæðum.
Vélarstærð: 254cc
Vinnslubreidd: 61 cm
Vinnsluhæð: 53,3 cm
Blásturslengd: 15,2 m
Afkastageta: Allt að 56,2 tonn á klst
Startari: Rafstart/handstrektur
Gírar: 6 áfram/ 2 aftur
Mótor: Ariens AX
Fjórgengis
Deluxe 24 DLE
410.000
Vélarstærð: 208cc
Vinnslubreidd: 61 cm
Vinnsluhæð: 53,3 cm
Blásturslengd: 12,2 m
Afkastageta: Allt að 52,3 tonn á klst
Startari: Rafstart/handstrektur
Gírar: 6 áfram/ 2 aftur
Mótor: Ariens AX
Fjórgengis
Vélarstærð: 420cc
Vinnslubreidd: 71,1 cm
Vinnsluhæð: 59,7 cm
Blásturslengd: 18,3 m
Afkastageta: Allt að 71,6 tonn á klst
Startari: Rafstart/handstrektur
Gírar: 6 áfram/ 2 aftur
Mótor: Ariens AX
Fjórgengis
Classic 24E Pro 28 DLE
269.000 595.000
kr. m/vsk kr. m/vsk kr. m/vsk
Vesturhrauni 3 // 210 Garðabær // 480 0000 // af lvelar. is // sala@aflvelar. is
Austur vegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is
Kristján Þór Júlíusson, sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, Bændasamtök Íslands og
sveitarfélögin í Skagafirði hafa
gert samkomulag við Kristínu
Lindu Jónsdóttur, sálfræðing,
um að veita sauðfjárbændum
sálrænan stuðning og ráðgjöf
vegna riðuveiki sem greinst hefur
í Tröllaskagahólfi.
Í verkefninu felst að heimilisfólki
á þeim búum þar sem riðuveiki hefur
greinst stendur til boða að nýta sér
sálfræðiþjónustu Kristínar Lindu.
Ráðgjöfin verður í boði Skagafirði
þegar aðstæður leyfa eða í gegnum
fjarfundarbúnað. Auk þess hafa
framangreindir aðilar fengið sent
fræðslu- og leiðbeiningarefni sem
hefur verið tekið saman um áhrif af
ytri áföllum á líðan fólks og hagnýt
ráð sem hafa reynst vel þegar erfið-
leikar og áföll ganga yfir. Sjónum er
sérstaklega beint að viðbrögðum ef
riðuveiki greinist í sauðfé. Í fræðslu-
efninu er auk þess vikið að bjargráð-
um foreldra vegna upplifunar barna
og ungmenna.
Þá mun Kristín Linda sækja opinn
upplýsingafund sem fyrirhugað er að
halda á næstu vikum þar sem hún
mun taka þátt í umræðum og svara
spurningum.
Kristín Linda ólst upp á blönduðu
búi í Fnjóskadal í Þingeyjarsýslu og
var bóndi í Miðhvammi í Aðaldal
í 15 ár. Hún er nú klínískur sál-
fræðingur og hefur starfað á eigin
sálfræðistofu, Huglind ehf., í
Reykjavík í níu ár.
Niðurskurðurinn vegna riðuveikinnar í Skagafirði:
Sálfræðingur mun veita bændum
sálrænan stuðning og ráðgjöf
Úr Skagafirði, Mynd HKr.