Bændablaðið - 19.11.2020, Page 11
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 11
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
hvatt ríkisstjórn Íslands og Alþingi
til þess að meta og taka afstöðu til
hugmynda sem fram hafa komið
um styttingu Þjóðvegar 1 á milli
Eyjafjarðar og Reykjavíkur.
„Ljóst er að verulegur þjóðhags
legur ávinningur hlýst af styttingu
leiðarinar sem myndi bæta sam
keppnis hæfni svæðisins á atvinnu
og íbúamarkaði,“ segir í ályktun sem
bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á
fundi nýverið. Að auki er bent á að
stytting leiðarinnar auki umferðarör
yggi og hafi jákvæð umhverfisáhrif.
„Því hlýtur það að vera þjóðþrifa
mál að koma framkvæmdum sem
þessum inn í samgönguáætlun eins
og nú þegar hefur verið gert með
breikkun þjóðvegar 1 um Kjalarnes
og með framkomnum hugmyndum
um framkvæmdir við Sundabraut,“
segir enn fremur.
Leiðin milli Akureyrar og
Reykjavíkur er nú 388 kílómetrar
en um árin hefur ýmsum möguleik
um verið velt upp sem stytt gætu
þá leið. Oftast er bent á mögulega
styttingu í Húnavatnssýslu og
Skagafirði, þ.e. að fara framhjá
bæði Varmahlíð og Blönduósi en
þær hugmyndir hafa fallið í fremur
grýttan jarðveg heimamanna á þeim
stöðum.
Styttri leið hefur í för með sér
fjárhagslega hagkvæmni, m.a. með
lægri ferðakostnaði og flutnings
kostnaði. Einnig jákvæð umhverfis
áhrif með minni útblæstri bíla og
eins megi gera ráð fyrir færri slys
um en í skýrslu sem Háskólinn á
Akureyri gerði í eina tíð kemur
fram að áætla megi að umtalsverð
fækkun slysa yrði í kjölfar þess að
leiðir yrðu styttar í Húnavatnssýslu
og Skagafirði. /MÞÞ
VÖRUR FYRIR
ÍSLENSKT SAUÐFÉ
BÚVÖRUR SS
Ærblanda SS
Óerfðabreytt kjarnfóður
Vitlick Soft Sheep
Stein- og snefilefnarík
bætiefnafata með
hvítlauk sem er
hentug með
vetrarfóðrun.
Hátt seleninnihald.
15 kg fata
Orkurík kjarnfóðurblanda með 17,2% hrápróteini.
Inniheldur fjölbreytt hráefni með góðan lystugleika
og tormelt prótein fyrir hámarks ullarvöxt.
Rík af kalsíum, fosfór og magnesíum.
Gott jafnvægi stein- og snefilefna.
15 kg pokar / 750 kg sekkir
Salto Får saltsteinn
Saltsteinn sem inniheldur
náttúrulegt bergsalt og
má notast við lífræna
ræktun. Inniheldur
stein- og snefilefni,
þar á meðal selen.
10 kg steinn
Búvörur SS | S: 575-6070 | www.buvorur.is | buvorur@ss.is
Verslun Fosshálsi 1, 110 Reykjavík | S: 575-6071 | Opið virka daga kl.: 10:30-18:00
Verslun Ormsvelli 4, 860 Hvolsvelli | S: 575-6099 | Opið virka daga kl.: 09:00-17:00
Í mars nk. kemur út Tímarit Bændablaðsins.
Tímaritið tekur á helstu málefnum landbúnaðarins og eru efnistökin
fjölbreytt. Það verður prentað í 8.000 eintökum og dreift til allra
áskrifenda, á öll lögbýli landsins og í fyrirtæki sem tengjast landbúnaði.
Lengd ritsins er yfir 100 síður og það er prentað á glanstímaritapappír í
stærðinni A4.
Þetta er kjörinn vettvangur til að koma starfsemi sinni á framfæri.
Tímaritið liggur á borðum landsmanna svo mánuðum skiptir og því
má segja að auglýsingar í slíkum blöðum séu langlíf.
Boðið er upp á hefðbundnar auglýsingar í ritinu en í seinni hluta þess
er pláss fyrir kynningarefni frá fyrirtækjum sem unnið er í samvinnu við
blaðamenn.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 563-0303 og í gegnum netfangið
gudrunhulda@bondi.is
TÍMARIT BÆNDABLAÐSINS 2021
TRYGGÐU ÞÉR
AUGLÝSINGAPLÁSS Í TÍMA
Bláa línan sýnir nýja veglínu norðan við Svínavatn.
Bæjarstjórn Akureyrar:
Þjóðhagslegur ávinningur fæst af styttingu
Þjóðvegar 1 milli Akureyrar og Reykjavíkur