Bændablaðið - 19.11.2020, Qupperneq 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 19
Bragi Þór Jósefsson ljós myndari
hefur myndað allar almennings
sundlaugar landsins með flyg
ildi, 100 talsins, fyrir utan eina,
á Ströndunum, en til hennar er
einungis hægt að komast með
bát. Hugmyndina fékk hann í
upphafi kórónuveirufaraldursins
þegar rétta tækifærið gafst til að
mynda sundlaugar um allt land
ofan frá séð.
„Ég byrjaði á þessu í vor
og setti inn nokkrar myndir á
samfélagsmiðla og fékk strax mikil
viðbrögð. Ég byrjaði að mynda á
höfuðborgarsvæðinu þegar COVID
fór af stað, þá var allt tómt og
það hentaði vel að fara að mynda
sundlaugar. Síðan ákvað ég að
þvælast um landið og fór hringinn
en þá var ekki hægt að hafa þær
allar tómar. Þetta er allt tekið í
mikilli hæð, maður sér að það eru
manneskjur á sumum myndunum
en vitavonlaust að þekkja einhvern.
Þetta er allt tekið með flygildi en
ég hef svolítið verið í því að taka
þannig myndir. Það byrjaði fyrir um
tveimur árum að ég fór að fikra mig
áfram með flygildi því mig langaði
að fá aðra sýn á brúðarmyndatökur
og fékk oft skemmtileg sjónarhorn
út úr því.
Þegar ég var byrjaður á því að
leika mér með myndatökur með
flygildi sá ég aðra möguleika og
sundlaugardæmið er klassískt
þannig. Þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt, ég byrjaði á Stokkseyri
en tók ekki skipulega myndir af
sundlaugunum fyrr en í mars. Síðan
þróaðist þetta og ég fór út um allt
land og er búinn að mynda allar
útialmenningssundlaugar landsins,
100 talsins, fyrir utan á Ströndunum
en þangað þarf ég að komast með
bát og stefni á að ná henni líka svo
þá verða þær 101,“ segir Bragi
sem býður nú myndirnar til sölu
á síðu sinni, bragi.is. Varðandi
framhaldið er aldrei að vita nema
ljósmyndarinn haldi sýningu með
sundlaugamyndunum eða gefi þær
jafnvel út sem bók. /ehg
REKSTRARLAND ER BAKHJARL BÆNDA
REKSTRARLAND verslun | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17
Pipar\TBW
A
Í Rekstrarlandi fást allar almennar rekstrarvörur fyrir landbúnað. Nilfisk háþrýstidælur,
Exide rafgeymar, gæðasmurefni og olíur á vélarnar, Ecolab lágþrýstiþvottatæki ásamt
hreinsiefnum, sótthreinsandi og græðandi vökvar fyrir spena og júgur.
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
Sími 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.is
GRÆNU VELFERÐARGÓLFIN
www.comfortslatmat.com
Bændablaðið
Auglýsingasíminn er
56-30-300
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
DRIFSKÖFT
OG DRIFSKAFTAEFNIMyndaði 100 útisundlaugar
um allt land með flygildi
Selárlaug í Vopnafirði.
Bragi Þór Jósefsson ljósmyndari hefur myndað allar almenningssundlaugar
landsins með flygildi í kórónuveirufaraldrinum, 100 talsins, fyrir utan eina, á
Ströndunum, en til hennar er einungis hægt að komast með bát.