Bændablaðið - 19.11.2020, Page 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 23
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
byko.is
YLEININGAR ERU LÉTTAR
STÁLKLÆDDAR SAMLOKU-
EININGAR SEM FÁST
MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS- EÐA
STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og fást
með mismunandi yfirborði og litum að eigin vali.
Helstu kostir þess að nota samlokueiningar er
auðveld og fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil
burðargeta, mikið einangrunargildi og er ódýr
kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem
skipta þarf út þak- og eða vegg jaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar undir
ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum
evrópskum stöðlum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
YLEININGAR
Verksmiðjan, sem samvinnufélögin Nortura og Felleskjøpet í Noregi hafa nú
fjárfest í, er mjög sjálfvirk og krefst ekki margra starfsmanna en kostnaður
við að koma henni á fót var í kringum tveir milljarðar íslenskra króna.
Myndir / Sune Eriksen/Norilia
Vinna hágæðaprótein
úr kjúklingabeinum
Samvinnufélögin Nortura og
Felleskjøpet í Noregi hafa nú
fjárfest fyrir hátt í tvo milljarða
íslenskra króna í sjálfvirkri verk
smiðju sem vinnur úr kjúklinga
beinum hráefni sem úr verður
100% prótein. Nú vonast for
svarsmenn fyrirtækisins til þess
að varan verði vinsæl útflutnings
vara. Hráefni sem hingað til hefur
verið nýtt í dýrafóður verður nú
notað til manneldis.
„Próteinefnið sem kallast
hydrolysat verður nú nýtt í vörur sem
er viðurkennt til manneldis en áður
hefur þetta til dæmis verið notað í
hundafóður. Við munum byrja á að
selja til Norður-Ameríku, Evrópu
og Asíu og okkur nægja í raun 3-5
viðskiptavinir á hverjum stað til
að selja það magn sem við höfum
framleiðslugetu til. Viðskiptavinirnir
fá kraft í duftformi sem er tilbúinn
til notkunar og er í raun á bragðið
eins og kjúklingakraftur. Þetta er
ekki mikið magn núna í byrjun
en við erum sannfærð um að þetta
muni vaxa hratt enda möguleikarnir
miklir,“ segir Heidi Alvestrand,
þróunarstjóri í dótturfyrirtæki
Nortura, Norilia. Enn sem komið
er getur fyrirtækið þó ekki nýtt
varphænur við framleiðsluna þar
sem þær eru oft ataðar í eggjahvítu
sem er ofnæmisvaldur en unnið er
að þeim möguleika að geta nýtt
þær.
Margir nýtingarmöguleikar
Markaðssetning á vörunni gengur út
á góða dýravelferð og engri notkun á
sýklalyfjum. Varan er ekki ódýrasta
prótínið á markaðnum.
„Ferl ið sem
við notum heitir
ensímatískt vatnsrof
þar sem við notum vatn
og náttúruleg ensím
í samsetningu við
tíma og hitastig til að
brjóta niður skrokkinn,
lærlegg, háls og bein.
Síðan afvirkjum við
ensímin til að skilja
frá þrjú innihaldsefni,
prótín, fitu og óleys-
anleg prótín ásamt
steinefnum þar sem
prótínin eru verð mætust,“ segir
Heidi og bætir við:
„Það er spennandi að vinna með
prótín í íþróttavörur vegna þess að
þau eru vatnsrofin því þá skiptast
þau niður í minni einingar sem
er auðveldara fyrir líkamann að
vinna úr. Við erum að þróa vörur
fyrir íþróttaiðnaðinn og stefnum
á Bandaríkja- og Kínamarkað. Ef
það tekst eins og við áætlum eru
það risastórir markaðir. Einnig er
hægt að nota vöruna beint í mat
til bragðbætingar og til að auka
prótíninnihald. Við stefnum á að nýta
þetta einnig í gæludýrafóður af dýrari
tegundinni en möguleikarnir eru
margir, eins og sem næringarviðbót
í mat fyrir eldri borgara og jafnvel í
snyrtivörur.“ /ehg - Bondebladet
Bænda
3. desember
Framleiðsla á prótíni úr kjúklingabeinum er í kringum
10 þúsund tonn á ári og getur nýja verksmiðjan
afkastað helmingi meiri framleiðslu.