Bændablaðið - 19.11.2020, Síða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 202028
LÍF&STARF
Geiturnar á Brúnastöðum hafa færi á að spranga um undir fjallgarðinum á Tröllaskaga. Líka að láta fara vel um sig heima við.
Geitaostur framleiddur í heimavinnslu
á Brúnastöðum í Fljótum
„Við höfum lengi haft áhuga á
heimavinnslu og að gera seljan-
legar afurðir úr því sem lítið er
nýtt eða lítið verð fæst fyrir eins og
geita- og sauðamjólk og afurðum
eins og kindakjöti,“ segir Stefanía
Hjördís Leifsdóttir. Hún ásamt
eiginmanni sínum, Jóhannesi
Ríkarðssyni á Brúnastöðum í
Fljótum, er um þessar mundir að
setja á markað fjórar tegundir af
geitaostum; Fljóta, Ísar, Knörr
og Brúnó.
Ostagerðin er afrakstur mikils
undirbúnings sem hófst vorið
2018 þegar þau sóttu námskeið
hjá Farskóla Norðurlands vestra,
Matarsmiðja, Beint frá býli.
Fullkomin aðstaða til ostagerðar
var sett upp á Brúnastöðum og segir
hún ánægjulegt eftir langt, strangt
og kostnaðarsamt ferli að sjá fyrstu
afurðirnar líta dagsins ljós.
Hjördís og Jóhannes tóku við
búinu á Brúnastöðum af föður
Jóhannesar, Ríkharði Jónssyni,
árið 1998. Fyrstu tvö árin ráku þau
búið með annarri vinnu sem þau
stunduðu á Sauðárkróki. Jóhannes
var um 10 ára skeið sauðfjár
ræktarráðunautur og Hjördís
lærði félagsmannfræði og starf
aði við kennslu í Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra um nokkurra
ára skeið áður en sveitalífið tók
við. Hún segir að um langan veg
sé að fara úr Fljótunum til að sækja
vinnu utan bús og þau hafi kapp
kostað að finna sér störf heima
við þannig að hægt sé að afla
fjölskyldunni lífsviðurværis með
störfum heima á bænum. – „Og
við erum alltaf að sjá möguleika
og þeir eru margvíslegir,“ segir
hún.
Fjölbreytt starfsemi og
mannmargt heimili
Starfsemin á Brúnastöðum er fjöl
breytt, en grunnurinn er sauðfjárrækt
með um 800 vetrar fóðraðar kindur.
Þá eru þar rúmlega 40 geitur, nokkrar
holdakýr og eintak af öllum húsdýrum
landsins því yfir sumarmánuðina
reka þau vinsælan húsdýragarð. Þá
er stunduð ferðaþjónusta á bænum,
leigð út tvö stór hús og einnig reka
þau félagsheimilið Ketilás. Þá stunda
þau hjónin einnig skógrækt.
Þau eiga fjögur börn, Ríkeyju
Þöll, meistara nema í umhverfis
stjórn málum í Stokkhólmi, Kristin
Knörr, nema í landfræði við HÍ,
Ólaf Ísar, sem útskrifaðist frá MA
síðasta vor og Leif Hlé, sem er í 9.
bekk. Auk þess eiga þau 3 fósturbörn,
Júlíu Agar, nema við MA og Eld og
Davíð sem báðir eru í grunnskóla. Á
heimilinu dvelja að auki nemar frá
grænlenska landbúnaðarskólanum í
Upernaviarsuk að jafnaði í eitt ár í
senn.
Krefjandi búskaparjörð
Jörðin á Brúnastöðum er krefjandi
til búskapar, en þar er mjög snjó
þungt svo veturnir og vorin eru á
stundum erfið. Þannig taka þau
ævinlega niður girðingar á haustin
og setja upp á ný að vori svo þær
sligist ekki.
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Hér er verið að mjólka geiturnar. Ábúendur á Brúnastöðum hafa mjólkað 35 geitur undanfarnar vikur. Mjólkin er fryst og unnið úr henni í lotum.
Mjaltabásinn og ostatankurinn eru flutt inn frá Danmörku sem og
mjaltartæknin. Sigtryggur V. Herbertsson hjá RML á Akureyri veitti aðstoð
við innflutninginn.
Hér má sjá jólaútgáfu af havartiostinum Knörr með trönuberjum, fullt af
Brúnó, fetaostinn Fljóta, brie-ostinn Ísar og síðast en ekki síst sauðaostinn
Mikla sem eru á leið á markað. Geitaosturinn Brúnó á klárlega engan sinn
líkan, parmesanlíkur og fær reglulega bjórbað í IPA bjór frá Segli á Siglufirði.
Sérlega mildur og bráðnar í munni.