Bændablaðið - 19.11.2020, Qupperneq 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 33
HECHT rafmagns fjórhjól
Örugg og þægileg
Götuskráð fyrir 15ára og eldri
Verð 650.000 kr.
HECHT snjóblásari á beltum
7hp rafstart
Sex hraðar áfram og 2 aftuábak
Vinnslubreidd 66 cm
Verð 296.000 kr. m/vsk.
Helluhraun 4 Hafnarfirði
s. 565-2727 & 892-7502
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
Selen, E-, A– og D-vitamin
á fljótandi formi,
til inngjafar fyrir nautgripi
-Mjög hátt hlutfall af vítamínum og
seleni
-Tilvalið að gefa fyrir burð og fyrir
sæðingu
-Hefur eflandi áhrif á ónæmiskerfi
nautgripa
-Auðvelt að gefa
Góður valkostur
við selenskorti í skepnum
Upplýsingar og verð inn á netverslun okkar
WWW.KB.IS
þessi námskeið eru haldin og engan
bilbug að finna á mönnum, en öll
þessi námskeið eru haldin í samstarfi
við Vörusmiðjuna á Skagaströnd.
Vöndum til verka og
stillum verði í hóf
„Við leggjum mikla áherslu á að
vanda til verka og höfum hópana því
fámenna. Við miðum flest námskeið
við 6 þátttakendur en þannig nær
kennarinn að sinna öllum vel,“ segir
Halldór og segir SSNV hafa styrkt
verkefnin veglega og þannig gert
Farskólanum kleift að stilla verði í
hóf.
Fram til þessa hefur Farskólinn
einbeitt sér að námskeiðum sem
snúa að úrvinnslu á kjöti en Halldór
segir fjöldann allan af hugmyndum
í vinnslu sem snúa að öðrum þáttum.
Nefnir hann í því sambandi ræktun
óhefðbundinna nytjaplantna, nám-
skeið sem nýtast ferðaþjónustubænd-
um og tölvunámskeið af ýmsu tagi.
„Þau námskeið sem við höfum
boðið upp á hafa gengið afskaplega
vel og fólk víða að hefur sótt þau
enda má segja að allir séu velkomnir.
Upphaflegi markhópurinn miðaðist
við bændur á Norðurlandi vestra en
fljótlega kom í ljós að fólk utan hér-
aðs sýndi þessum námskeiðum mik-
inn áhuga. Við munum halda áfram
að bjóða upp á þessi námskeið, svo
lengi sem áhuga er fyrir þeim,“ segir
Halldór.
Skoðum allt sem
nýst getur bændum
Farskólinn fékk á liðnu vori styrk
úr Þróunarsjóði til að undirbúa og
tilraunakenna nýja 80 klukkustunda
námskrá fyrir matarsmiðju, þar sem
áhersla verður lögð á að uppfræða
bændur og aðra áhugasama um allt
annað en kjötframleiðslu og vinnslu
sem við teljum okkur vera að gera
góð skil. Sem dæmi um það sem
gæti verið í nýrri námskrá er t.d.
möguleikar á afurðum úr jurtum,
berjum, sveppum, hampi og fíflum
svo eitthvað sé nefnt. Einnig verður
komið inn á möguleika á fiskeldi og
möguleika bænda á framleiðslu á
eigin orkugjafa, hvort sem er til að
knýja vélar eða rafmagnsframleiðslu
fyrir eigið býli. „Við skoðum eigin-
lega allt sem okkur dettur í hug og
teljum að geti nýst bændum,“ segir
Halldór, „en vinna við þetta
nýja námsframboð er að
hefjast þessar vikurnar
og mér sýnist þetta
geta orðið skemmti-
leg matarsmiðja.“
| S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s |
| S t a n g a r h y l 7 | 1 1 0 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 |
HÚS - GLUGGAR - HURÐIR — KLÆÐNINGAR
Lögð er áhersla á að vanda til verka og hafa hópa fámenna. Hér er einn hópur
sem var að læra að úrbeina kind.
Útskriftarnemar vorið 2018
buðu til veislu þar sem
eigin framleiðsla var
nýtt.