Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 45
FISKNYTJAR&NÁTTÚRA
Mynd 1. Sviðsmynd A sýnir áætlaða dreifingu á strokulaxi úr slysasleppingu
í Arnarfirði skv. áhættumati erfðablöndunar. Sviðsmynd B sýnir raunveru-
lega líklega meðaltals dreifingu á strokulaxi úr slysasleppingu í Arnarfirði.
Litlu laxastofnunum fórnað til að auka
framleiðsluheimildir á frjóum eldislaxi
Hinn 25. ágúst 2020 var lögð fram á
Alþingi skýrsla óháðrar nefndar með
erlendum og íslenskum sérfræðingi
þar sem tekið var fyrir áhættumat
erfðablöndunar. Skýrslan ber
heitið ,,Skýrsla sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra um niður-
stöður óháðrar nefndar um athug-
un á aðferðarfræði, áhættumati og
grein ing um á fiskeldisburðarþoli á
vegum Hafrannsóknastofnunar“.
Vísinda nefnd sem fékk það hlut-
verk að rýna áhættumat erfða-
blöndunar fékk ekki upplýsingar
frá Hafrannsóknastofnun um minni
veiðiárnar.
Á Vestfjörðum eru a.m.k. 23
veiðiár þar sem villtur lax hrygnir þó
í mjög mismunandi umfangi (tafla 1).
Laxastofnar í uppbyggingarfasa
á Vestfjörðum
Margt bendir til að lax sé að auka
landnám sitt í ám á Vestfjörðum
og hefur náð að hrygna og koma
upp seiðum í mörgum vatnsföllum
þótt ekki sé alltaf um samfellda
nýliðun að ræða eins og fram kemur
í skýrsl um Hafrannsóknastofnunar.
Það er sett í samhengi við hlýnun
bæði í ferskvatni og sjó. Nýlegar
rannsóknir á útbreiðslu laxfiska á
vestanverðum Vestfjörðum á vegum
Hafrannsóknastofnunar benda
til að víða megi finna allsterka
laxastofna á svæðinu. Ef litið er á
útbreiðslu og seiðaþéttleika laxfiska
á vestanverðum Vestfjörðum sést að
Arnarfjörður sker sig úr hvað lax
snertir en þar er að finna lax í sjö
veiðiám (tafla 1).
Rannsóknir á Vestfjörðum
Rannsóknir sem hafa verið gerðar
á vestanverðum Vestfjörðum hafa
verið birtar af Hafrannsóknastofnun
og eru aðgengilegar á vef
stofnunarinnar. Í Ísafjarðardjúpi
rannsakaði Hafrannsóknastofnun
seiðabúskap í sextán veiðiám um
sumarið 2016 og reyndist lax vera
ríkjandi tegund í sex þeirra skv.
niðurstöðum rannsóknarinnar.
Niðurstöður þessarar rannsóknar er
eingöngu að finna í formi bréfs til
Landssambands veiðifélaga frá 28.
nóvember 2016. Það er ekki vitað
um ástæðu þess að rannsóknin hefur
enn þá ekki verið birt opinberlega af
Hafrannsóknastofnun.
Veiðiár með laxalykt á Vestfjörðum
Í áhættumati erfðablöndunar er að
eins gert ráð fyrir að strokulax gangi
upp í fjórar veiðiár á Vestfjörðum;
Laugar dalsá, Langadalsá, Hvanna
dalsá og Ísafjarðará. Athuganir
Hafrann sókna stofnunar á seiða
þéttleika sýna að villtur lax gengur
til hrygningar í fleiri veiðiár á
Vestfjörðum og hafi þar myndað
náttúrulega stofna. Á Vestfjörðum
eru a.m.k. 23 veiðiár með laxalykt
(tafla 1). Eldislax gengur einkum
upp í ár með laxalykt og af ein
hverjum óskýrðum og óskiljanlegum
ástæðum er ekki gert ráð fyrir tæp
lega 20 veiðiám á Vestfjörðum í
áhættumati erfðablöndunar.
Eldislaxinn að taka yfir vistkerfi?
Talið er að eldislax muni nema
ný árkerfi hraðar en villti laxinn
samhliða því að ný búsvæði myndast
við hlýnun. Með hlýnun myndast
ný svæði fyrir lax og kuldakærari
tegundir víkja úr árkerfum á
Vestfjörðum. Flökkulax sækir í ný
búsvæði og gera má ráð fyrir að smám
saman nýti þau að fullu. Ef það eiga
sér stað umtalsverðar slysasleppingar
á svæðinu getur eldislaxinn vera í
meirihluta og líkur á erfðablöndum
því miklar. Hafrannsóknastofnun er
nýlega búin að staðfesta erfðablöndun
í þessari gerð veiðiáa á vestanverðum
Vestfjörðum þar sem er að finna
laxeldi í sjókvíum í nágrenninu.
Færri veiðiár og meiri
framleiðsluheimildir
Það má velta því fyrir sér af hverju
litlu laxastofnunum var sleppt í
áhættu mati erfðablöndunar á Vest
fjörðum. Eflaust eru ýmsar skýringar
á því sem höfundar áhættumatsins
geta best svarað. Það er ljóst að ef
gert hefði verið ráð fyrir 23 veiðiám
í áhættumati erfðablöndunar í stað
inn fyrir fjögur hefðu niðurstöðurnar
verið allt aðrar fyrir vestanverða
Vestfirði. Í Arnarfirði eru t.d. sjö
veiðiár með laxalykt en áhættumat
erfðablöndunar gerir ekki ráð fyrir að
eldislax gangi upp í þær ár. Að sjálf
sögðu gengur eldislax úr fjölmörgum
slysasleppingum í Arnarfirði fyrst
og fremst í veiðiár í firðinum (mynd
1) eins og íslenskar og erlendar
rannsóknir sýna. Áhættumat erfða
blöndunar hefur lítið eða ekkert með
umhverfisvernd að gera, en hlut
verk þess er að úthluta framleiðslu
heimildum til laxeldisfyrirtækja í
meirihlutaeigu erlendra aðila.
Tryggja sér ávinning
Ef gert hefði verið ráð fyrir 23
veiðiám í áhættumati erfðablöndunar
hefði ekki verið hægt að úthluta um
50.000 tonna framleiðsluheimildum
á frjóum laxi til sjókvíaeldis fyrir
vestanverða Vestfirði skv. niður
stöðum áhættumats erfðablöndunar.
Það var að tilstuðlan starfshóps sjáv
arútvegs og landbúnaðarráðherra
um stefnumótun í fiskeldi að lagt var
til að nota áhættumat erfðablöndunar
við úthlutun framleiðsluheimilda
á frjóum laxi. Stjórnarformaður
Arnarlax var í stefnumótunarhópum
sem mótaði leikreglurnar, en að
sjálfsögðu var hann ekki einn um
að taka ákvarðanirnar. Það er þó ljóst
að áhættumatið virtist vera hannað
til að uppfylla væntingar og þarfir
Arnarlax um framleiðsluheimildir
á frjóum laxi til sjókvíaeldis á vest
anverðum Vestfjörðum – Hlutverk
áhættumats erfðablöndunar er að
uppfylla væntingar um fjárhags
legan ávinning og til þess að það geti
gengið þurfti að fórna litlu laxastofn
unum á eldissvæðum.
Ef rétt væri reiknað, hvað þá?
Það væri áhugavert að sjá hver
niðurstaðan yrði á útreiknuðum
framleiðsluheimildum ef gert væri
ráð fyrir öllum litlu laxastofn
unum í reiknilíkani áhættumats
erfðablöndunar. Það er eflaust
ekki vilji fyrir því að endurreikna
framleiðsluheimildir þar sem þá
kæmi í ljós að vitlaust var gefið.
Jafnframt væri áhugavert að reikna
út hvaða þýðingu það hefði haft á
fjárhagslegan ávinning laxeldisfyr
irtækja í meirihlutaeigu erlendra að
ila ef stuðst hefði verið við réttar
forsendur í líkani áhættumats erfða
blöndunar.
Valdimar Ingi Gunnarsson
Höfundur er sjávarútvegs-
fræðingur og hefur m.a. unnið
við ýmis mál tengd fiskeldi
í rúm þrjátíu ár.
Veiðiár Tilvist laxa Heimild
Tálknafjörður
Botnsá Laxaseiði Leó Alexander Guðmundsson o.fl. 2017
Arnarfjörður
Selárdalsá Laxaseiði Leó Alexander Guðmundsson o.fl. 2017
Fífustaðadalsá Laxveiði og laxaseiði Leó Alexander Guðmundsson o.fl. 2017
Bakkadalsá Laxaseiði Leó Alexander Guðmundsson o.fl. 2017
Dufansdalsá Laxaseiði Leó Alexander Guðmundsson o.fl. 2017
Sunnudalsá Laxaseiði Leó Alexander Guðmundsson o.fl. 2017
Mjólká Laxaseiði Leó Alexander Guðmundsson o.fl. 2017
Hófsá Laxaseiði Sigurður Már Einarsson og Jón S. Ólafsson 2016
Dýrafjörður
Kirkjubólsá Laxaseiði Leó Alexander Guðmundsson o.fl. 2017
Lambadalsá Laxaseiði Sigurður Már Einarsson og Jón S. Ólafsson 2016
Núpsá Laxaseiði Sigurður Már Einarsson og Jón S. Ólafsson 2016
Önundarfjörður
Sandsá Laxaseiði Leó Alexander Guðmundsson o.fl. 2017
Bjarnadalsá Laxaseiði Leó Alexander Guðmundsson o.fl. 2017
Hestá Laxaseiði Sigurður Már Einarsson og Jón S. Ólafsson 2016
Súgandafjörður
Staðará Laxaseiði Leó Alexander Guðmundsson o.fl. 2017
Ísafjarðardjúp
Ósá Laxveiði og laxaseiði Sigurður Már Einarsson 2009
Laugardalsá Laxveiði og laxaseiði Árleg skráning á laxveiði í gagnagrunn Hafrannsóknastofnunnar
Heydalsá Laxaseiði Sigurður Már Einarsson 2016
Bessadalsá Laxaseiði Óbirtar niðurstöður í bréfi til Landssamband veiðifélaga, 28. nóv. 2016
Ísafjarðará Laxveiði og laxaseiði Árleg skráning á laxveiði í gagnagrunn Hafrannsóknastofnunnar
Múlá Laxaseiði Óbirtar niðurstöður í bréfi til Landssamband veiðifélaga, 28. nóv. 2016
Langadalsá Laxveiði og laxaseiði Árleg skráning á laxveiði í gagnagrunn Hafrannsóknastofnunnar
Hvannadalsá Laxveiði og laxaseiði Árleg skráning á laxveiði í gagnagrunn Hafrannsóknastofnunnar
Selá Laxveiði Óregluleg skráning á laxveiði í gagnagrunn Hafrannsóknastofnunnar
Tafla 1. Veiðiár á Vestfjörðum þar sem sýnt hefur verið fram á að laxaseiði finnast með rannsóknum og/eða gefin upp laxveiði í
skýrslum Veiðimálastofnunar/Hafrannsóknastofnunar um lax- og silungsveiði. Hægt er að sækja skýrslurnar á vef
Hafrannsóknastofnunnar.
Veiðiár á Vestfjörðum þar sem villtur lax hrygnir, þó í mjög mismunandi
umfangi.
Valdimar Ingi Gunnarsson.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Við bjóðum upp á allar stærðir
og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum.
Mjög hljóðlátar og einfaldar í viðhaldi.
Bjóðum upp á þjónustusamninga
og leggjum mikla áherslu á að veita
góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu.
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Gunnar í síma 590 5135 eða sendu línu
á gma@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Loftpressur
í hæsta
gæðaflokki
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300