Bændablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. nóvember 2020 55
Til sölu
Plast í fjárhúsgólf og stíur. Bása og
drenmottur, útileiktæki, gúmmíhellur
og gervigras. Heildarlausnir á
leiksvæðum. Sími 820-8096 -
jh@johannhelgi.is
Lítið notuð vetrardekk 175 x 65 x14"
á stálfelgum til sölu á kr. 40.000.
Uppl. í síma 661-4292.
Fullorðinn Weckmann sturtuvagn
til sölu, 11 tonna. Nýleg dekk, ný-
leg glussaslanga tvöföld skjólborð.
Rang. ytra. Verð 800.000 kr. Uppl.
í s. 862-3995.
Raforkuver til sölu. Samanstendur af
vindrafstöð 24v, tveimur 12v sólar-
sellum og stjórnstöð. Mastur og tveir
rafgeymar fylgja ásamt straumbreyti
úr 24v í 12v. Tilvalið í fjallaskála eða
sumarbústað fjarri rafmagni. Einnig
er til sölu gaskæliskápur með litlum
frysti. Sunwind Ventus 168, svartur.
Kælir 129 ltr og frystir 25 ltr. Staðsett
í Eyjafirði. Upplýsingar í s. 898-9826.
Timbur í fjárhúsgólf 32 x 100 mm.
Lengdir 4,8/5,1/5,4 m Verð kr. 265
lm m/vsk. H. Hauksson ehf. S. 588-
1130 - hhaukssonehf@simnet.is
Timbur 25 x 150 mm. Lengdir
4,5/4,8/5,4 m. Verð kr. 240 lengdarm.
m/vsk. H.Hauksson ehf. S. 588-1130
- hhaukssonehf@simnet.is
Weckman þak- og veggjastál. 0,5
mm galv. kr. 1.550 fm 0,45 mm litað.
kr. 1.590 fm 0,6 mm galv. kr. 1.890
fm 0.5 mm litað. kr. 1.990 fm. Öll
verð með vsk. Afgreiðslufrestur 4-6
vikur. H. Hauksson ehf. S. 588-1130
- hhaukssonehf@simnet.is
Allt sem þarf til að opna saumastofu
eða bara hobby. Gott að undirbúa sig
fyrir komandi framtíð. Nánari upplýs-
ingar í s. 847-2306, Gerður.
Safnarar. Til sölu 27.000 frímerki, 50
fyrsta dags umslög, 150 gramma-
fónsplötur og myntsafn. Uppl. í síma
893-3475.
Óska eftir
Ég er að leita að 80 til 110 hestafla, 4x4
dráttarvél með tækjum sem er í góðu
ástandi fyrir allt að 4 millj. kr. og notuð
minna en 1.000 klst. Bein staðgreidd
kaup. Upplýsingar í s. 863-4106.
Óska eftir traktorsgröfu jcb 2cx. Upp-
lýsingar í síma 892-8314.
Óska eftir hagabeit fyrir 10-15 hross
í jan., feb. og kannski mars. Stað-
setning í nálægð við Stokkseyri eða
þar í kring. Uppl. í síma 616-1569.
Kaupi gamla bilaða Toyota Hilux, Land
Cruiser, Hiace eða Rocky. Sæki hvar
sem er á landinu. Magnús í s. 693-6780.
Óska eftir ferðabíl eða bíl sem hægt
er að innrétta sem slíkan, helst
Toyota Hiace. Uppl. í síma 868-6829.
Óska eftir ljá með brýni til að slá vot-
hey. Uppl. í síma 462-3989.
Óska eftir gömlum mjólkurbrúsum,
mega vera í misgóðu ásigkomulagi.
Vinsamlegast hafið samband við
Jóhönnu í síma 863-8580.
Jarðir
Jörð eða hluti úr jörð óskast í fóstur til
skógræktar, 50 ha+ nærri vatni eða ár-
svæði/sjó. Kaup í áföngum möguleg.
Upplýsingar í síma 861-7227, Ragnar.
Húsnæði
Lítil kjallaraíbúð til leigu rétt hjá
Menntaskólanum í Kópavogi. Her-
bergi, eldhús, snyrting. Sérinngang-
ur. Hentar námsmanni/einstaklingi.
Íbúðin er laus. Verð 100.000 kr. pr.
mán. m. hita/rafmagni. S. 842-2908.
Herbergi til leigu á svæði 201, með
aðgangi að eldhúsi, baðherbergi
með þvottavél og þurrkara. Uppl.
í s. 893-3475.
Þjónusta
Tek að mér viðgerðir á flestum
tegundum sjálfskiptinga. Haf-
ið samband í síma 663-9589 til
að fá uppl. og tilboð. HP trans-
mission Akureyri. Netfang:
einar.g9@gmail.com, Einar G.
Atvinna
Starf við landbúnað laust til
umsóknar. Auglýst er eftir starfsmanni
til bústarfa í Útvík í Skagafirði.
Viðkomandi þarf að sjá um fjós með
tveimur mjaltaþjónum, um 70 kúm
og 50 kvígum í uppeldi. Húsnæði er
ekki á staðnum og vegna bakvakta
er betra að búa ekki fjarri vinnustað.
Viðkomandi þarf að geta unnið
sjálfstætt, vera natinn við skepnur
og vanur fjósverkum með mjaltaþjóni.
Starfið er laust frá 1.2.2021. Nánari
upplýsingar í s. 893-5960. Árni
Hafstað.
Sorin Vilcu óskar eftir fullri vinnu í
4-6 mánuði. Hefur reynslu af fjöl-
breyttum bústörfum og er með öku-
réttindi B. Upplýsingar gegnum s.
769-1061 eða gegnum netfangið
sorin.vilcu08@gmail.com
Bændablaðið Næsta blað kemur út 3. desember
GORMUR.IS
öðruvísi gjafavara
GORMUR
öðruvísi gjafavara
GORMUR
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
OKKAR ÆR OG KÝR
— STARTARAR OG ALTERNATORAR —
Smiðjuvegur 30, 200 Kópavogur
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KEÐJUR OG
KEÐJUVIÐGERÐAREFNI
GOTT ÚRVAL
Ég skal segja ykkur það
Tuttugasta bókin í flokknum
Austfirsk ljóðskáld er komin út
og ber hún titilinn „Ég skal segja
ykkur það“.
Bókin er eftir austfirskan sauð
fjárbónda, Sólveigu Björnsdóttur,
sem rekur myndarlegt sauðfjárbú
á Laufási í Hjaltastaðaþinghá á
Héraði.
Sólveig Björnsdóttir er fædd á
Gilsárvelli á Borgarfirði eystra árið
1958 og ólst þar upp. Ásamt því
að stunda búskap með fjölskyldu
sinni vann hún einnig í frystihús
inu á Borgarfirði. Árið 1979 yfir
gaf hún Borgarfjörðinn og flutti
í Laufás í Hjaltastaðaþinghá,
hinum megin við Dyrfjöllin og
hóf búskap með Guðmundi K.
Sigurðssyni þar sem þau búa enn.
Flest ljóð Sólveigar hafa
orðið til við hin daglegu störf.
Lengi vel var hún betur þekkt
fyrir gamanvísur í tengslum við
þorrablót og aðrar skemmtanir.
Ljóðin í þessari bók eru hugljúf
og oft á tíðum ljúfsár, þar sem
helstu hugðarefni Sólveigar eru
samspil náttúrunnar, búskapar
og fólks sem hefur snert hjarta
hennar. Einnig leitar hugurinn
oft heim á bernskuslóðir þar
sem fegurðin og kyrrðin heilla.
Hér kemur fyrsta bók Sólveigar
fyrir sjónir lesenda, en ljóð eftir
hana hafa birst víða í bókum og
á geisladiskum.
Sem dæmi um ljóð í þessari
bók er á baksíðu bókarkápu birt
ljóðið Afi, en í því er að finna
heiti bókarinnar. Það er mjög
lýsandi fyrir búskaparhætti fyrri
tíma sem vikið hafa fyrir vél
tækninni.
Hefur gefið út 39 bækur eftir
austfirska höfunda
Útgefandi bókarinnar er Félag
ljóðaunnenda á Austurlandi,
en forsprakki þess er Magnús
Stefánsson og félagsmenn rúm
lega eitt hundrað. Félagið var
stofnað árið 1996 og hefur gefið
út 39 bækur eftir austfirska höf
unda.
Framtak og þrautseigja Magn
úsar og Félag ljóðaunnenda á
Austurlandi í útgáfumálum er
sannarlega aðdáunarvert og þakk
arvert, en Uppbyggingarsjóður
Austurlands styrkti útgáfu þessar
ar tuttugustu bókar félagsins.
Prentmet Oddi sá um umbrot,
bókband og prentun, en Torfi
Jónsson hannaði kápuna.
/HKr.
Sólveig Björnsdóttir.
Afi
Hurðin er opnu, þú hleypur inn,
undir hendinni kassi með vörum.
Þú heilsar, brosir og kyssir kinn,
kaffi þiggur í bollan þinn,
ert svo óðar á förum
út í slægju með orf og ljá,
ekki þurrkinum glata má.
Hrífan er tekin, þú hamast ferð
heyið að garða og raka.
Söxuð föngin í sátur berð
- ég skal segja ykkur það, nú fljótur verð
og skellir á skokk til baka.
Eftir mat og mínútu blund
BÆKUR& MENNING