Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 12

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 12
komulag væri óboðlegt. Töldu margar hjúkrunarkonur að það að stytta vinnudag bryti í bága við köllun og siðferði hjúkrun- arkonunnar og að þrískiptar vaktir myndu valda sjúklingum óróleika og dreifing á starfskyldum gæti spillt vinnugleði hjúkrunarkvenna og faglegum metnaði þeirra. Á þessum tíma gafst hjúkrunarkonum ekki mikið rými fyrir félagslíf en allt fram á miðja síðustu öld var það alvanalegt að hjúkrunarkonurnar byggju á sjúkrahúsinu. Þá var einnig algengt að hjúkrunarkonur fengju hluta af launum sínum greiddan í formi fæðis og húsnæðis. „Þær voru giftar starfinu,“ segir Elsa og jón bætir við að danskar hjúkrunarkonur hafi á þeim tíma þurft leyfi frá yfirmanni sínum til að gifta sig. Það var ekki fyrr en 1937 að almennur átta stunda vinnudagur varð viðurkenndur í noregi og á Íslandi var það 1942. Vinnu- vikan var áfram æði löng en það var ekki fyrr en í byrjun átt- unda áratugar síðustu aldar sem fimm daga vinnuvika varð viðtekin á norðurlöndunum. Þriðja krafan sem sett var fram á stofnfundi SSn var bætt laun. Þetta er sá liður sem alger einhugur hefur ríkt um innan SSn frá upphafi. Þrátt fyrir það er þetta eina stofnkrafan sem ekki hefur verið uppfyllt þar sem hjúkrunarfræðingar á norðurlöndunum eru enn með of lág laun miðað við aðrar fagstéttir með sambærilega menntun og ábyrgð. Samstarfið við SSN mikilvægt í kjarabaráttu að mati Ástu, sem var fyrsti formaður sameinaðra hjúkrun- arfélaga, skipti samstarfið við SSn miklu þegar kom að kjara- málum. Stuðningurinn var ómetanlegur og í kjarabaráttu hér á landi var hægt að vísa til annarra norðurlanda, en félögin studdu hvert annað með miðlun upplýsinga, í verkföllum og hvers kyns hugmyndafræði sem lýtur að stéttinni og starfi hennar. Elsa segir mikinn stuðning hafa verið þegar kom að launamálum, en ekki síður var stuðningurinn mikill þegar kom að kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga, t.a.m. um vaktaskipu- lag. „Þetta var ný hugsun sem við vorum að reyna að innleiða,“ segir hún. Rannsóknir og innleiðing nýrrar þekkingar í hjúkrun allt frá stofnun SSn hefur verið lögð mikil áhersla á rann- sóknir í hjúkrunarfræði og voru hjúkrunarfræðingar á norður- löndum með fyrstu stéttum til að setja sér siðareglur fyrir þá sem stunda hjúkrunarrannsóknir. Þær voru síðan prent - aðar og þýddar á öll norðurlandamálin. Enn leggja tiltölulega fáir hjúkrunarfræðingar stund á rannsóknir innan SSn. Ís- lendingar urðu fyrstir norðurlandaþjóða að hefja hjúkrunar- fræði nám á háskólastigi og því hefur löngum verið horft til menntunarstigs á Íslandi. Enda er óhætt að segja að íslenskir hjúkrunarfræðingar séu framarlega þegar kemur að rann- sóknum í hjúkrun og innleiðingu nýrrar þekkingar sem feng- ist hefur þaðan, en þegar litið er til allra norðurlanda þá eru eingöngu 1–2% hjúkrunarfræðinga með doktorsgráðu. Þá hefur félag íslenskra hjúkrunarfræðinga verið í fararbroddi þegar kemur að styrkveitingum til viðbótar- og endurmennt- unar. Tregða að tala ensku á fundum Samtalið færðist frá menntun til tungumálaörðugleika en öll samskipti hjá sam ráðsvettvanginum voru á norðurlandamál- unum þremur, þ.e. dönsku, sænsku og norsku. „Ég var ekki góð í norðurlandamálum og þegar ég sótti minn fyrsta stjórnar fund hjá SSn skildi ég varla orð sem þar fór fram,“ rifjar Ásta upp. hún óskaði eftir að fá að tala ensku en þar sem ekki höfðu allir vald á ensku var það ekki samþykkt. allt til þessa dags hefur verið mikil tregða á meðal félaga í SSn að tala ensku á sameiginlegum fundum, og þá sér í lagi hjá Dönum, aðalbjörg finnbogadóttir og helga ólafs 12 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 Í Kaupmannahöfn árið 1995 þar sem fjórir leiðtogar hjúkurnarstéttar - innar fagna 75 ára afmæli norrænnar samvinnu innan SSN. Á mynd- inni eru frá vinstri: Vilborg Ingólfsdóttir, Ásta Möller, María Péturs- dóttir og Sigþrúður Ingimundardóttir. Það var ekki fyrr en 1937 að almennur átta stunda vinnudagur varð viðurkenndur í Noregi og á Íslandi var það 1942. Vinnuvikan var áfram æði löng en það var ekki fyrr en í byrjun átt- unda áratugar síðustu aldar sem fimm daga vinnuvika varð viðtekin á Norðurlöndunum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.