Blik - 01.05.1967, Síða 4
2
BLIK
ur kirkjunnar í einu og öllu,
(„kirkjuhaldari”) í 34 ár. Hann var
þar í Eyjunum einn mesti sjósóknari
á sinni tíð og formaður í 33 ár, vet-
ur, sumar, vor og haust. Hann þótti
aflasæll og dugmikill formaður,
traustur skapfestumaður og búhygg-
inn í bezta lagi.
Heimili þeirra hjóna á Vilborgar-
stöðum var talið ríkismannsheimili
á þeirrar tíðar vísu.
Um áttrætt var Einar bóndi Sig-
urðsson orðinn svo slitinn og veik-
burða, að hann hætti að klæðast og
lagðist í kör, eins og segir í merk-
um heimildum um hann. I þeirri
eymd lá hann í 5 ár.
Einar Sigurðsson, bóndi m. m. á
Vilborgarstöðum, andaðist 18. marz
1852 úr „hálfvisnun”, eins og segir
í heimildum.
Vigdís húsfreyja Guðmundsdóttir
lifði aðeins tveim árum lengur en
bóndi hennar, þótt hún væri 13 ár-
um yngri. Hún lézt 8. maí 1854 úr
ellilasleika, 73 ára. Þá mun hún hafa
átt ekki færri en 12 eða 13 barns-
leiði í Landakirkjugarði.
Veraldarsaga þessara mætu hjóna
er í rauninni sigursaga frá upphafi,
en jafnframt er hún mikil sorgar-
saga, því að flest hinna mörgu barna,
sem eiginkonan Vigdís Guðmunds-
dóttir fæddi manni sínum, lágu liðin
lík eftir örfáa daga frá fæðingu af
völdum ginklofans, sem þá um langt
árabil lagði í gröfina um 70 af
hundraði allra barna, sem fæddust í
Eyjum.
Þegar hjón missa barn sitt, verður
mér fyrst og fremst hugsað til móð-
urinnar með hinni dýpstu samúð.
Hún hefur tengzt barninu ennþá
nánari böndum en faðirinn, með því
að bera það undir belti sér og fæða
það síðan með þjáningum. Þetta
veldur því, að hugur minn hvarflar
með sérstakri samúð til Vigdísar
húsfreyju, þegar ég kynni mér þær
heimildir, sem greina frá ævistarfi
hennar, barneignum og barnamissi.
Þá hafa mörg móðurtárin runnið.
Mér kemur til hugar að birta skrá
yfir barneign þessara mætu hjóna,
ef hún mætti leiða lesendur mína til
næmari skilnings á skuggum og
sorgum, söknuði og sárindum mæðra
og feðra á þeim tímum, þegar „ver-
an með ljáinn” lagði leið sína að
rúmi 3—4 sængurkvenna af hverj-
um fimm og myrti nýfæddu börnin
í vöggunni við sængurstokkinn. Það
voru óumræðilega átakanlegir tím-
ar.
Sem fyrr getur eignuðust þessi
bóndahjón á Vilborgarstöðum 18
börn. (Þau „öfluðu 18 barna”, eins
og segir í gildum heimildum) og
þau voru þessi:
1. Hallfríður, f. 15. jan. 1802, Dá-
in 25. jan. s. á.
2. Jón, f. 15. april 1803. Dáinn
6 dögum síðar, 21. apríl s. á.
3. Guðmundur, f. ?1804.
Hann lézt úr „landfararsótt" 2.
sept. 1822.
4. Sigurður, f. 10. júní 1806. Hann
varð lærður „klénssmiður"
(málmsmiður) og giftist Guð-