Blik - 01.05.1967, Síða 276
274
BLIK
Magnús Jakobsson.
Fjögur Ijóð
Þessi fjögur Ijóð hefur hion góð-
kunni samborgari okkar hér, Magn-
_úr Jakobsson í S'kuld, gefið Bliki til
birtingar. Kunnum við honum beztu
þakkir fyrir.
ÚR LJÓÐABRÉFI
KVÖLDVAKANA 1 GAMLA DAGA
Vakan fyrrum saman-sett
sálræn hafði völdin.
Stakan gerði lífið létt
löngu vetrarkvöldin.
Þér í stöku sendi ég, sjá,
sanna vöku liðins dags,
margir bökin beygðu þá
við bis und töku sögu og brags.
Þá var tendrað lítið ljós
lampa á, og þótti gott,
borin kola í búr og fjós
með bræðing eða lýsisvott.
Þá var spunnið, þá var kembt,
þá var tvinnað snældu á,
heimilið allt í stemmning stefnt
stærðar þáttur ríman þá.
Þá var prjónað, þá var bætt,
þá var rökuð gæra mörg,
ullin sundur teygð og tætt,
troðin voð, er þótti körg.
Sögð var einnig saga þá
af sögumanni, er kunni á skil,
en þegar í garð fór hátíð há,
höfð voru til gamans spil.
SKAFTFELLSKA BJARTA BYGGÐ
Skaftfellska, bjarta byggð,
báran þig við
öræfi’ og freðafjöll
fast móta svið.
Mér er þín myndin kær,
minning þín skír og hlý.
Minn stendur bernskubær
byggð þinni í.
Skaftfellska, bjarta byggð,
börnin þín öll
blessa hvert blómstur þitt,
byggð þína og fjöll, —
finna við fjöllin þín
friðsælan, kæran reit.
Skaftfellska, bjarta byggð,
blessaða sveit.
DÍSIN
Sem drengur átti ég draumaland
og dís svo yndisbjarta,
að enga hefði ég aðra séð
sem altók svo mitt hjarta.
Hún dró mig inn í dýrðarheim
og dýrstu sýndi myndir.
Þær veittu mér þann muna og mátt,
sem mestu svalalindir.
Hún leiddi mig að litlum bæ,
þar ljósin brunnu inni,
og allt svo bjart og hlýtt og hreint,
að hverfur vart úr minni.
þar inni sátu öldruð hjón
með ylrík bros á hvörmum.
Þau léku sér við lítinn svein,
er lá í þeirra örmum.