Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1957, Qupperneq 161
— 159 —
1957
fólk komi einnig til læknisskoðunar.
f nóvemberlok var hafin bygging á
almenningssalerni við Hafnargötu 18.
Kópavogs. Heilbrigðisnefnd hélt 2
•'eglulega fundi, en gat annars litið að-
hafzt, því að heilbrigðissamþykkt var
enn óstaðfest. Héraðslæknir lagði
nokkrum sinnum leið sína i búðirnar
°g leit eftir þrifnaði og umgengni.
20. Ónæmisaðgerðir.
Tafla XIX, 1—6.
Rvik. Framleiðsla bóluefnis gegn
yeirustofni Singapore 1/1957 var haf-
*n i júlímánuði i Tilraunastöð Háskól-
ans i meinafræði að Keldum og fram-
leiðslunni haldið áfram þar til i nóv-
ember. Alls voru framleiddir 16000 ml,
h- e. í 8000 manns. Þar eð magn það,
sem í fyrstu var ætlað Reykjavik, var
nfjög takmarkað, ca. 2000 skammtar,
var vandráðið, hvernig þessu bóluefni
skykli skipt, svo að ekki hlytist af
mikil óánægja. Var þvi ákveðið að
hafa það fyrirkomulag á við úthlutun
efnisins, að hver læknir fengi til um-
raða takmarkað magn bóluefnis til
ráðstafana handa þeim hluta sjúkra-
samlagssjúklinga sinna, sem hann teldi
helzt þurfa þess með, og voru þá eink-
nm hafðir í huga sjúklingar með
lungna- og hjartasjúkdóma, auk heilsu-
tæpra ungbarna og gamalmenna.
Sjúkrahúsin fengu einnig ákveðið
magn handa sjúklingum og starfsliði.
Berklavarnastöðin sá um bólusetningu
herklasjúklinga. Þá var og ákveðið að
hóhisetja hluta vissra starfshópa og
yeynt að velja þá, sem sízt mætti vera
an» til þess að venjulegt athafnalif
■askaðist ekki um of, ef til mjög út-
hreiddrar farsóttar kæmi. Bólusettir
v°ru: Slökkviliðsmenn, starfsfólk apó-
teka og einnig útvarps, flugumferða-
stjórnar og barnaheimila. Einnig var
hjalparsveit skáta bólusett, til að hafa
aðgang að vissum fjölda stúlkna og
Phta, ef nauðsyn krefði. Vanfærum
íonum var líka gefinn kostur á bólu-
setningu. Fyrsta sending bóluefnis
°m til notkunar 9. september, og var
hað ætlað berkaveikum. Til sjúkra-
'usa 0g starfandi lækna var byrjað
uð úthluta bóluefni 14. september, og
var þá jafnframt byrjað að bólusetja
nefnda starfshópa á vegum Heilsu-
verndarstöðvarinnar. Alls fékk Reykja-
vík 5765 ml af bóluefni, sem skiptist
þannig: Berklavarnastöðin 536 ml,
borgarlæknir 4110 ml. Af því fór til
starfandi lækna 2043 ml og hitt til
áðurnefndra starfshópa, spitalanna,
hjúkrunarliðs og vanfærra kvenna.
Árangur af bólusetningunni virtist
vera allgóður.
Flateyjar. Kúabólusetning' var fram-
kvæmd í báðum hreppum. Frumbólu-
setning kom sæmilega út, en endur-
bólusetning mjög illa.
Þingeyrar. Lokið var mænusóttar-
bólusetningu barna og unglinga á
skólaskyldualdri. Engra meinsvarana
vart. Fullorðnir til fertugs bólusettir
tvisvar.
Flateyrar. Aðallega eldra fólk bólu-
sett gegn inflúenzu með góðum
árangri.
Bolungarvíkur. Ónæmisaðgerðir
framkvæmdar með sama hætti og ver-
ið hefur, þ. e. kúabólusett áð sumar-
lagi, en kostur gerður annarra ónæm-
isaðgerða hvern mánudag allt árið.
Hvammstanga. Má heita, að öll börn
séu bólusett gegn barnaveiki, kikhósta
og stifkrampa. Misbrestur vill verða
á kúabólusetningu vegna ýmiss konar
veikinda, tíðarfars o. s. frv. Endur-
bólusetning við skólaskoðun.
Blönduós. Ónæmisaðgerðir voru nú
framkvæmdar i miklu stærri stíl en
nokkurn tíma áður. Að vísu fór ekki
fram kúabólusetning nema á ferming'-
arbörnum og tveimur unglingum eldri,
en byrjað var á bólusetningu með þrí-
gildu bóluefni, gegn barnaveiki, kik-
liósta og ginklofa (D. T. P. P.). Við in-
ílúenzu voru bólusettir eftir eigin ósk
76 manns, og hafin var allslierjarbólu-
setning gegn mænusótt á fólki innan
16 ára og allmörgum eldri.
Höfða. Engum, er bólusettir voru
gegn mænusótt, varð meint við bólu-
setninguna.
Sauðárkróks. Lokið var við að bólu-
setja gegn barnaveiki flesta þeirra,
sem áttu eftir aðra og þriðja sprautu
á síðasta ári. Bólusetning með inflú-
enzubóluefni (Singapore 1/1957) bar
góðan árangur, að því er virtist.