Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1957, Síða 172

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1957, Síða 172
1957 — 170 — ugleika og var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík. Lézt hann þar 3 klukkustundum síðar. Ályktun: Engar breytingar fundust, sem hentu á mænusótt. Hins vegar fundust mjög miklar skemmdir í taugafrumum og mænu, en lang- mest í mænu. Þar fannst einnig töluvert af blóðstorku í æðum (thromhosis), sem er sérkennilegt fyrir botulismus. Lítill vafi er á, að maðurinn hefur dáið úr eitrun, sem verkað hefur á taugafrumur í heila og mænu. Vefjarannsóknir bentu helzt til þess, að sú eitrun hafi stafað af botulismus, en hins vegar tókst ekki að finna það eitur í maga eða skeifugörn mannsins. 55. 12. desember. J. J.-son, 53 ára. Fannst örendur við hliðina á vörubíl, sem hann átti, og hafði sturtan á vörubilnum verið uppi. Ályktun: Við krufningu fannst al- ger lokun á vinstri kransæð, skammt frá upptökum, og mjög mikil þrengsli í liægri kransæð, einng skammt frá upptökum, og höfðu þau lokast af ferskum blóð- kekki, svo að blóðrásin hefur stöðvazt algerlega. 56. 21. desember. Á. í.-son, 45 ára. Veiktist skyndilega að kveldi og dó undir morgun. Ályktun: Við krufningu fannst sekklaga útvíkk- un á slagæð neöan á heilanum (aneurysma a. communic. an- terior), og hafði þessi seklcur sprungið og blætt stórkostlega út frá því, svo að tiltölulega fljótt hefur leitt til bana. Akureyrar. 1. 12. marz 1957. P. H. L.-son, 60 ára. Fannst örendur í skafli nokkru norðan við bæinn Viðarholt í Glerórþorpi. Hinn 10. marz fór liinn látni nokkru fyrir hádegi heiman að frá sér í góðu veðri. Er líða tók á daginn, án þess að hann kæmi heim, var farið að grennslast eftir honum í bænum, en án árangurs. Lögreglunni var þá tilkynnt hvarfið, og var hafin leit um kvöldið. Vegna myrkurs var þó erfitt um leitina, og bar hún ekki árangur. Næsta morgun var hafin leit strax í birtingu, en snjóað hafði um nóttina og allar slóðir horfnar. Leit þessi har ekki árangur fyrr en 12. marz, en þá fannst líkið af tilviljun, þar eð það var algerlega þakið snjó. Maðurinn hafði þjáðzt af angina pec- toris undanfarandi 5 ár. Þar eð engir áverkar fundust á líkinu, en færð var þung vegna snjós, þar sem maðurinn hafði gengið, þótti auðsætt, að um coronarthrombosis hefði verið að ræða, og taldi bæjarfógeti ekki þörf krufningar. 2. 11. marz 1957. G. F. R.- sen, 67 ára kona. Bjó ein i litlu húsi. Hinn 11. marz 1957 var lögreglunni tilkynnt, að G. F. R.-sen hefði ekki sézt úti við 2 síðustu dagana og að hús hennar væri lokað og enginn svar- aði, þótt kvatt væri dyra. Lögreglan kom þá á vettvang og brauzt inn um kjallaraglugga inn í íbúðina. Er inn var komið, lá hin látna í rúmi sínu og við rúmstokkinn næturgagn hennar með nokkru af þvagi og saur i. Einnig voru nærbuxur hennar á gólfinu með lítils háttar saur i og smásaurslettur í rúminu. Allt var í röð og reglu i íbúðinni, rafofn á fullum straumi og allar dyr og gluggar vandlega læst innan frá. G. F. R.-sen hafði mjög háan blóðþrýsting og arteriosclerosis cerebri. Engir áverkar voru neins staðar á likinu, en rotnun nokkur. enda mjög heitt inni hjá henni vegna rafofnsins. Sýnt þótti, að um heila- blæðing hefði verið að ræða, og krufn- ing talin óþörf frá lögreglunnar hálfu. 3. 19. ágúst 1957. Kl. 3,10 að nóttu var lögreglu og brunaliði Akureyrar gert aðvart um, að kviknað væri i húsinu Staðarhóll á Akureyri. Lögregla og hrunalið kom þegar á vettvang, og var þá svo magnaður eldur í kvistherbergi á efri hæð hússins, að engin leið var að komast inn í herbergið, fyrr en eldurinn hafði verið slökktur. Er inn í ofannefnt kvistherbergi kom, lá ÞaI R. Á.-son, 29 óra gamall, örendur a litlum legubekk við norðurþil herberg- isins. Þótti mega ráða af legu líksins. að maðurinn hefði látizt í svefni. Ekki voru merki um neina aðra áverka a líkinu en brunasárin. Likið ekki krul- ið. Dánarorsök talin: Trauma in con- flagratione. 4. 2. nóvember 1957. G. H. J.-son, 15 ára. Var að aka dráttarvél i J
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.