Studia Islandica - 01.06.1963, Side 9
I
VANASTRtÐ
Af Eddukvæðum og ritum Snorra Sturlusonar er ljóst,
að menn hafa ekki hugsað sér öll goðin Ása ættar. Sum
voru af öðrum ættflokki, sem nefndist Vanir. 1 Völuspá,
Ynglingasögu og Snorra-Eddu er sagt frá ófriði, er þess-
ar tvær ættkvíslir áttu með sér í árdaga. Af Völuspá er
svo að sjá sem Æsir hafi beðið ósigur. En samkvæmt
Ynglingasögu og Snorra-Eddu komust sættir á með þeim
skilmálum, að aðilar skiptust á gíslum. Fengu þá Æsir
Njörð úr Nóatúnum, sem fæddur var í Vanaheimi, og
börn hans: Frey og Freyju. Þessara friðarsamninga er
enn fremur getið í Vafþrúðnismálum, en þar segir um
Njörð:
1 Vanaheimi
skópu hann vís regin
ok seldu at gíslingu goðum.
Til sömu sagnar benda brigzlyrði Loka í Lokasennu:
Þegi þú Njörðr,
þú varst austr héðan
gísl of sendr at goðum.
Vitneskja um ætterni Njarðar kemur einnig fyrir í vísu
eftir Þórð Særeksson (frá 11. öld), þar sem segir um
Skaða: „Nama snotr una goðbrúðr Vani,“ og hjá Einari
Skúlasyni (á 12. öld), sem kallar Freyju Njarðardóttur
Vanabrúði. Af þessum dæmum er Ijóst, að sögnin um
ættemi Njarðar og bama hans er eldri en Snorri, og