Studia Islandica - 01.06.1963, Blaðsíða 77
71
voru ort. Er því vart annað líklegra en þar sé að finna
kveikjuna að sögunni um Vanastríðið.
1 undanförnum köflum hefur oft verið minnzt á hlið-
stæður við dýrkun Vana í helgisiðum suðlægari þjóða.
Hins vegar hefur engin tilraun verið gerð til að benda
á hliðstæður við Æsi í öðrum trúarbrögðum að öðru leyti
en því, að þess var getið í upphafi, að Dumézil rekur
uppruna germanskra trúarbragða til hins frumaríska
þjóðfélags. Dumézil byggir þessa kenningu að nokkru
leyti á málinu sjálfu, en það er hinn traustasti grund-
völlur, þar sem það nær til. Til að mynda ber það öruggt
vitni um guðatrú Frumaría, að flest arisk mál hafa orð
af sama stofni, er merkja guð.
Enn fremur hefur Dumézil bent á líkingu með sumum
norrænum guðum og guðum annarra arískra þjóða. Þá
verður fyrst fyrir okkur Þór, sem um margt minnir á
Indra, herguð Indverja. Indra er vopnaður þrumukylf-
unni, sem snýr aftur, er hann hefur kastað henni, líkt
og hamar Þórs. Frægasta hetjudáð Indra var sigur hans
á drekanum Vritra. Og í helgiljóðum Indverja er þessari
dáð hans sungið lof um fram allar aðrar. En algengasta
yrkisefni íslenzkra skálda, þeirra er ortu lofkvæði um
Þór, var viðureign hans og Miðgarðsorms. Auðvitað
verður að hafa það hugfast, að sagnir um sigur guðs á
dreka eru miklu víðar til en meðal arískra þjóða. Einnig
minnir Varuna, hinn bragðvísi og skuggalegi höfuðguð
Indverja, að mörgu leyti á Óðin. Um samsvörunina
Mitra-Týr er erfiðara að mynda sér rökstudda skoðun,
þar sem engar nákvæmar lýsingar á dýrkun Týs eru
til meðal germanskra þjóða.
Þá er það athyglisvert, að í mörgum arískum trúar-
brögðum er dýrkun á tvíburabræðrum, sem um fram
allt eru vinir manna. Frægastir eru Asvínar Indverja
og Dioskurar Grikkja. Svipaðar hugmyndir eru einnig