Studia Islandica - 01.06.1963, Blaðsíða 63
59
lýst í Danasögu Saxos Grammaticusar.1 Hamarsmerki
var einnig rist á steina, og nafn Þórs kemur auk þess
fyrir á nokkrum rúnaristum. Vinsældir Þórs fram yfir
öll önnur goð má þó bezt marka af mannanöfnum. Af
nafni hans eru dregin margfalt fleiri mannanöfn en af
nöfnum allra annarra goða samanlagt.
Þór var upphaflega þrumuguð, eins og nafn hans
bendir til (sbr. þýzku Donner), og hamarinn ímynd
eldingarinnar. Minjar um þetta eðli hans eru enn bæði í
dönsku og sænsku: torden (Þórdunur) og áska (ásekja).
Starfssvið Þórs varð samt f jölþættara en nokkurs annars
goðs, og hann var sá guð, sem oftast var leitað til á flest-
um sviðum mannlífsins.
Eins og oft hefur verið tekið fram, var Freyr fremsti
árguð norrænna þjóða á síðustu öldum heiðni. En Þór
var einnig blótaður til árs, að minnsta kosti í Svíþjóð.
Um það ber Adam af Brimum bezt vitni: ,,Þór drottnar
í lofti... og ræður þrumum og eldingum, heiðríkju og
gróðri.“ Á slíka dýrkun Þórs meðal Svía bendir einnig
sú staðreynd, að finnski þrumuguðinn Ukko, sem er
greinileg eftirmynd Þórs, var í fyrsta lagi árguð. Hann
var blótaður með miklum drykkjuveizlum á vorin til að
kalla fram regn og efla gróður jarðar. Þá varð húsfreyjan
um fram allt að drekka sig fulla, því að annars bar jörðin
ekki nema hálfa uppskeru.2 örnefni benda einnig á mátt
Þórs til að efla gróður jarðar. I Svíþjóð eru fimm Þórs-
akrar og í Danmörku tveir. En helgir akrar virðast
eingöngu tengdir goðum, sem blótuð voru til árs.3 f
Noregi eru engir Þórsakrar til, og er vafasamt, hvort
Þór hefur nokkurn tíma verið árguð meðal vestur-
norrænna þjóða.
Þó að Þór væri stundum blótaður til árs, varð hann
samt aldrei guð frjóseminnar á sama hátt og Freyr.
1 Saxo, bls. 350.
2 Sjá Nordisk kultur XXVI, bls. 126.
3 Sjá Magnus Olsen: Kultminder, bls. 90—91.