Studia Islandica - 01.06.1963, Side 17

Studia Islandica - 01.06.1963, Side 17
15 Um dýrkun Týs meðal Suður-Germana eru engar ör- uggar heimildir til aðrar en orðið Týsdagur. Þess skal þó getið, að á Englandi hafa fundizt tvö fórnarölturu, sem helguð eru Mars, og á öðru þeirra hefur hann viðumefnið Thingsus. ölturu þessi voru reist af frísneskum hermönn- um í liði Rómverja um 230 e. Kr.1 Almennt er talið, að nafnið Mars eigi við Tý, og af viðurnefninu Thingsus hefur verið dregin sú ályktun, að Týr hafi verið guð þing- helginnar. Um dýrkun Þórs í Þýzkalandi eru mjög fáar heimildir.2 1 skjalasafni páfa er bréf eitt skrifað á fomþýzku, þar sem mönnum, er tóku skírn, var boðið að afneita Thunaer, Uuoden og Saxnote. I rúnaristu á skartgrip, sem fannst í kirkjugarði nálægt Ágsborg (frá 6. til 8. öld), koma fyrir nöfnin Wodan og Wigiþonar (ef til vill Vingþór). Eigi að síður þarf ekki að efast um, að Þór hefur verið mjög tignaður í Þýzkalandi á öldunum eftir Krists burð. Það sést bezt á því, að Germanar þýddu hið latneska heiti fimmtudagsins, sem kenndur var við Jupiter, með orðinu Þórsdagur. En varla hefðu Germanar látið Þór samsvara æðsta guði Rómverja, ef hann hefði ekki verið í hópi þeirra guða, sem allra mest voru tignaðir. Það er því full ástæða til að ætla, að þar sem Tacitus nefnir Herkúles næstan á eftir Merkúríusi (Öðni), hljóti hann að eiga við Þór. Langmestar heimildir eru um Óðin og Frigg hjá Suður- Germönum. 1 hinni frægu Merseborgar-særingu (annarri særingunni) koma fyrir ýmis eiginnöfn, sem helzt virð- ast vera goðanöfn. En ekki hefur tekizt með vissu að finna þar nöfn fleiri höfuðguða en Óðins og Friggjar og ef til vill Baldurs. Langmerkasta saga um Óðin og Frigg utan Norður- landa er sögnin um það, hvernig Langbarðar hlutu nafn 1 Sjá Hoops: Reallexikon der germanischen Altertumskunde undir Mars Thingsus. 2 Sjá de Vries I, bls. 310 og II, bls. 18 og 112.

x

Studia Islandica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.