Studia Islandica - 01.06.1963, Page 36

Studia Islandica - 01.06.1963, Page 36
34 að litið hafi verið á konunginn sem staðgengil árguðsins og maka árgyðjunnar. Meira að segja hafi konungur stundum verið færður gyðjunni að fóm. Slík konungablót eru kunn úr ýmsum trúarbrögðum. En Folke Ström tekur fram, að oftar muni þau hafa verið framkvæmd á tákn- rænan hátt heldur en konungamir sjálfir væru teknir af lífi. Þó mun það líka hafa átt sér stað. Um slíkt heilagt konungdæmi verður nánar rætt í næsta kafla. En fyrst verða athugaðar hliðstæðar frásagnir úr Ynglingatali. Þá verður fyrst fyrir sögnin um dauða Dómalda. I Ynglingatali er greinilega tekið fram, að Svíar blótuðu honum til árs. En Snorri segir auk þess, að Svíar hafi áður reynt að létta af því hallæri, er var í landinu, með því að blóta yxnum og mönnum. En er hvorugt stoðaði, ákváðu þeir, „að þeir skyldi honum [konunginum] blóta til árs sér og veita honum atgöngu og drepa hann og rjóða stalla með blóði hans, og svo gerðu þeir."1 1 Historia Norvegiæ segir svo um þennan atburð: „Domald Sveones suspendentes pro fertilitate frugum deæ Cereri hostiam obtulerant“. Það er að segja: Svíar hengdu Dómalda og gáfu hann gyðjunni Ceres til árs. Varla þarf að efa, að það er hin norræna árgyðja, sem hér er kölluð Ceres og nefnd var Díana í sögunni um Aðils konung. Bæði Ceres og Díana voru blótaðar til árs meðal Rómverja og minna að ýmsu leyti á Freyju. En auðvitað er hugsanlegt, að norræna árgyðjan hafi verið blótuð í Uppsölum undir fleira en einu nafni. Það er einnig sam- eiginlegt í sögunum um Aðils og Dómalda, að báðum virðist hafa átt að blóta á altari gyðjunnar. Sögnina um dauða Aðils í Historia Norvegiæ er eðlilegast að skýra á þann hátt, að hátíðahöldunum hafi átt að ljúka með konungsblóti, en konungur hafi reynt að flýja á hesti sínum til þess að forðast fórnardauða. Ynglingatali og Historia Norvegiæ ber ekki saman um, 1 Heimskringla, Yngl.s., 15. kap.

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.