Studia Islandica - 01.06.1963, Page 41

Studia Islandica - 01.06.1963, Page 41
39 unga eftir Vilhjálm af Malmesbury (frá 12. öld.). Þar segir, að Skeaf hafi komið til eyjarinnar Skandza [Skáneyjar] við Germaníu á skipi án ræðara með kornax undir höfðinu. „Þess vegna var hann kallaður Skeaf [kornax], og af landslýðnum var litið á þetta sem jarteikn og hann alinn upp með mikilli umhyggju. Þegar hann óx upp, var hann konungur í þeirri borg, sem þá var nefnd Slésvík, en nú Heiðabær.'*1 Axel Olrik, sem manna ýtarlegast hefur kannað forn- danskar hetjusagnir, ber þessa sögu saman við enska jarteiknasögu, sem á að hafa gerzt á dögum Játmundar konungs, um raunverulegt kornax siglandi á skildi. Olrik hyggur, að sagnirnar um Skjöld og Skeaf eigi upphaflega rót sína að rekja til þvílíkra hugmynda, en bæði kornaxið og skjöldurinn hafi tekið á sig persónulega mynd. Skyld Skefing er því ímynd kornaxins, sem kom siglandi á skildi. Að samanburði loknum segir Olrik: „Sögnin um Skjöld er í fullu samræmi við hinar algengu hugmyndir um gróðrarvætti, sem vaknar eða heldur innreið sína á vorin, en deyr á haustin eða hverfur brott.“2 1 fljótu bragði sýnist vafasamt, að sögnin um Skeaf hafi verið alkunn á Norðurlöndum að fornu, þar sem hún er aðeins varðveitt í enskum ritum. En svo nákvæm eftirmynd hennar er til í finnskum blótsöngvum, að varla þarf að ef- ast um sameiginlegan uppruna. Og þá er vart um aðra leið að ræða en að sagan eða siðir þeir, er henni voru tengdir, hafi borizt frá norrænum mönnum til Finna. Hin finnska sögn er um vorguðinn (eða vorvættina) Sánvpsá. I blót- söngum segir, að Sámpsá svaf hjá systur sinni, móður eða stjúpmóður, i korndyngju á skipi eða sleða, þegar hann var sóttur á vorin til skóglausrar eyjar í hafi úti til þess að efla kornvöxt á ökrunum. Þá sendir haf- guðinn Ahti fyrst veturinn, en síðan sumarið, til þess að vekja hann. Blótsöngvar þessir voru stundum fluttir 1 Olrik: D. H. I, bls. 234. 2 Sama rit II, bls 250—51.

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.