Studia Islandica - 01.06.1963, Side 50

Studia Islandica - 01.06.1963, Side 50
48 fulltrúar guðsins við trúarleg hátíðahöld. Þess vegna er eðlilegast að hugsa sér, að yfirreið Svíakonunga um Eiríksgötu sé eftirmynd heiðinna hátíða, er hinn guðlegi konungur fór um landið til að efla frjómátt þess. Mjög lítið verður ráðið af heimildum um ársæld og helgi konunga meðal Suður-Germana. Hið helzta er frá- sögn ein um Burgunda frá síðari helmingi 4. aldar. „Meðal þeirra ber konungurinn nafn ættarinnar og er kallaður Hendinos, og að fornum sið verður hann að leggja niður völd, ef stríðsgæfan er honum mótsnúin eða jörðin ber ekki ríkulegan ávöxt."1 Hugsanlegt er, að hér sé að finna leifar hins sama siðar og getið er um meðal Forn-Svía, er þeir blótuðu konungi sínum, ef árgæzka brást. Eigi að síður virðist ljóst af þeim gögnum, sem til eru, að helgi konungdómsins hafi verið miklu ríkari meðal Norðurlandabúa en annarra germanskra þjóða, er sögur hefjast.2 Ef til vill má finna skýringu á þessu í goðadýrk- un Germana. Helgi konungdómsins var nátengd dýrkun Freys. En hann virðist lítt eða ekki hafa verið blótaður meðal hinna suðlægari þjóða, eftir að þær koma fram í ljós sögunnar. VII UPPRUNIVANAGOÐA Saga norrænna goða verður ekki rakin lengra aftur en til daga Tacitusar (um 100 e. Kr.). Fyrir þann tíma er norræn trúarbragðasaga nafnalaus. Eigi að síður telja nútímamenn sig vita ýmislegt um trúarbrögð og helgi- 1 Ammianus Marcellinus, sjá Clemen, bls. 14. 2 Sú skoðun hefur komið fram, að konungdæmi meðal ger- manskra þjóða sé upp runnið á Norðurlöndum, en hafi miklu siðar borizt til þeirra Germana, er sunnar bjuggu. (Otto v. Friesen: Har det nordiska kungadömet sakralt ursprung? Saga och sed 1932, bls. 15—34). En heimildir um þetta eru af svo skornum skammti, að varla verður dæmt um réttmæti þessarar kenningar með fullum rökum.

x

Studia Islandica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.