Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 5
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
5
Ritrýnd grein / Peer reviewed
INNGANGUR
Þorskur, Gadus morhua L., (1. mynd)
er mikilvægasta tegund botnfiska á
Íslandsmiðum, bæði í efnahagslegu og
vistfræðilegu tilliti. Þorskveiðar hafa
verið stundaðar við Ísland frá upphafi
búsetu. Mestur var þorskaflinn árið
1954 þegar hann fór í tæp 550 þúsund
tonn en á síðustu árum hefur hann verið
um 260 þúsund tonn.1
Þorskur finnst allt í kringum landið
á allt að 600–700 m dýpi2 en þéttleiki
hans er mismunandi eftir svæðum og
árstímum. Aðalhrygningarsvæði þorsks
eru fyrir sunnan og suðvestan landið3 en
hann hrygnir einnig á öðrum svæðum.
Egg og lirfur berast með straumum á
uppeldissvæði sem eru fyrir vestan,
Göngur og atferli
þorsks: Þorskmerkingar
við Ísland í rúma öld
Ingibjörg G. Jónsdóttir, Jón Sólmundsson, Einar Hjörleifsson, Magnús Thorlacius og Hjalti Karlsson
ÞORSKUR finnst allt í kringum Ísland og getur hann synt töluverða vegalengd
á milli svæða, svo sem frá hrygningarsvæði yfir á fæðusvæði eða frá uppeldis-
svæði að hrygningarsvæði. Merkingar hafa verið notaðar til að skoða göngur
fiska og var fyrsti þorskurinn merktur við Ísland árið 1904. Merkingar hafa sýnt
að eftir hrygningu við suðurströndina leitar þorskur aðallega á fæðusvæði norð-
vestur og austur af landinu. Með niðurstöðum úr rafeindamerkjum hefur verið
greint á milli tveggja atferlisgerða þorsks, annars vegar er grunnfarsþorskur,
hins vegar djúpfarsþorskur. Grunnfarsþorskar halda sig á minna en 200 m
dýpi allt árið en djúpfarsþorskar halda sig í hitaskilunum á fæðutíma þar sem
töluverður breytileiki er í dýpi og hitastigi. Almennt sýnir þorskur tryggð við
hrygningarsvæðin og heimasvæði þorsks sem hrygnir á mismunandi svæðum
skarast oft lítið. Þorskur sem merktur er við Ísland endurheimtist sjaldan fyrir
utan íslenska landhelgi en þorskar merktir við Grænland endurheimtast reglu-
lega við Ísland. Egg og lirfur rekur með straumum frá hrygningarsvæðum við
Ísland til Grænlands og þegar kynþroska er náð kemur þorskurinn til Íslands til
að hrygna. Í þessari grein er fjallað um merkingar á þorski við Ísland og hvaða
upplýsingar þær hafa veitt um far, atferli og stofngerð íslenska þorsksins á
síðustu 100 árum.
1. mynd. Þorskur, Gadus morhua. – Atlantic Cod Gadus morhua. Ljósm./Photo: Svanhildur
Egilsdóttir, Hafrannsóknastofnun.
Náttúrufræðingurinn 91 (1–2) bls. 5–15, 2021