Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 7

Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 7
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 7 Ritrýnd grein / Peer reviewed B re id d ar g rá ð a / L at it u d e Lengdargráða / Longitude 61° -30° -25° -20° -15° -10° -5° 63° 65° 67° 69°verið góðar og dreifst yfir langt tímabil. Í krafti fjöldans má því skoða á hvaða leið merktur hópur fiska er og á hvaða tíma fiskarnir eru helst á tilteknum svæðum. Þess ber þó að geta að endurheimtur eru háðar fiskveiðum og berast því aðeins frá svæðum þar sem veiðar eru stundaðar. Rafeindamerki (e. Data Storage Tags, DSTs) hafa einnig töluvert verið notuð hér við land. Rafeindamerki safna stöð- ugt gögnum þar til minni merkjanna fyllist eða fiskurinn endurheimtist og mælingin er stöðvuð. Þessi merki mæla yfirleitt hitastig og þrýsting sem er umbreytt í dýpi. Hægt er að stilla tíðni mælinganna og hafa merkin oftast verið stillt á einnar til tíu mínútna mælitíðni. Merkin geta mælt tiltölulega lengi, en það fer eftir mælitíðninni. Við Ísland hafa verið endurheimt rafeindamerki með gögnum sem spanna rúm þrjú ár.8 Rafeindamerki eru fyrirferðarmeiri en slöngumerki og hefur reynst best að setja þau inn í kviðarhol fisksins. Til þess þarf að skera lítið gat á kviðinn, stinga rafeindamerkinu inn og sauma fyrir. Til að hægt sé að sjá að fiskurinn er með rafeindamerki er plastslanga svipuð slöngumerki fest við rafeinda- merkið og látin standa út úr kviðarhol- inu. Allir fiskar með rafeindamerki eru einnig merktir með slöngumerki. Auk þess að sýna hvar fiskurinn var merktur og endurheimtur gefa mælingar með rafeindamerki upplýsingar um atferli hvers einstaks fisks, þ.e. á hvaða dýpi og við hvaða hitastig hann heldur sig frá merkingu þar til hann endurheimt- ist (ef merkið mælir svo lengi). Út frá þeim gögnum er til dæmis hægt að greina atferlisgerð einstaklinga,9 svo sem atferli á hrygningartíma,10 sjá hvort einstaklingar ganga til hrygn- ingar eða sleppa úr ári,11 meta staðsetn- ingu einstaklinga út frá sjávarföllum8 og margt fleira. Ókostir merkinga með rafeindamerkjum eru að þær eru vanda- samar og tímafrekar og því er erfitt að merkja marga fiska, sem er auðvelt þegar slöngumerki eru notuð. Einnig eru merkin mikið dýrari en slöngu- merki en margfalt meiri upplýsingar frá hverju merki vega þar á móti. FAR Þorskur syndir langa vegalengd milli hrygningar-, uppeldis- og fæðusvæða. Far ræðst bæði af erfðum og umhverfi. Líklegt er að hrygningargöngur ráð- ist að miklu leyti af erfðum þar sem hrygning á ákveðnum svæðum og tíma hafi í gegnum tíðina skilað betri nýliðun. Á hinn bóginn má telja líklegt að fæðugöngur ráðist frekar af umhverfi þar sem fiskar leita í svæði þar sem meiri fæðu er að finna og forðast svæði þar sem hitastig er utan kjörhitamarka þeirra. Hitastig er sá umhverfisþáttur sem hefur hvað mest áhrif á far og útbreiðslu þorsks.9,12 Skilyrði í sjónum umhverfis Ísland ráðast meðal annars af grein úr hlýjum Norður-Atlantshafsstraumnum sem berst upp að suðurströnd landsins og streymir síðan réttsælis meðfram suður- og vesturströndinni (4. mynd).13 Við hrygginn á Grænlandssundi skiptist straumurinn í tvo hluta, annar streymir áfram norður og austur fyrir Horn en hinn í vesturátt meðfram landgrunns- brún Austur-Grænlands. Egg og lirfur berast því frá hrygningarsvæðunum við 3. mynd. Slöngumerki á íslenskum þorski. Þessi þorskur er tvímerktur með merki sínu hvorum megin við bakuggana. – A con- ventional tag on cod. This cod was double tagged with one tag at each side of the fins. Ljósm./Photo: Jón Sólmundsson. 4. mynd. Helstu yfirborðs- straumar umhverfis Ísland. Rauðar örvar sýna heitan Atlantssjó, bláar örvar sýna kaldan pólsjó og grænar örvar sýna strandstrauminn. – Main near-surface circulation around Iceland. Red arrows show flow of warmer Atlantic waters, blue arrows the flow of colder Arctic waters and green arrows the coastal current.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.