Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 8
Náttúrufræðingurinn
8
Ritrýnd grein / Peer reviewed
Suðvesturland norður fyrir land og að
einhverju leyti til Grænlands. Úr norðri
berst kaldur pólsjór inn á svæðið fyrir
norðan land og fer austur með landinu.
Sjávarhiti fyrir norðan og austan er því
mun lægri en fyrir sunnan og vestan.
Styrkur innflæðis Norður-Atlantshafs-
straumsins inn á norðursvæðið er mis-
mikill en getur sum ár leitt til töluverðrar
hitaaukningar, líkt og gerðist árið 2003.14
Slík frávik í sjávarhita geta haft töluverð
áhrif á lífríkið.
Við merkingu fiska eru skráðar
ýmsar upplýsingar, svo sem um lengd
fisksins og merkingarstað (tíma, hnit,
dýpi). Þegar fiskurinn endurheimtist
eru síðan aftur skráðar upplýsingar, um
lengd fisksins, þyngd, kyn, kynþroska og
aldur ásamt hnitum, dýpi og tíma. Til-
gangurinn er að fylgjast með því hvar
fiskarnir halda til og hvort þeir leggja
í langferðir og þá hvenær. Þegar fiskar
eru merktir á hrygningarslóð er meðal
annars hægt að fylgjast með því hvert
þeir fara í fæðuleit og hvort þeir koma
aftur á sömu hrygningarslóð næstu ár.
Hugsanlega fást upplýsingar um ferðir
á önnur hafsvæði, til dæmis milli Græn-
lands og Íslands. Einnig má nota merk-
ingar til að meta hve mikill samgangur
er milli fiska frá ákveðnum svæðum, svo
sem mismunandi hrygningarsvæðum
við Ísland. Rannsóknirnar byggjast á
því að fiskar eru merktir á ákveðnum
svæðum, en til að fá upplýsingar þarf
að endurheimta fiskinn. Endurheimtur
verða eingöngu fyrir tilstilli fiskveiða.
Mismunandi er milli svæða hve mikið
endurheimtist og endurheimtur eru
meiri þar sem veiðiálag er meira (að því
gefnu að fiskurinn gangi inn á svæðið).
Það tekur því yfirleitt nokkur ár að fá
niðurstöður og er mikilvægt að endur-
heimta töluverðan fjölda fiska til að fá
mynd af göngumynstri hópsins.
Merkingar á þorski hafa verið stund-
aðar í Norður-Atlantshafi í rúm 100 ár.
Það er tiltölulega auðvelt að merkja
þorsk með slöngumerkjum en líkt og
flestar aðrar fisktegundir þolir þorskur
illa að vera tekinn upp á yfirborð af
miklu dýpi.
Samantekt á um 500 greinum sem
fjalla um far þorsks í Norður Atlantshafi
bendir til að flokka megi þorsk í fjóra
hópa miðað eftir gönguatferli:15
Staðbundnir þorskar sem halda sig
að mestu á tiltölulega litlu og afmörk-
uðu svæði (e. sedentary).
Gönguþorskar sem fara í árstíða-
bundnar göngur á fæðuslóð en koma
til hrygningar á sama hrygningar-
svæði ár eftir ár (e. accurate homers).
Gönguþorskar sem fara í árstíða-
bundnar göngur á fæðuslóð en
koma til hrygningar á svipuð hrygn-
ingarsvæði ár eftir ár (e. inaccurate
homers).
Þorskar sem sem halda sig á tiltölu-
lega stóru svæði en það er tilviljunar-
kennt hvar þeir hrygna og hvert þeir
fara (e. dispersers).
Samkvæmt samantektinni voru flestir
þorskhópar staðbundnir (41% af 174
hópum sem skoðaðir voru) og aðrir
flokkuðust nær jafnt í hina þrjá hópana. Í
samantektinni flokkuðust flestir þorskar
hér við land í fyrstu tvo hópana. Þorskar
sem yfirgefa hrygningarsvæði geta verið
mjög nákvæmir við sókn á sömu hrygn-
ingarsvæði að ári, jafnvel þannig að þeir
endurheimtast innan við kílómetra frá
þeim stað sem þeir hrygndu árið áður.16,17
Fyrstu tveir hóparnir stuðla fremur að
aðgreiningu milli hrygningarhópa en
hópar 3 og 4 þar sem takmörkuð blöndun
er á milli hópa á hrygningarslóð vegna
hegðunarmynsturs þeirra.
ATFERLI
Gögn úr rafeindamerkjum hafa leitt í ljós
ólíkt far og atferli hjá þorski við Ísland
(5. mynd). Annars vegar er þorskur sem
heldur sig grunnt allt árið (grunnfar,
e. coastal) og hins vegar þorskur sem
fer á meira dýpi á fæðutíma (djúpfar,
e. frontal).9
Djúpfarsþorskurinn heldur sig
í hitaskilum þar sem norðlægir og
suðlægir straumar mætast og stundar
mjög lóðrétt far. Grunnfarsþorskurinn
heldur sig hins vegar á landgrunninu í
fæðuleit, stundar lítið lóðrétt far og fer
sjaldan á meira en 200 m dýpi. Djúp-
farsþorskar vaxa hægar og verða seinna
kynþroska en grunnfarsþorskar og
skiptir hitastig sjávar þar miklu máli.
Djúpfarsþorskar eru í kaldari sjó þegar
þeir eru í fæðuleit9 og geta verið í sjáv-
arhita í kringum 0–4°C (5. mynd). Hita-
stig sjávar þar sem grunnfarsþorskar
halda sig hækkar stöðugt yfir sumar-
mánuðina og nær hámarki á haustin.
Útlitsmunur er á þessum tveimur
atferlisgerðum og skýrist líklega mest
af mismunandi aðlögun þeirra að fæðu-
öflun.18 Má þar nefna mun á opnun
kjaftsins og stað augna. Djúpfars-
þorskur hefur stærri kjaft, sem bendir
til þess að hann éti stærri og hreyfan-
legri bráð en fæða grunnfarsþorsks sé
botnlægari.18 Þorskurinn er tækifæris-
sinni þegar kemur að fæðu og helsta
bráð hans það sem er auðfáanlegt á
1.
2.
3.
4.
5. mynd. Dæmigerðir ferlar hitastigs (rauðir ferlar) og dýpis (svartir ferlar) hjá grunnfars- og djúpfarsþorski.
– Typical profiles from DST tags for coastal and frontal cod showing temperature (red) and depth (black).
0
2
4
6
8
10
200
150
100
50
0
H
it
as
ti
g
(°
C
) /
T
e
m
p
e
ra
tu
re
Grunnfar / Coastal Djúpfar / Frontal
D
ýp
i (
m
) /
D
e
p
th
Maí Júl Sep Nóv Jan Mar Maí Júl Sep Nóv Jan Mar
0
2
4
6
8
10
600
500
400
300
200
100
0