Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 27

Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 27
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 27 Ritrýnd grein / Peer reviewed 3. mynd. Björn Gunnlaugsson stærðfræð- ingur og kortagerðarmaður (1788–1876) með orðurnar tvær sem hann fékk fyrir störf sín að landmælingum. Mynd eftir Sigurð málara 1859. – A renowned Icelandic mathematician and cartographer painted 1859. 2. mynd. Uppdráttur Péturs Péturssonar á Hákonarstöðum af ferðaleiðum norðan Vatnajökuls 1797 og 1833. – A map from 1833 by the farmer Pétur Pétursson of his travel route north of Vatnajökull 1833 and an earlier trip in 1797. Uppdráttur/Map: Guðmundur Ó. Ingvarsson. þá ungum stúdent úr Skálholtsskóla. Í Ferðabók sinni segir Sveinn svo frá í íslenskri þýðingu: Leitin að þessum vegi, sem greidd var af opinberu fé, varð til þess að Fljóts- dælingurinn Pétur Brynjólfsson, sonur fjórðungslæknisins austur þar, ungur maður og röskur, fann alveg nýja og beina leið, ofar og nær jöklinum, yfir öræfi þessi að oftnefndu Kiðagili. Ég á þessum ágæta og efnilega unga manni að þakka alla þá vitneskju, sem ég hef fengið um svæðið norðan Klofajökuls.6 Öðru sinni, árið 1797, fór Pétur þessa leið ásamt Guttormi Þorsteinssyni (1774–1848), síðar presti á Hofi í Vopna- firði. Pétur fórst hins vegar sumarið eftir með báti á Berufirði. Guttormur lýsti fyrst löngu síðar, 1832, ferð þeirra félaga í bréfi til Páls Þórðarsonar Mel- steðs sýslumanns á Ketilsstöðum.7 Árið áður hafði verið stofnað svonefnt Fjall- vegafélag til að taka upp þráðinn um frekari könnun á ferðaleiðum, meðal annars norðan Vatnajökuls. Bar það þann árangur að tveir bændur af Jökul- dal, Pétur Pétursson á Hákonarstöðum og Jón Ingimundarson í Klausturseli, réðust til ferðar síðsumars 1833 „til þess að leita upp veg frá Jökuldal úr Múla- sýslu suður á Sprengisandsveg, eða í Kiðagil fyrir norðan Sprengisand, eptir sem verkast vildi að komist yrði“.8 Bréfi sýslumanns til amtmanns fylgdi kort sem Pétur bóndi hafði dregið upp af leið þeirra og betrumbætt í viðurvist sýslumanns, ásamt inndreginni ferða- leið nafna hans Brynjólfssonar og Gutt- orms Þorsteinssonar sumarið 1797 (2. mynd). Umgetnu bréfi sýslumanns til amtmanns fylgdi afrit af ofangreindum bréfum með leiðarlýsingu og uppdrætti. Þessar heimildir, bréf og uppdrættir eru birt í grein minni í tímaritinu Jökli 2014,9 sem og í árbók Ferðafélagsins 2018.10 Sumarið 1839, sex árum eftir ferð bændanna af Jökuldal, komu gegnum Vonarskarð úr gagnstæðri átt á aust- urleið Björn Gunnlaugsson mælinga- meistari (3. mynd) og með honum Sig- urður Gunnarsson, þá 27 ára, nýstúdent úr Bessastaðaskóla. Þetta var fyrsta ferð manna sem vitað er um gegnum skarðið frá því að Gnúpa-Bárður fór um með búslóð og föruneyti á suðurleið, sem frá segir í Landnámu. Eftir næturhvíld við Valafell norðarlega í Vonarskarði riðu þeir í einstöku blíðviðri upp eftir Rjúpna- brekkujökli og hátt upp í norðanverða Bárðarbungu (4. mynd): „... þangað sem við komum á víða sjónarhæð, þaðan sem bezt var að líta yfir landið norðvestur, norður og austur.“11 Bjó Sigurður alla ævi að þeirri upplifun. Þaðan héldu þeir austur eftir Dyngjujökli, niður af honum vestan Kistufells (5. mynd) og riðu áfram austur Jökulsáraura (Flæður) og í Hvannalindir á leið sinni austur á Jökul- dal. „Úr Illugaveri og hingað er hjer um bil hálf fjórða þingmannaleið, og hvergi grasstrá á þeim vegi,“ segir Sigurður í grein sinni Vatnajökulsvegur, sem birtist í Þjóðólfi 1852.12 Fyrir Björn Gunnlaugs- son, sem vann um þetta leyti hörðum höndum að því að ljúka mælingum vegna heildaruppdráttar af öllu landinu, nýtt- ust vel mælingar og athuganir úr þessari ferð. Taldi hann að þessa leið mætti fara „með lest á 7 dögum frá Reykjavík austur að bænum Brú á Jökulsdal ...“.13 Inn á uppdrátt hans af suðausturhluta lands- ins er dreginn Vatnajökulsvegur gegnum Vonarskarð (6. mynd). Ári síðar, í byrjun júlímánaðar 1840, voru fjórir menn á austurleið úr Holtum um Þjórsárver og héldu þaðan þvert austur yfir Sprengisand og áfram norðan Vatnajökuls til Jökuldals. Frum- kvöðull leiðangursins var danskur fjöl- fræðingur, Jørgen Christian Schythe
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.