Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 28

Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 28
Náttúrufræðingurinn 28 Ritrýnd grein / Peer reviewed (1814–1877), sem kom öðru sinni hingað til lands 1846 til að gera úttekt á Heklugosi frá árinu áður. Hann réð Sigurð Gunnarsson (7. mynd) sem leið- sögumann ásamt með tveimur öðrum Íslendingum til aðstoðar. Ekki veitti af, þar eð þetta var mikill leiðangur með ekki færri en 17 hesta, 7 til reiðar og 10 áburðarklára, nesti til þriggja vikna og 250 pund af ilmandi töðu.14 Könnuð skyldi að hluta til ný leið um Arnarfell við upptakakvíslar Þjórsár. Reyndist hún erfið sökum ótræðismýra og sand- bleytu. Framan af fengu þeir þokkalegt veður en síðan fádæma hart norðaná- hlaup. Reyndist ferð þessi áður lauk og þeir náðu í Brú á Jökuldal ein mesta þrekraun sem um getur í óbyggðum að sumarlagi.15 Frásagnir af henni urðu eflaust til að draga úr áhuga manna á Vatnajökulsvegi. Var sá þráður ekki upp tekinn fyrr en löngu síðar og þá í smækkaðri mynd þegar Gæsavatnaleið yfir Dyngjuháls og Urðarháls áleiðis í Dreka varð fær jeppum. GRÍMSVÖTN, HEITI ÞEIRRA OG LEGA ÞEKKT FRÁ MIÐÖLDUM Við víkjum nú frá hugmyndum manna um Vatnajökulsveg og beinum sjónum að Grímsvötnum, þeim stað sem oftast hefur minnt á sig í Vatnajökli frá því um 1300 að minnsta kosti og er að líkindum nafngjafi hans (8. mynd). Fullvíst má telja að á miðöldum hafi menn komið að Grímsvatnalægðinni, ef til vill í kjölfar eldsumbrota, og séð þar auð vötn og vakir sem ráðið hafi nafngiftinni að hluta til. Sennilega var þar maður að nafni Grímur á ferð, en það er á huldu og bætir þjóð- sagan um Vestfjarða-Grím þar litlu við. Önnur kenning langsóttari er að lýsingar- orðið grímur, í merkingunni dökkur, vísi á hamraveggi Grímsfjalls horft norðan að.16 Sennilega var styttri leið þangað á jökli í árdaga áður en skriðjöklar gengu fram að ráði. Ýtarlegasta yfirlit um sögu Grímsvatna og nafngift er að finna í riti Sigurðar Þórarinssonar, Vötnin stríð,17 sem hann tók saman í aðdraganda vegar og brúa yfir Skeiðarársand. Grímsvötn ber alloft á góma frá því um 1600, og þá sem eldstöð í Vatna- jökli.4 Í latínubréfi Ólafs Einarssonar heyrara í Skálholti, síðar prests í Kirkjubæ á Héraði, sem talið er frá 1598–1600 er kynnt til sögu „sú ákaflega og að því er náttúrufróðir menn tjá oss hreint út sagt yfirnáttúrulega elds upp- koma, sem úr stöðuvötnum þeim, er á voru máli kallast Grímsvötn, þeytti upp, hærra hæstu fjöllum og með ógurlegum krafti og brestum, ógrynnum af brunnum vikri og sandi ...“17 Þetta mun vera fyrsta þekkta heimildin um Grímsvatnanafnið en síðan kemur það ítrekað fyrir í ritum 17. aldar, meðal annars í annálsbroti hjá Gísla Oddssyni sem hefur það árið 1629 eftir Brandi Péturssyni Mýrdælingi, hér í íslnskri þýðingu, „að í austurfjöllum við Grímsvötn hafi brotizt upp eldur með eimyrju, vikri og brunagrjóti, vatnsflóð flætt yfir Breiðamerkursand og Skeiðar- ársand (meira en fimm stórar rastir) og svipt skepnur haga.“ Ef eins og um Jök- ulsá áður er átt við rómverskar mílur 4. mynd. Í Vonarskarði við Köldukvíslarjökul vestan undir Bárðarbungu. Leiðin upp á „Sjón- arhæð“. Til vinstri norðan við jökulinn eru þrjú Bálkafell. Kistu (1667 m) ber við loft efst í hægra horni og handan hennar sést í Rjúpnabrekkujökul. Í fjarska sjást Dyngjufjöll og tindur Herðu- breiðar. – In Vonarskarð at Köldukvíslarjökull looking north. The western slope of Bárðarbunga showing the route up to the wiewpoint „Sjónarhæð“. Far in the distance are the Dyngjufjöll mountains. Ljósm./Photo: Hjörleifur Guttormsson, 9. ágúst 2010. 5. mynd. Uppdráttur sem sýnir líklega leið Björns og Sigurðar 1839 upp í norðanverða Bárðar- bungu og þaðan niður hjá Kistufelli. – A map showing likely route of Björn and Sigurður 1839 high up on Bárðarbunga and northeast to Kistufell. Uppdráttur/Map: Guðmundur Ó. Ingvarsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.