Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2021, Side 30

Náttúrufræðingurinn - 2021, Side 30
Náttúrufræðingurinn 30 Ritrýnd grein / Peer reviewed Tvö hundruð fjár fórust í þessu hlaupi og fjórtán hestar. Enn fremur fórust fjórir bátar og tvær ferjur.19 Ljóst er að Resen hefur haft aðgang að ýmsum íslenskum heimildum. Fitjaannáll getur þessa sama eldgoss við árið 1685 með svofelldum orðum: Um veturinn var eldur uppi í austur- jöklum eður Grímsvötnum. Kom mikið jökulhlaup í Skeiðará og Jök- ulsá í Axarfirði. Týndist í því einn maður og undir 2 hundruð fjár frá Skinnastöðum.20 Í Íslandslýsingu Þorláks Markússonar lögréttumanns (um 1682–1736) sem lengst af bjó á Sjávarborg í Skagafirði, talinn „lögvitur, fróðleiksmaður og heppinn læknir,“21 segir meðal annars þar sem fjallað er um Skeiðarárjökul og hlaup úr honum: Í sama jökli eður ísbjargi sjá menn stundum eld upp koma, 6–7 eður 8 aðskilda eldsloga, líka sem úr Heklufjalli, og vita menn ekki, hvað þar kann vera til að brenna, annað en ís og vatn. Ekki mjög langt, sem vera kann 6 eður 7 mílur, frá þessum jökli, upp betur og sunnar á landinu, eru vötn, sem Grímsvötn heita. Upp úr þeim vötnum hafa menn séð í einu 15 aðgreinda loga brenna; hver orsök nú kann vera til svoddan, vita menn ekki af að segja, nema megi það orsak- ast af ofmiklum brennisteini djúpt í jörðunni, því þá menn ríða hjá þessum jöklum, er þar svo sterk brenni- steinslykt, sem hún kann nokkurntíma að verða.22 Enn er að geta ummæla Eggerts og Bjarna í Ferðabók frá 1772. Í frásögn þeirra af Skeiðarárjökli kemur fram að hann hafi fyrst orðið til á 14. öld. Í þeirra tíð töldu menn hann aðgreindan frá Klofajökli. En um Grímsvötn hafa þeir þessa athyglisverðu lýsingu (þýð. Stein- dór Steindórsson): Grímsvötn heita stöðuvötn uppi á hálendinu í norðvestur frá Skeiðarár- jökli. Þau standa í sambandi við hann, þannig að þegar hann gýs eldi, þá brennur einnig í Grímsvötnum. Spúa þau ösku og eldi, og stendur eldstólp- inn upp úr vatninu. Slokknar hann ekki af því, heldur virðist hann brenna miklu greiðlegar en án vatns.23 Ekki verður gengið fram hjá Fjalla- Eyvindi (1714 – til um 1780). Fáir ef nokkur hafa skilið eftir sig spor jafn víða í óbyggðum Íslands, þar á meðal norðan Vatnajökuls, en ýmsir eigna honum og Höllu bæjarstæðið í Hvanna- lindum. Ekki fór Eyvindur í grafgötur um hvar Grímsvötn væri að finna í jöklinum suður af og ekki ólíklegt að hann hafi skroppið á jökul og séð til 9. mynd. Frá Grímsvatnagosi 1998. – Eruption in Grímsvötn 1998. Ljósm./Photo: Oddur Sigurðsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.