Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 53
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
53
Ritrýnd grein / Peer reviewed
forsendur eða óvissuþætti í hverju til-
felli fyrir sig.
Dæmi eru um að menn hafi drepið
alla fugla á sýktum svæðum en ekki er
talið að það haldi fuglakóleru í skefjum,
auk þess sem slík aðferð hentar ekki
nema á takmarkaðan fjölda fugla.9,43
Mælt er gegn því að laða að fjölda fugla
á lítil svæði með fæðugjöf eða vök á
frosnu vatni. Reyndar hafa menn gengið
svo langt að dreifa þéttum fuglahópum,
fæla fugla frá kólerumenguðum
svæðum eða lokka þá annað. Til dæmis
voru söngtrönur (Grus americana)
fældar með flugvélum og skallaernir
(Haliaeetus leucocephalus) lokkaðir í
burtu með fæðugjöf.9 Ýmislegt fleira
hefur verið reynt, svo sem að þurrka
upp votlendi til að fæla þaðan fugla
eða hleypa vatni á þau til að þynna út
styrk P. multocida7 en það er alls óvíst
að slíkar aðgerðir beri í raun árangur.
Þegar um er að ræða þúsundir ein-
staklinga er aldrei hægt að meta með
vissu hvort þeir einstaklingar sem dreif-
ast frá kólerumenguðu svæði bera sjúk-
dóminn á aðra staði áður ósýkta. Því
ætti að forðast að dreifa fuglum úr varpi
komi fuglakólera þar upp, sérstaklega
þegar stutt er í næstu vörp eða vörpin
mörg nærri hvert öðru.
LOKAORÐ
Æðarfuglar á Íslandi yfirgefa ekki haf-
svæðið umhverfis Ísland að vetri til
en ferðast þó 150–300 km frá varpstað
sínum. Því er líklegt að hópar æðarfugla
víðs vegar að af landinu blandist á vet-
urna, og að auki hitta þeir æðarfugla frá
Grænlandi45 og Svalbarða46 norðan við
landið. Um er að ræða villta fuglategund
og því flókið að grípa til fyrirbyggjandi
aðgerða á landsvísu.
Andfuglar eru taldir viðkvæmir fyrir
smitsjúkdómum vegna þess hversu
félagslyndir þeir eru og vegna þess
hversu þéttbýl búsvæði þeirra eru.8,9
Þetta á einnig við um langdræga far-
fugla almennt og því er ástæða fyrir
Íslendinga að vera á varðbergi í þessum
efnum vegna alþjóðlegra skuldbindinga
um vernd alþjóðlega mikilvægra fugla-
stofna og búsvæða þeirra.47
Fuglakólera í villtum fuglum er erfið
viðureignar. Henni skýtur upp víða og
erfitt er að vakta einstaka varpstaði.26
Eftirlit með sýktum svæðum er þó talið
lykilatriði við að hefta frekara smit.7,9,43
Í Kanada voru Inúítar hvattir til að
fylgjast með fuglakóleru og tilkynna
sjúkdómshrinur.48 Þeir tilkynntu um 16
tifelli 2004–2014 og oft á stöðum þar
sem ólíklegt er að líffræðingar eða aðrir
sérfræðingar kæmu til að athuga hvað
væri á seyði. Á Íslandi eru flest æðarvörp
4. mynd. Tvær ljósmyndir af vettvangi frá Mitivik-eyju í East Bay. Vinstri myndin sýnir æðarkollu í stellingu sem einkennir nýdauða fugla af völdum
Pasteurella multocida (sjá einnig 1. mynd). Hægri myndin er tekin þegar kolluhræ voru talin í lok varptíma til að meta dánartölu og höfðu dýr þá
komist í hræin. – Photos from an avian cholera outbreak at Mitivik Island, East Bay, Canada. Left photo shows a female eider found dead, in a
position common in avian cholera outbreaks (see also Fig. 1). Right photo is taken during a carcass survey, where dead females are collected
at the end of a nesting season to estimate mortality and for sample collection. At that time, the carcasses have been mauled by scavenging
animals. Ljósm./Photos: Grant Gilchrist og/and Holly Hennin, Environment Canada.